Ferill 103. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 320  —  103. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega og sjúkra- og endurhæfingargreiðslur.

     1.      Hver var fjöldi einstaklinga sem fengu annars vegar örorkulífeyri og hins vegar endurhæfingarlífeyri/sjúkra- og endurhæfingargreiðslur á hverju ári 2015–2026, sundurliðað eftir aldurshópunum 18–19, 20–24, 25–29, 30–34, 35–39, 40–49, 50–59 og 60–66 ára?
    Í töflu 1 í fylgiskjali I má sjá upplýsingar um fjölda einstaklinga sem fékk annars vegar greiddan örorkulífeyri/hlutaörorkulífeyri og hins vegar endurhæfingarlífeyri/sjúkra- og endurhæfingargreiðslur á hverju ári á tímabilinu 2015–2026, greint eftir umbeðnum aldurshópum. Í töflunni er miðað við aldur einstaklinga 1. janúar ár hvert.

     2.      Hvert var nýgengi örorku og endurhæfingar í hverjum þessara aldurshópa hvert ár, bæði sett fram sem fjöldi og hlutfall af mannfjölda sama aldurs?
    Í töflu 2 í fylgiskjali I má sjá upplýsingar um nýgengi í tengslum við greiðslu örorkulífeyris/hlutaörorkulífeyris og endurhæfingarlífeyris/sjúkra- og endurhæfingargreiðslur á hverju ári á tímabilinu 2015–2026, greint eftir fjölda einstaklingar í umbeðnum aldurshópum sem og hlutfall af mannfjölda í sömu aldurshópum. Í töflunni er miðað við aldur einstaklinga 1. janúar ár hvert.

     3.      Hver voru útgjöld ríkissjóðs vegna örorku og endurhæfingar í hverjum framangreindum aldurshópi eftir árum?

    Í töflu 3 í fylgiskjali I má sjá upplýsingar um útgjöld ríkissjóðs vegna örorkulífeyris/ hlutaörorkulífeyris og endurhæfingarlífeyris/sjúkra- og endurhæfingargreiðslna til einstaklinga á hverju ári á tímabilinu 2015–2026, greint eftir umbeðnum aldurshópum. Í töflunni er miðað við aldur einstaklinga 1. janúar ár hvert.

     4.      Hvernig skiptust örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar eftir aðalgreiningu, einkum geðröskunum, stoðkerfissjúkdómum, taugasjúkdómum og öðrum helstu flokkum, sundurliðað eftir aldurshópi og árum?

    Í töflu 1 í fylgiskjali II má sjá upplýsingar um fjölda endurhæfingarlífeyrisþega á hverju ári á tímabilinu 2015–2026, greint eftir aðalgreiningu og umbeðnum aldurshópum. Í töflunni er miðað við aldur einstaklinga 1. janúar ár hvert.
    Í töflu 2 í fylgiskjali II má sjá upplýsingar um fjölda örorkulífeyrisþega/hlutaörorkulífeyrisþega á hverju ári á tímabilinu 2015–2026, greint eftir aðalgreiningu og umbeðnum aldurshópum. Í töflunni er miðað við aldur einstaklinga 1. janúar ár hvert. Fjöldi einstaklinga sem fengið hefur hlutaörorkulífeyri eftir 1. september 2025 er talinn með í heildarfjölda örorkulífeyrisþega.

     5.      Hver var fjöldi örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega eftir ríkisfangi og fyrsta skráða ríkisfangi/uppruna hvert ár 2015–2026, sundurliðað jafnframt eftir aldurshópi? Óskað er eftir að hlutfall innan hvers hóps sé reiknað miðað við mannfjölda sama aldurs og bakgrunns.

    Í töflu 1 í fylgiskjali III má sjá upplýsingar um fjölda örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega eftir fyrsta skráða ríkisfangi/uppruna á tímabilinu 2015–2026, greint eftir umbeðnum aldurshópum. Einnig er að finna upplýsingar um hlutfall viðkomandi einstaklinga af heildarfjölda einstaklinga frá sömu ríkjum í sömu aldurshópum sem búsettir voru á Íslandi 1. janúar ár hvert og birtast þær upplýsingar í sviga við hverja fjöldatölu.
    Í töflu 2 í fylgiskjali III má sjá upplýsingar um fjölda örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega á tímabilinu 2015–2026 eftir núverandi ríkisfangi, greint eftir umbeðnum aldurshópum og árum. Einnig er að finna upplýsingar um hlutfall viðkomandi einstaklinga af heildarfjölda einstaklinga frá sömu ríkjum í sömu aldurshópum sem búsettir voru á Íslandi 1. janúar ár hvert og birtast þær upplýsingar í sviga við hverja fjöldatölu.
    Einstaklingar sem eru færri en 9 í hverjum flokki eru taldir saman í einum hóp.

     6.      Hvernig skýrir ráðherra sérstaklega þá miklu fjölgun sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþega sem fjárlaganefnd segir að hafi hafist um mitt ár 2023 og hvaða greining liggur nú þegar fyrir á orsökum hennar? Hver er útkomuspá 2026 um fjölda greiðsluþega og útgjöld samanborið við samþykkt fjárlög ársins?

    Telja verður að fjölgun einstaklinga sem fá endurhæfingarlífeyri (nú sjúkra- og endurhæfingargreiðslur) frá árinu 2023 verði ekki skýrð með einum tilteknum þætti. Fjölgunin hefur verið stöðug frá því um 2016, þegar byrjað var að leggja aukna áherslu á að endurhæfing væri fullreynd áður en til mats á örorku kæmi, ef frá er talið tímabil heimsfaraldurs kórónuveirunnar þar sem enginn vöxtur varð en gera má ráð fyrir að ástæða þess hafi verið minna aðgengi að endurhæfingarþjónustu vegna samkomutakmarkana. Þá má rekja umrædda fjölgun að einhverju leyti til fjölgunar íbúa á vinnualdri hér á landi sem og aukins fjölda úrræða, svo sem á vegum geðheilsuteyma heilsugæslunnar. Þá kann að vera að í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru hafi komið fram uppsöfnuð þörf fyrir þjónustu. Tímabil greiðslna samkvæmt lögum um almannatryggingar hefur jafnframt tekið breytingum undanfarin ár og má merkja áhrif þess en það hefur verið lengt þrisvar sinnum frá árinu 2020 eða í 3 ár 2020, í 5 ár 2023 og í 7 ár 2025.
    Útkomuspá ársins 2026 gerir ráð fyrir að um 10.400 einstaklingar muni fá sjúkra- og endurhæfingargreiðslur á árinu 2026. Þegar litið er til útgjalda samanborið við samþykkt fjárlög fyrir árið 2026 má gera ráð fyrir neikvæðri stöðu sjúkra- og endurhæfingargreiðslna um 4,9 ma.kr.

Fylgiskjal I.

www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0320-f_I.pdf


Fylgiskjal II.


www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0320-f_II.pdf

Fylgiskjal III.

www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0320-f_III.pdf