Ferill 283. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 316 — 283. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á ýmsum lögum á sviði orkumála (EES-reglur).
Frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
I. KAFLI
Breyting á raforkulögum, nr. 65/2003.
1. gr.
1. Afmarkað athafnasvæði: Fasteign, lóð, bygging eða annað afmarkað starfssvæði þar sem framleiðsla, geymsla og notkun raforku fer fram undir yfirráðum eins eða fleiri notenda endurnýjanlegrar raforku sem þeir framleiða sjálfir, án þess að raforkan sé flutt um almennt dreifi- eða flutningskerfi.
2. Jafningjaviðskipti: Sala á endurnýjanlegri orku milli markaðsaðila á grundvelli samnings með fyrirframákveðnum skilyrðum um sjálfvirka framkvæmd og uppgjör, annaðhvort beint eða með milligöngu þriðja aðila, svo sem orkusafnara.
3. Orkusafnari: Aðili sem sameinar álag eða raforkuvinnslu fleiri en eins markaðsaðila í eina einingu til kaups, sölu eða uppboðs á raforkumarkaði eða til afhendingar kerfisþjónustu, óháð því hvort viðkomandi er jafnframt sölufyrirtæki þeirra sem í hlut eiga.
4. Orkusamfélag: Félag um eignarhald og þróun á orkuvinnslu sem byggist á opinni og frjálsri aðild einstaklinga, lítilla eða meðalstórra fyrirtækja eða sveitarfélaga og lýtur raunverulegum yfirráðum félagsmanna eða hluthafa sem eru staðsettir í nálægð við orkuvinnsluna. Megintilgangur orkusamfélags er að veita umhverfislegan, efnahagslegan eða félagslegan ávinning fyrir aðila eða nærsamfélag fremur en fjárhagslegan hagnað.
2. gr.
3. gr.
a. Á eftir 7. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Dreifiveitur skulu vinna með orkusamfélögum til að greiða fyrir mælingu, gagnaskiptum, deilingu, úthlutun og uppgjöri raforku sem framleidd er af framleiðslueiningum í eigu orkusamfélags og deilt er meðal félagsmanna eða hluthafa þess. Samstarfið breytir ekki lögbundnu hlutverki eða ábyrgð dreifiveitna á rekstri og kerfisstjórnun dreifikerfis, mælingum, öryggi, afkastagetu eða gæðum raforku.
Framleiðslueining eða samanlagðar framleiðslueiningar notenda skv. 18. gr. d með rafafl 10,8 kW eða minna skulu tengdar dreifikerfi á grundvelli einfaldrar tilkynningar. Dreifiveita getur innan eins mánaðar frá móttöku fullnægjandi tilkynningar hafnað tengingu eða lagt til annan tengipunkt, enda byggist ákvörðunin á rökstuddum öryggissjónarmiðum eða tæknilegu ósamræmi kerfishluta.
b. 8. mgr. orðast svo:
Ráðherra skal, að fenginni umsögn Raforkueftirlitsins, setja í reglugerð nánari ákvæði um hlutverk og starfsemi dreifiveitna, kerfisstjórnun og tengingu virkjana við dreifikerfið. Einnig skal mæla fyrir um starfsumgjörð notenda skv. 18. gr. d og orkusamfélaga, þar á meðal einfalt tilkynningarferli vegna nettengingar minni framleiðslueininga, fyrirkomulag mælinga og undanþágur frá þeim, deilingu og úthlutun raforku til félagsmanna orkusamfélags, nauðsynlega upplýsingamiðlun og uppgjör. Ráðherra er heimilt að ákveða í reglugerð að einfaldað tilkynningarferli taki til framleiðslueininga allt að 50 kW, enda sé sýnt fram á að áreiðanleika og öryggi dreifikerfis sé viðhaldið.
4. gr.
Gjaldskrár dreifiveitna skulu sérstaklega taka mið af notendum skv. 18. gr. d og orkusamfélögum. Dreifiveitur skulu ekki hindra rétt þeirra til að framleiða, nota, geyma eða selja eigin raforku. Dreifiveitum er óheimilt að leggja gjald á eigin framleidda raforku notanda skv. 18. gr. d sem verður eftir innan athafnasvæðis hans eða láta raforku sem geymd er í raforkugeymslu samhliða eigin vinnslu og verður þar eftir sæta tvöfaldri gjaldtöku.
5. gr.
Ákvæði 1. mgr. tekur ekki til raforkuviðskipta þegar um er að ræða sölu notenda skv. 18. gr. d á umframorku, jafningjaviðskipti milli slíkra aðila eða raforkuviðskipti innan orkusamfélaga.
Undanþága skv. 3. mgr. tekur jafnframt til starfsemi orkusafnara þegar hann starfar í umboði eða fyrir hönd notenda skv. 18. gr. d eða orkusamfélaga og takmarkar starfsemi sína við að skipuleggja eða aðstoða við staðbundna orkudeilingu, mælingar, uppgjör og stýringu notkunar á afhendingarstað.
6. gr.
7. gr.
a. (18. gr. c.)
Orkusamfélög.
Þátttaka í orkusamfélagi hefur ekki áhrif á réttindi eða skyldur félagsmanns eða hluthafa sem notanda, þar á meðal rétt hans til að velja eða skipta um sölufyrirtæki.
Raunveruleg yfirráð orkusamfélags skulu vera í höndum félagsmanna eða hluthafa sem eru staðsettir innan sama dreifisvæðis eða spennustigs og orkuvinnslan. Heimilt er í reglugerð að mæla fyrir um rýmri landfræðilega afmörkun orkusamfélaga í dreifbýli.
b. (18. gr. d.)
Notendur endurnýjanlegrar raforku sem þeir framleiða sjálfir.
Notanda skv. 1. mgr. er heimilt að starfa í samlagi, svo sem innan sama fjölbýlishúss eða afmarkaðs athafnasvæðis. Framleiðslu- og geymslubúnaður notanda skv. 1. mgr. má vera í eigu eða undir stjórn þriðja aðila, enda lúti hann fyrirmælum notandans. Þriðji aðilinn öðlast ekki réttindi samkvæmt þessari grein af þeirri ástæðu einni og skal fullnægja skyldum sem gilda um eigin starfsemi hans.
c. (18. gr. e.)
Jafningjaviðskipti með endurnýjanlega raforku.
8. gr.
a. Í stað fjárhæðarinnar „0,9 aurum“ í 1. tölul. kemur: 0,95 aurum.
b. Í stað fjárhæðarinnar „2,26 aurum“ í 2. tölul. kemur: 2,4 aurum.
9. gr.
Að ósk umsækjanda skal umsókn um virkjunarleyfi skv. 4. gr. jafnframt fela í sér, eftir því sem við á, beiðni um nýtingarleyfi samkvæmt lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, starfsleyfi samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og heimild til breytingar á vatnshloti samkvæmt lögum um stjórn vatnamála. Séu skilyrði uppfyllt skal Umhverfis- og orkustofnun gefa út eitt leyfi, sbr. 6. gr. a laga um Umhverfis- og orkustofnun, nr. 110/2024.
Umhverfis- og orkustofnun skal innan 30 daga frá móttöku umsóknar um virkjunarleyfi skv. 4. gr. staðfesta hvort umsókn telst fullnægjandi til efnislegrar meðferðar eða tilkynna umsækjanda skriflega hvaða gögn eða upplýsingar skortir. Frá staðfestingu móttöku fullnægjandi umsóknar skal málsmeðferð lokið með útgáfu leyfis eða synjun eigi síðar en innan 18 mánaða. Varði umsókn raforkuver með uppsettu rafafli undir 150 kW eða endurnýjun, endurbætur, breytingu eða aflaukningu raforkuvers sem nýtir endurnýjanlega orkulind skal málsmeðferð þó lokið eigi síðar en innan eins árs frá móttöku fullnægjandi umsóknar.
10. gr.
Innleiðing.
1. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2005/89/EB frá 18. janúar 2006 um ráðstafanir til að tryggja afhendingaröryggi raforku og fjárfestingu í grunnvirkjum eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EESnefndarinnar nr. 49/2007 frá 8. júní 2007.
2. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/72/EB frá 13. júlí 2009 um sameiginlegar reglur um innri markaðinn fyrir raforku og um niðurfellingu tilskipunar 2003/54/EB eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2017 frá 5. maí 2017.
3. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 frá 11. desember 2018 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum (endurútgefin), að því er varðar raforkumarkaðinn eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2025 frá 11. júlí 2025.
II. KAFLI
Breyting á lögum um upprunaábyrgð á raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum o.fl., nr. 30/2008.
11. gr.
12. gr.
a. Á eftir orðinu „jarðvarmaorka“ í 1. tölul. kemur: umhverfisorka.
b. 4. tölul. orðast svo: Upprunaábyrgð: Rafrænt skjal sem notað er til að sanna fyrir kaupanda að tiltekið hlutfall eða magn orku hafi verið framleitt með endurnýjanlegum orkugjöfum.
c. Við bætast þrír nýir töluliðir, svohljóðandi, í viðeigandi stafrófsröð:
1. Endurnýjanlegt gas: Loftkennt eldsneyti framleitt úr endurnýjanlegum orkugjöfum, þ.m.t. endurnýjanlegt vetni, lífgas og lífmetan.
2. Samsetning afgangsorku: Árleg heildarorkusamsetning hér á landi að undanskilinni þeirri hlutdeild sem fellur undir afskráðar upprunaábyrgðir.
3. Umhverfisorka: Náttúruleg varmaorka og orka sem safnast saman í umhverfinu á afmörkuðu svæði, sem hægt er að geyma í andrúmslofti, þó ekki í útblásturslofti, eða í yfirborðs- eða skólpvatni.
13. gr.
a. Í stað orðsins „raforku“ í 1. mgr. kemur: orku.
b. Í stað orðsins „raforka“ í 2. mgr. kemur: orka.
c. 2. málsl. 3. mgr. orðast svo: Aðeins er heimilt að synja um viðurkenningu upprunaábyrgðar ef rökstuddur vafi leikur á um nákvæmni hennar, áreiðanleika eða sannleiksgildi.
d. Í stað orðsins „ raforku“ í fyrirsögn greinarinnar kemur: orku.
14. gr.
a. Í stað orðsins „raforku“ tvívegis í 1. málsl. 1. mgr. kemur: orku.
b. Í stað orðanna „er heimilt að gefa út skriflega eða“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: skal gefa út.
c. Í stað orðanna „ 2009/28/EB frá 23. apríl 2009 um að hvetja til notkunar orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum og niðurfellingu tilskipana 2001/77/EB og 2003/30/EB“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: (ESB) 2018/2001 frá 11. desember 2018 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum.
d. Í stað orðsins „raforku“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: orku.
e. Við 3. mgr. bætast fjórir nýir málsliðir, svohljóðandi: Tryggja skal að sama orkueining frá endurnýjanlegum orkugjöfum sé aðeins talin einu sinni við upplýsingagjöf um uppruna orku. Þegar raforka er framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum í samvinnslu með góða orkunýtni skal gefa út eina upprunaábyrgð sem tilgreinir hvort tveggja. Við upplýsingagjöf um uppruna seldrar orku skulu söluaðilar nota upprunaábyrgðir fyrir sömu tegund orku og upplýsingagjöfin varðar. Við veitingu opinbers stuðnings til framleiðslu orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum skal sá sem veitir stuðninginn tryggja að tekið sé með viðeigandi hætti tillit til markaðsvirðis upprunaábyrgða vegna sömu orkuframleiðslu við ákvörðun um stuðning.
f. Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Upprunaábyrgðir skulu gilda í 12 mánuði frá því að viðkomandi orkueining var framleidd. Upprunaábyrgðir sem ekki hafa verið afskráðar falla úr gildi eigi síðar en 18 mánuðum frá framleiðslu orkueiningarinnar. Söluaðilar orku sem nota upprunaábyrgðir við upplýsingagjöf um uppruna seldrar orku skulu sjá til þess að þær séu afskráðar eigi síðar en sex mánuðum eftir lok gildistíma þeirra.
Landsnet hf. skal tryggja að útgáfa, framsal og afskráning upprunaábyrgða uppfylli kröfur sem ráðherra setur í reglugerð. Ráðherra skal í reglugerð mæla fyrir um rafræna framkvæmd þessara aðgerða, nákvæmni og áreiðanleika upprunaábyrgða, varnir gegn svikum og samræmi við staðla um upprunaábyrgðir. Jafnframt skal í reglugerð mæla fyrir um meðferð upprunaábyrgða sem fallið hafa úr gildi við útreikning á samsetningu afgangsorku og hvernig taka skuli tillit til markaðsvirðis upprunaábyrgða við veitingu opinbers stuðnings.
15. gr.
16. gr.
a. 1. tölul. orðast svo: Upplýsingar um viðkomandi framleiðslueiningu, þ.m.t. auðkenni, staðsetningu, gerð, framleiðslugetu og dagsetningu þegar framleiðslueining hóf starfrækslu.
b. 2. tölul. orðast svo: Með hvaða orkugjafa orkan var framleidd og upphafs- og lokadagsetningu framleiðslu hennar.
c. Í stað orðsins „raforku“ í 3. tölul. kemur: orku.
d. Í stað orðsins „orkuveri“ í 3. tölul. kemur: framleiðslueiningu.
e. 4. tölul. orðast svo: Hvort upprunaábyrgðin varði raforku, gas, þ.m.t. vetni, eða orku til hitunar eða kælingar.
f. 5. tölul. orðast svo: Upplýsingar um útgefanda upprunaábyrgðar, útgáfuland, dagsetningu og sérstakt auðkennisnúmer.
g. Í stað orðsins „raforkan“ tvívegis í 7. tölul. kemur: orkan.
h. Í stað orðsins „raforku“ í 8. tölul. kemur: orku.
i. Við bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Hvort framleiðslueining hafi fengið fjárfestingarstuðning og hvort orkueining hafi notið stuðnings með öðrum hætti frá innlendu stuðningskerfi og hvers konar stuðningskerfi um ræðir.
j. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Heimilt er að tilgreina einfaldaðar upplýsingar í upprunaábyrgðum frá framleiðslueiningum sem eru minni en 50 kW.
17. gr.
a. Í stað orðsins „raforku“ í 1. málsl. 1. mgr. og 2. mgr. kemur: orku.
b. Í stað orðanna „ 2009/28/EB frá 23. apríl 2009 um að hvetja til notkunar orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum og niðurfellingu tilskipana 2001/77/EB og 2003/30/EB“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: (ESB) 2018/2001.
c. Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Upprunaábyrgðir frá ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins skulu ekki viðurkenndar nema þegar Evrópusambandið hefur gert samning við það ríki um gagnkvæma viðurkenningu á upprunaábyrgðum sem gefnar eru út innan Evrópusambandsins og samrýmanlegt kerfi upprunaábyrgða hefur verið komið á í því ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins, og þegar EFTA-ríkin hafa gert samning sem er jafngildur í meginatriðum við það ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins, og aðeins þegar um beinan innflutning eða útflutning orku er að ræða.
d. Við 3. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Landsnet hf. skal tilkynna Umhverfis- og orkustofnun um synjun á viðurkenningu upprunaábyrgðar frá öðru ríki Evrópska efnahagssvæðisins og gera grein fyrir rökstuðningi hennar.
18. gr.
19. gr.
Reglugerðarheimild.
20. gr.
Innleiðing.
1. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/28/EB frá 23. apríl 2009 um að hvetja til notkunar orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum og niðurfellingu tilskipana 2001/77/EB og 2003/30/EB eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 162/2011 19. desember 2011.
2. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 frá 11. desember 2018 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2025 frá 11. júlí 2025 um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
21. gr.
III. KAFLI
Breyting á lögum um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi, nr. 40/2013.
22. gr.
Markmið og gildissvið.
Lög þessi gilda um eldsneyti og orku sem notuð eru til að uppfylla skyldur samkvæmt lögunum eða stjórnvaldsfyrirmælum settum á grundvelli þeirra.
Lög þessi gilda jafnframt um sjálfbærniviðmið, samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda, gögn og upplýsingar, rekjanleika, vottun, skráningu og eftirlit vegna eldsneytis sem fellur undir lögin eða reglugerðir settar á grundvelli þeirra.
23. gr.
a. 3. tölul. orðast svo: Lífeldsneyti: Fljótandi eldsneyti til flutninga, framleitt úr lífmassa.
b. 4. tölul. orðast svo: Lífmassi: Lífbrjótanlegur hluti afurða, úrgangs og leifa af líffræðilegum uppruna frá landbúnaði, þ.m.t. efni úr bæði jurta- og dýraríkinu, frá skógrækt og tengdum atvinnugreinum, svo sem sjávarútvegi og lagareldi, auk lífbrjótanlegs hluta úrgangs, m.a. iðnaðarúrgangs og heimilis- og rekstrarúrgangs af líffræðilegum uppruna.
c. Eftirfarandi orðskýringar bætast við í viðeigandi stafrófsröð:
1. Eldsneytisbirgir: Aðili sem flytur inn eða framleiðir hér á landi eldsneyti og afhendir það á markað.
2. Fljótandi lífeldsneyti: Fljótandi eldsneyti sem er framleitt úr lífmassa til notkunar sem orkugjafi, að flutningum undanskildum, m.a. til raforkuframleiðslu, hitunar og kælingar.
3. Gagnagrunnur: Gagnagrunnur Evrópusambandsins sem notaður er til að tryggja rekjanleika, gagnsæi, skráningu og varnir gegn tvítalningu vegna eldsneytis sem fellur undir EES-reglur um slíkan gagnagrunn.
4. Lífgas: Loftkennt eldsneyti framleitt úr lífmassa.
5. Lífmassaeldsneyti: Loftkennt eldsneyti og eldsneyti á föstu formi, framleitt úr lífmassa.
6. Massajöfnunarkerfi: Kerfi sem gerir kleift að blanda saman sendingum hráefna eða eldsneytis með mismunandi einkenni að því er varðar sjálfbærni og samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda, enda fylgi upplýsingar um einkenni og magn sendinga blöndunni, tryggt sé að samansafn einkenna og magn þess sem tekið er úr blöndunni samsvari því sem bætt hefur verið í hana innan tiltekins tímabils og að sama sending sé ekki talin oftar en einu sinni.
7. Rekstraraðili: Aðili sem í atvinnuskyni framleiðir hráefni, safnar úrgangi eða leifum, vinnur hráefni í milliafurð eða eldsneyti eða annast blöndun eða geymslu hráefnis, milliafurðar eða eldsneytis og ber ábyrgð á upplýsingum um sjálfbærni, uppruna, rekjanleika eða samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Hugtakið tekur jafnframt til annars aðila sem hefur hráefni, milliafurð eða eldsneyti í vörslum sínum og ber ábyrgð á vinnslu eða miðlun slíkra upplýsinga.
d. 7.–9. tölul. falla brott.
e. Fyrirsögn greinarinnar verður: Orðskýringar.
24. gr.
Hlutdeild endurnýjanlegrar orku í samgöngum.
Aðeins orku úr eldsneyti sem uppfyllir skilyrði 4. gr. má telja til endurnýjanlegrar orku við útreikning samkvæmt þessari grein.
Eldsneyti sem eldsneytisbirgir framselur öðrum eldsneytisbirgi er talið af viðtakanda en ekki framseljanda. Skylda samkvæmt þessari grein tekur ekki til eldsneytis sem flutt er úr landi.
Ráðherra skal í reglugerð kveða á um stigvaxandi hækkun lágmarkshlutdeildar skv. 1. mgr. í samræmi við þær kröfur um hlutdeild endurnýjanlegrar orku í samgöngum sem leiðir af tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001, eins og hún var tekin upp í EES-samninginn. Ráðherra skal jafnframt í reglugerð kveða á um lágmarksframlag lífeldsneytis og lífgass sem framleitt er úr hráefni sem talið er upp í A-hluta IX. viðauka við tilskipunina, í samræmi við kröfur hennar.
Ráðherra skal í reglugerð kveða nánar á um útreikning hlutdeildar samkvæmt þessari grein í samræmi við EES-reglur, þar á meðal um teljara og nefnara við útreikning, hvaða eldsneyti og orka skulu talin með, hámarkshlutdeild eldsneytis sem framleitt er úr matvæla- og fóðurjurtum, takmarkanir vegna mikillar áhættu á óbeinum breytingum á landnotkun, endurunnið kolefniseldsneyti, margföldunarstuðla, meðferð raforku, þ.m.t. raforku sem afhent er til samgangna af öðrum aðilum en eldsneytisbirgjum, meðferð eldsneytis sem afhent er til flugs og siglinga og viðmiðunargildi orkuinnihalds.
Ráðherra er heimilt í reglugerð að undanþiggja eða gera mismunandi kröfur til tiltekinna eldsneytisbirgja eða orkugjafa að því marki sem EES-reglur heimila, enda sé tryggt að lögbundnum lágmarkshlutdeildum verði náð.
25. gr.
Sjálfbærniviðmið, samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda og rekjanleiki.
Orku úr lífeldsneyti, fljótandi lífeldsneyti og lífmassaeldsneyti má aðeins telja með við útreikning á hlutdeild endurnýjanlegrar orku eða nota til að uppfylla skyldur samkvæmt lögum þessum eða stjórnvaldsfyrirmælum settum á grundvelli þeirra ef sýnt er fram á að viðeigandi sjálfbærniviðmið og kröfur um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda séu uppfyllt.
Sýna má fram á að skilyrði samkvæmt þessari grein séu uppfyllt með gögnum frá viðurkenndu vottunarkerfi, gögnum úr massajöfnunarkerfi, sönnunargögnum frá landsbundnu kerfi eða öðrum gögnum sem Umhverfis- og orkustofnun metur fullnægjandi.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um sjálfbærniviðmið, samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda, massajöfnun, gögn og upplýsingar, vottun, sannprófun, útreikning losunar gróðurhúsalofttegunda, hráefni, framleiðsluferli, rekjanleika og önnur atriði sem nauðsynleg eru við framkvæmd EES-reglna um sjálfbærni og samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda vegna eldsneytis sem fellur undir lög þessi.
26. gr.
Skráningarskylda í gagnagrunn.
Ábyrgð hvers rekstraraðila og eldsneytisbirgis á skráningu og réttmæti upplýsinga tekur til þeirra upplýsinga sem varða hans eigin starfsemi eða atvik sem eru á hans forræði, svo og þeirra upplýsinga sem honum er sérstaklega skylt að skrá, afla eða sannreyna samkvæmt lögum þessum eða reglugerðum settum á grundvelli þeirra. Þegar upplýsingar byggjast á gögnum sem annar aðili í virðiskeðjunni hefur veitt ber sá sem skráir þær ábyrgð á að sannreyna þær og leiðrétta eftir því sem honum er skylt samkvæmt lögum þessum eða reglugerðum settum á grundvelli þeirra. Hann ber ekki ábyrgð á efnislegu réttmæti upplýsinganna umfram þær skyldur.
Skráning skv. 1. mgr. skal, eftir því sem við á, taka til upplýsinga um uppruna hráefna, magn, eiginleika, framleiðsluferli, sjálfbærniviðmið, losun gróðurhúsalofttegunda, vottun, sannprófun og afhendingu á markað.
Umhverfis- og orkustofnun hefur eftirlit með því að skyldum samkvæmt þessari grein sé fylgt. Stofnuninni er heimilt að krefja rekstraraðila og eldsneytisbirgja um þær upplýsingar, gögn, leiðréttingar og skýringar sem nauðsynlegar eru vegna eftirlitsins, þar á meðal til að sannreyna að skráningar séu réttar og fullnægjandi, að kröfum um rekjanleika og sjálfbærni sé fullnægt og að sama magn eldsneytis sé ekki talið oftar en einu sinni.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um skilyrði og framkvæmd skráningar samkvæmt þessari grein, þar á meðal um hvaða rekstraraðilar og eldsneytisflokkar falla undir skráningarskyldu, hvaða upplýsingar, viðskipti og birgðahreyfingar skuli skrá, ábyrgð og verkaskiptingu milli aðila í virðiskeðjunni vegna einstakra upplýsinga og skráninga, kröfur um sannprófun upplýsinga sem berast frá öðrum aðilum, ráðstafanir til að koma í veg fyrir tvískráningu, skilafresti, leiðréttingar, varðveislu gagna, gagnasnið og tæknilega framkvæmd skráningar.
27. gr.
Upplýsingaskylda eldsneytisbirgja.
Eldsneytisbirgjum er skylt að afhenda Umhverfis- og orkustofnun gögn og upplýsingar oftar á almanaksárinu ef stofnunin óskar þess vegna eftirlits samkvæmt lögum þessum.
Hafi gögnum eða upplýsingum samkvæmt þessari grein ekki verið skilað innan tilskilins frests eða séu þau ófullnægjandi gilda ákvæði 6. gr.
Umhverfis- og orkustofnun gefur árlega út yfirlit um heildarsölu eldsneytis og hlutdeild endurnýjanlegrar orku í samgöngum samkvæmt lögum þessum eigi síðar en 30. apríl ár hvert vegna næstliðins almanaksárs.
28. gr.
Viðurlög og þvingunarúrræði.
Ef gögn eða upplýsingar sem rekstraraðili eða eldsneytisbirgir leggur fram nægja ekki til að sýna fram á að skilyrði 4. gr. séu uppfyllt skal Umhverfis- og orkustofnun senda viðkomandi aðila áskorun um að bæta úr innan hæfilegs frests. Verði ekki bætt úr innan frestsins má ekki telja það eldsneyti sem um ræðir með sem endurnýjanlega orku við útreikning eða uppgjör samkvæmt lögum þessum eða stjórnvaldsfyrirmælum settum á grundvelli þeirra fyrr en sýnt hefur verið fram á að skilyrði 4. gr. séu uppfyllt.
Hafi rekstraraðili eða eldsneytisbirgir ekki afhent gögn eða upplýsingar sem ber að afhenda samkvæmt lögum þessum eða stjórnvaldsfyrirmælum settum á grundvelli þeirra innan tilskilins frests, eða séu gögnin eða upplýsingarnar ófullnægjandi, skal Umhverfis- og orkustofnun senda viðkomandi aðila áskorun um að bæta úr innan hæfilegs frests. Frestur til úrbóta skal að jafnaði ekki vera skemmri en þrjár vikur.
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að leggja dagsektir, allt að 500.000 kr. á dag, á rekstraraðila eða eldsneytisbirgi sem verður ekki við áskorun skv. 3. mgr. Dagsektir skal því aðeins leggja á að viðkomandi aðila hafi verið veittur hæfilegur frestur til að bæta úr vanefndum. Við ákvörðun fjárhæðar dagsekta skal höfð hliðsjón af eðli, alvarleika og umfangi vanefnda, hversu lengi þær hafa staðið yfir, hvort um ítrekaðar vanefndir er að ræða og fjárhagslegum styrk viðkomandi aðila. Í ákvörðun um dagsektir skal tilgreina frá hvaða degi þær falla á.
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að leggja stjórnvaldssekt á rekstraraðila eða eldsneytisbirgi sem af ásetningi eða stórfelldu gáleysi veitir verulega rangar eða villandi upplýsingar skv. 4. gr. eða 5. gr. Heimildin tekur til tilvika þar sem upplýsingarnar hafa haft áhrif á útreikning eða uppgjör skv. 3. gr. eða, þegar um ásetningsbrot er að ræða, upplýsingarnar hafa verið veittar í því skyni að hafa slík áhrif. Stjórnvaldssekt getur numið allt að 10.000.000 kr. Við ákvörðun sektar skal m.a. líta til eðlis, alvarleika og umfangs brots, þess hversu lengi það hefur staðið yfir, hvort um ítrekað brot er að ræða, hvort brot hafi verið framið í þágu hagsmuna viðkomandi aðila, fjárhagslegs ávinnings af broti, hvort unnt hefði verið að koma í veg fyrir brotið með eðlilegri stjórnun og eftirliti og hvort gripið hafi verið til ráðstafana til að bæta úr broti.
Sé sekt eða dagsekt ekki greidd innan mánaðar frá því að Umhverfis- og orkustofnun tilkynnir aðila um ákvörðunina skal greiða dráttarvexti af fjárhæðinni í samræmi við 5. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001. Sektir og dagsektir renna í ríkissjóð að frádregnum kostnaði við innheimtu. Ákvarðanir Umhverfis- og orkustofnunar um sektir og dagsektir eru aðfararhæfar.
Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um sekt eða dagsekt má skjóta til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan þriggja mánaða frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðunina. Málskot til úrskurðarnefndar frestar aðför. Úrskurðir úrskurðarnefndar um sektir og dagsektir eru aðfararhæfir. Að öðru leyti en hér segir gilda lög um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
29. gr.
Viðurlög vegna skráningar í gagnagrunn.
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að leggja dagsektir, allt að 500.000 kr. á dag, á rekstraraðila eða eldsneytisbirgi sem verður ekki við áskorun skv. 1. mgr. Við ákvörðun fjárhæðar dagsekta skal höfð hliðsjón af sjónarmiðum skv. 4. mgr. 6. gr.
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að leggja stjórnvaldssekt á rekstraraðila eða eldsneytisbirgi sem af ásetningi eða stórfelldu gáleysi veitir rangar eða villandi upplýsingar skv. 4. gr. a, enda hafi upplýsingarnar haft veruleg áhrif á útreikning eða uppgjör skv. 3. gr. eða, þegar um ásetningsbrot er að ræða, verið veittar í því skyni að hafa slík áhrif. Stjórnvaldssekt getur numið allt að 10.000.000 kr. Við ákvörðun sektar skal höfð hliðsjón af sjónarmiðum skv. 5. mgr. 6. gr.
Ákvæði 6. og 7. mgr. 6. gr. um greiðslu, dráttarvexti, innheimtu, aðfararhæfi og málskot gilda eftir því sem við á um ákvarðanir samkvæmt þessari grein.
30. gr.
Varðveisla gagna og upplýsinga.
Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um þau gögn og upplýsingar sem halda skal til haga samkvæmt þessari grein, form þeirra og varðveislutíma.
31. gr.
Gjaldtaka.
a. yfirferð gagna og upplýsinga um sjálfbærni, samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og rekjanleika, sbr. 4. gr.,
b. eftirlit með skráningu í gagnagrunn, sbr. 4. gr. a,
c. yfirferð gagna og upplýsinga, sbr. 5. gr.,
d. viðbótarvinnu vegna síðbúinna eða ófullnægjandi gagnaskila.
Ráðherra skal setja, að fengnum tillögum Umhverfis- og orkustofnunar, gjaldskrá fyrir þau gjöld sem rekstraraðilar, eldsneytisbirgjar og aðrir aðilar skulu greiða skv. 1. mgr. Upphæð gjalda samkvæmt þessari grein skal taka mið af kostnaði við þjónustu og framkvæmd einstakra verkefna og skal byggjast á rekstraráætlun þar sem þau atriði eru rökstudd sem ákvörðun gjalda byggist á. Gjöldin mega ekki vera hærri en sá kostnaður. Gjaldskrá skal birt í B-deild Stjórnartíðinda. Gjöld þessi má innheimta með fjárnámi.
32. gr.
Innleiðing.
33. gr.
34. gr.
35. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skulu 26. og 29. gr. ekki öðlast gildi fyrr en 30 dögum eftir að tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/2413 frá 18. október 2023 um breytingu á tilskipun (ESB) 2018/2001, reglugerð (ESB) 2018/1999 og tilskipun 98/70/EB að því er varðar að stuðla að orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum hefur verið tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um upptöku hennar hefur öðlast gildi og verið birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins.
Ráðherra skal birta auglýsingu í Stjórnartíðindum um gildistöku ákvæða skv. 2. mgr. með minnst tíu daga fyrirvara.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.