Ferill 286. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 319 — 286. mál.
Stjórnartillaga.
Tillaga til þingsályktunar
um stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031.
Frá mennta- og barnamálaráðherra.
Alþingi ályktar að unnið verði samkvæmt eftirfarandi stefnu og aðgerðaáætlun til ársins 2031.
STEFNA
Framtíðarsýn stefnunnar er að Ísland verði samfélag þar sem hvert barn fær tækifæri til að njóta sín, þroskast og dafna, óháð efnahag og félagslegri stöðu fjölskyldu sinnar. Áhersla verði lögð á að sporna gegn fátækt barna og draga úr þeim hindrunum sem efnahagslegur ójöfnuður getur skapað.
II. Stoðir.
Stefnan hvíli á fjórum stoðum:
1. Fjárhagslegum stuðningi og virkni.
Lögð verði áhersla á að opinber stuðningur nýtist barnafjölskyldum sem best og ungmenni fái stuðning til náms og atvinnuþátttöku.
2. Jöfnum tækifærum til þátttöku.
Lögð verði áhersla á að jafna tækifæri barna, óháð efnahag fjölskyldu, til þátttöku í skólastarfi og skipulögðu frístundastarfi.
3. Heildstæðri og samþættri þjónustu.
Lögð verði áhersla á að efla heildstæða og samþætta þjónustu við tekjulágar barnafjölskyldur og tryggja að hún nái sérstaklega til þeirra hópa barna sem eru í mestri hættu á að búa við fátækt.
4. Skýrum mælingum og gagnreyndri stefnumótun.
Lögð verði áhersla á að meta árangur reglulega og bæta aðgerðir gegn fátækt barna á grundvelli rannsókna og mælinga.
III. Innleiðing og eftirfylgni.
Stýrihópur Stjórnarráðsins um málefni barna, skipaður fulltrúum viðeigandi ráðuneyta undir formennsku mennta- og barnamálaráðuneytisins, verði formlegur samráðsvettvangur um framkvæmd stefnu þessarar. Hópurinn fylgi reglulega eftir framvindu stefnunnar og aðgerða tengdra henni, stuðli að samhæfingu aðgerða milli ráðuneyta og leggi eftir atvikum til úrbætur og fylgist með hvort markmiðum hafi verið náð. Hópurinn vinni skýrslu um mat á árangri og nýtingu fjármuna tveimur árum eftir samþykkt tillögunnar og við lok tímabils hennar.
Unnið verði í samræmi við eftirfarandi aðgerðaáætlun til að tryggja framgang framangreindrar framtíðarsýnar og stefnu gegn fátækt barna.
AÐGERÐAÁÆTLUN
1. Heildstæð greining á opinberum fjárhagslegum stuðningi við barnafjölskyldur.
Fram fari heildstæð greining á opinberum fjárhagslegum stuðningi við barnafjölskyldur. Greiningin taki m.a. til barnabóta, greiðslna almannatrygginga, fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga og annarra opinberra greiðslna til barnafjölskyldna. Greint verði hvernig mismunandi fjárhagslegur stuðningur nýtist barnafjölskyldum eftir fjölskyldugerð og félagslegum aðstæðum sem og hvaða áhrif samspil mismunandi stuðnings hafi á heildarstuðning við barnafjölskyldur.
Markmið: Að draga upp heildstæða mynd af opinberum fjárhagslegum stuðningi við barnafjölskyldur og meta hvernig mismunandi fjárhagslegur stuðningur nýtist barnafjölskyldum eftir fjölskyldugerð og félagslegum aðstæðum sem og hvaða áhrif samspil mismunandi stuðnings hafi á heildarstuðning við barnafjölskyldur. Niðurstöðurnar verði nýttar sem grundvöllur að mati á því hvort og að hvaða marki þörf sé á breytingum á núverandi fjárhagslegum stuðningi við barnafjölskyldur.
Aðgerðinni verði skipt upp í tvo hluta:
A. Úttekt á barnabótakerfinu.
B. Heildstæða greiningu á opinberum fjárhagslegum stuðningi við barnafjölskyldur.
Ábyrgð: Fjármála- og efnahagsráðuneyti á A-hluta.
Ábyrgð: Félags- og húsnæðismálaráðuneyti á B-hluta.
Dæmi um samstarfsaðila: Mennta- og barnamálaráðuneyti, Skatturinn, Samband íslenskra sveitarfélaga, Hagstofa Íslands, frjáls félagasamtök, háskólasamfélagið, Tryggingastofnun ríkisins og Vinnumálastofnun.
Tímabil:
A-hluti 2026–2027.
B-hluti 2027–2028.
Mælikvarðar: Úttekt á barnabótakerfinu hafi farið fram og mat á því hvort og að hvaða marki þörf sé á breytingum á núverandi kerfi liggi fyrir. Jafnframt liggi fyrir heildstæð greining á opinberum fjárhagslegum stuðningi við barnafjölskyldur og hvernig stuðningurinn nýtist barnafjölskyldum eftir fjölskyldugerð og félagslegum aðstæðum sem og hvaða áhrif samspil mismunandi stuðnings hafi á heildarstuðning við barnafjölskyldur. Þá liggi fyrir mat á því hvort og að hvaða marki þörf sé á breytingum á núverandi fjárhagslegum stuðningi við barnafjölskyldur.
2. Stuðningur við ungmenni til náms og þátttöku á vinnumarkaði.
Helstu náms-, atvinnu- og virkniúrræði sem nýtast ungmennum og ungum foreldrum frá tekjulágum heimilum verði kortlögð og lagðar fram tillögur um hvernig megi efla þau úrræði sem hafa reynst vel. Við kortlagningu og tillögugerð verði sérstaklega litið til virkni og þátttöku ungmenna í viðkvæmri stöðu.
Markmið: Að auka þátttöku ungmenna í námi og á vinnumarkaði og bæta forsendur þeirra til tekjuöryggis til framtíðar.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Félags- og húsnæðismálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, félagasamtök og aðilar vinnumarkaðarins.
Tímabil: 2027–2028.
Mælikvarði: Kortlagning á helstu náms-, atvinnu- og virkniúrræðum fyrir ungmenni og unga foreldra frá tekjulágum heimilum liggi fyrir og tillögur um eflingu árangursríkra úrræða hafi verið lagðar fram.
3. Stuðningur til framhaldsskólanáms.
Unnið verði markvisst að leiðum til að styðja ungmenni á fræðsluskyldualdri, frá tekjulágum heimilum, við að mæta kostnaði við framhaldsskólanám.
Markmið: Að jafna tækifæri ungmenna frá tekjulágum heimilum til framhaldsskólanáms á við önnur ungmenni.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Fulltrúar skólastjórnenda í framhaldsskólum og Samband íslenskra framhaldsskólanema.
Tímabil: 2027–2031.
Mælikvarði: Tillögur að aðgerðum ásamt kostnaðarmati liggi fyrir.
4. Jafnt aðgengi barna að grunnþjónustu óháð efnahag fjölskyldu.
Kortlagður verði kostnaður sem kunni að hamla aðgengi barna frá tekjulágum heimilum að grunnþjónustu og metnar mögulegar leiðir til að draga úr fjárhagslegum hindrunum.
Markmið: Að afla upplýsinga um hvaða fjárhagslegu hindranir standi í vegi fyrir því að börn frá tekjulágum heimilum njóti grunnþjónustu og kanna mögulegar leiðir til úrbóta.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Félags- og húsnæðismálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og félagasamtök.
Tímabil: 2027–2029.
Mælikvarði: Kortlagning fjárhagslegra hindrana sem hamla aðgengi barna frá tekjulágum heimilum að grunnþjónustu liggi fyrir ásamt mati á mögulegum leiðum til að draga úr þeim.
5. Jafnt aðgengi og þátttaka barna óháð búsetu.
Kortlagður verði kostnaður og aðrar hindranir sem börn og barnafjölskyldur í dreifbýli og fámennum byggðarlögum kunna að standa frammi fyrir við að sækja grunn- og sérfræðiþjónustu, framhaldsskólanám, skipulagt frístundastarf og skólatengda viðburði. Á grundvelli niðurstaðna verði undirbúnar tillögur til úrbóta ef þær gefa tilefni til þess.
Markmið: Að afla upplýsinga um hvernig búseta hefur áhrif á kostnað, aðgengi að þjónustu, námsmöguleika og þátttöku barna frá tekjulágum heimilum, meta þörf og grundvöll fyrir úrbætur.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Félags- og húsnæðismálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, innviðaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga, Hagstofa Íslands, umboðsmaður barna og félagasamtök.
Tímabil: 2027–2029.
Mælikvarði: Kortlagning á búsetutengdum kostnaði og öðrum hindrunum sem hafa áhrif á aðgengi barna frá tekjulágum heimilum að þjónustu, námi og þátttöku liggi fyrir. Tillögur að úrbótum liggi fyrir ef niðurstöður kortlagningar gefa tilefni til þess.
Önnur stoð: Jöfn tækifæri til þátttöku.
6. Jafnt aðgengi barna að skipulögðu frístundastarfi óháð efnahag fjölskyldu.
Unnið verði að útfærslu aukins stuðnings við börn frá tekjulágum heimilum til þátttöku í skipulögðu frístundastarfi, í samstarfi við sveitarfélög og hlutaðeigandi aðila.
Markmið: Að draga úr fjárhagslegum og félagslegum hindrunum sem standa í vegi fyrir þátttöku barna í skipulögðu frístundastarfi, sérstaklega barna frá tekjulágum heimilum.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Fulltrúar frístundastarfs, svo sem ÍSÍ, UMFÍ, Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, sem og fulltrúar annars æskulýðs- og listastarfs, Samband íslenskra sveitarfélaga og umboðsmaður barna.
Tímabil: 2026–2031.
Mælikvarði: Hlutfall barna frá tekjulágum heimilum sem tekur þátt í skipulögðu frístundastarfi.
7. Samfélagslegur sáttmáli um að draga úr kostnaði við frístundastarf barna.
Ríkið, sveitarfélög og aðilar skipulagðs frístundastarfs vinni sameiginlega að aðgerðum sem miði að því að draga úr kostnaði vegna þátttöku barna í skipulögðu frístundastarfi. Horft verði sérstaklega til alls kostnaðar sem felst í þátttöku barna, svo sem vegna búnaðar, ferðalaga og mótagjalda.
Markmið: Að tryggja að kostnaður standi ekki í vegi fyrir þátttöku barna frá tekjulágum heimilum í skipulögðu frístundastarfi.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Fulltrúar frístundastarfs, svo sem ÍSÍ, UMFÍ, Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, sem og fulltrúar annars æskulýðs- og listastarfs, Samband íslenskra sveitarfélaga og umboðsmaður barna.
Tímabil: 2027–2028.
Mælikvarði: Samfélagslegur sáttmáli ríkis, sveitarfélaga og aðila skipulagðs frístundastarfs um að halda kostnaði vegna frístundastarfs barna í lágmarki hafi verið samþykktur og innleiddur.
8. Nýsköpun og fjölbreyttar leiðir til að auka þátttöku barna.
Komið verði á fót sérstökum hvata- og nýsköpunarsjóði sem styðji við nýsköpun og fjölbreytt úrræði til að auka þátttöku barna frá tekjulágum heimilum í skipulögðu frístundastarfi. Byggt verði á reynslu af starfsemi hvatasjóðs íþróttahreyfingarinnar.
Markmið: Að auka þátttöku barna frá tekjulágum heimilum í skipulögðu frístundastarfi með því að styðja við þróun og innleiðingu nýrra og fjölbreyttra leiða sem dragi úr fjárhagslegum og félagslegum hindrunum sem standa í vegi fyrir þátttöku þeirra.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Fulltrúar frístundastarfs, svo sem ÍSÍ, UMFÍ, Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, sem og fulltrúar annars æskulýðs- og listastarfs, Samband íslenskra sveitarfélaga og umboðsmaður barna.
Tímabil: 2027–2031.
Mælikvarði: Sjóðurinn hafi verið stofnaður.
9. Þátttaka í skólatengdum viðburðum.
Mótaðar verði tillögur um hvernig draga megi úr kostnaði vegna viðburða á vegum grunnskóla og tryggja þátttöku nemenda, óháð efnahag, í nánu samstarfi við hagaðila.
Markmið: Að stuðla að jöfnum tækifærum nemenda til þátttöku í skólatengdu starfi á vegum grunnskóla, óháð efnahag fjölskyldna.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Heimili og skóli, foreldrafélög, Samband íslenskra sveitarfélaga, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Kennarasamband Íslands, Skólastjórafélag Íslands, Grunnur – félag forstöðumanna skólaskrifstofa, umboðsmaður barna, UMFÍ, KFUM og KFUK, skátahreyfingin.
Tímabil: 2027–2028.
Mælikvarði: Tillögur og samræmdar leiðbeiningar liggi fyrir og hafi verið kynntar viðeigandi hagaðilum.
Þriðja stoð: Heildstæð og samþætt þjónusta.
10. Ráðgjöf um réttindi og stuðning.
Aðgengi barnafjölskyldna í framfærsluvanda að ráðgjöf um réttindi og stuðning verði eflt.
Markmið: Að tryggja að barnafjölskyldur í framfærsluvanda hafi greiðan aðgang að upplýsingum, ráðgjöf og stuðningi um réttindi og úrræði.
Ábyrgð: Félags- og húsnæðismálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Umboðsmaður skuldara, Tryggingastofnun ríkisins, Samband íslenskra sveitarfélaga, félagasamtök og mennta- og barnamálaráðuneyti.
Tímabil: 2027–2031.
Mælikvarði: Verklag fyrir ráðgjöf og upplýsingamiðlun fyrir barnafjölskyldur í framfærsluvanda hafi verið skilgreint og innleitt.
11. Samráðshópur foreldra og forsjáraðila með reynslu af fátækt.
Settur verði á fót samráðshópur foreldra og forsjáraðila með reynslu af fátækt. Hlutverk hópsins verði að koma á framfæri ábendingum og sjónarmiðum til stjórnvalda um stuðning við tekjulágar barnafjölskyldur. Samráðshópurinn hafi reglulegt samráð við hlutaðeigandi ráðuneyti.
Markmið: Að efla formlegt og virkt samráð við foreldra og forsjáraðila með reynslu af fátækt.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Félags- og húsnæðismálaráðuneyti og félagasamtök.
Tímabil: 2027–2031.
Mælikvarði: Samráðshópur hafi verið settur á fót og reglulegt samráð hafið við hlutaðeigandi ráðuneyti.
Fjórða stoð: Skýrar mælingar og gagnreynd stefnumótun.
12. Opinber skilgreining á fátækt barna á Íslandi.
Mótuð verði opinber skilgreining á fátækt barna á Íslandi.
Markmið: Að skapa sameiginlegt og skýrt viðmið um fátækt barna á Íslandi sem nýtist við greiningu, stefnumótun og eftirfylgni.
Ábyrgð: Mennta-og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Félags- og húsnæðismálaráðuneyti, Hagstofa Íslands, háskólasamfélagið, félagasamtök og samráðshópur foreldra og forsjáraðila með reynslu af fátækt.
Tímabil: 2027.
Mælikvarði: Opinber skilgreining á fátækt barna hafi verið mótuð, samþykkt og birt opinberlega.
13. Mælanleg markmið um að draga úr fátækt meðal barna.
Sett verði fram mælanleg markmið um að draga úr fátækt meðal barna. Við mótun markmiðanna verði m.a. litið til tekna, framfærslukostnaðar og þátttöku barna í samfélaginu. Jafnframt verði framfærsluviðmið og mat á kostnaði vegna barna kortlögð og komið á reglulegri eftirfylgni með þróun og árangri aðgerða.
Markmið: Að tryggja að mælanleg markmið um að draga úr fátækt meðal barna liggi fyrir eigi síðar en árið 2027.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Stýrihópur Stjórnarráðsins í málefnum barna, Samband íslenskra sveitarfélaga, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Hagstofa Íslands og háskólasamfélagið.
Tímabil: 2027.
Mælikvarði: Mælanleg markmið um að draga úr fátækt meðal barna hafi verið sett fram og birt, kostnaður og framfærsluviðmið vegna barna hafi verið kortlögð og fyrirkomulag reglulegrar eftirfylgni liggi fyrir, m.a. með skýrslugjöf til Alþingis.
14. Gagnreyndar aðgerðir til að takast á við fátækt barna.
Tryggð verði reglubundin og kerfisbundin öflun þekkingar á því hvaða aðgerðir skila árangri við að draga úr fátækt barna og rjúfa vítahring fátæktar. Þekkingaröflunin byggist á íslenskum gögnum og rannsóknum, reglubundnu mati á árangri aðgerða og samstarfi við önnur norræn ríki um miðlun gagnreyndra aðferða.
Markmið: Að tryggja að íslensk stjórnvöld búi hverju sinni yfir nýjustu og bestu þekkingu á gagnreyndum leiðum til að draga úr fátækt barna.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Norræna velferðarmiðstöðin, Samband íslenskra sveitarfélaga, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, háskólasamfélagið og aðilar vinnumarkaðarins.
Tímabil: 2027–2031.
Mælikvarði: Komið hafi verið á reglubundnu fyrirkomulagi við öflun, mat og miðlun þekkingar um gagnreyndar aðgerðir gegn fátækt barna.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.