Ferill 288. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 323 — 288. mál.
Fyrirspurn
til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um sýningu í Náttúruhúsi í Nesi og framtíðarskipan Náttúruminjasafns Íslands.
Frá Ingibjörgu Isaksen.
1. Stendur áætlun um að opna sýningu Náttúruminjasafns Íslands í Náttúruhúsi í Nesi árið 2027, sem ráðherra kynnti 10. júní 2026, og við hvaða opnunardag er miðað? Hver er staða undirbúnings og hverjir eru helstu áfangar fram að opnun? Óskað er eftir tímasettri verkáætlun.
2. Hver er áætlaður heildarkostnaður við uppsetningu sýningarinnar og hvaða fjármunir hafa verið tryggðir til hennar? Hvaða fjármunir eru áætlaðir til árlegs rekstrar, þar á meðal vegna starfsfólks og fræðslu fyrir skólahópa?
3. Hvað stendur í vegi fyrir því að Náttúruhús í Nesi verði afhent Náttúruminjasafni Íslands til afnota og hvenær er áætlað að safnið fái húsið til umráða? Hvaða verkþáttum eða skilyrðum þarf að ljúka áður en afhending getur farið fram og hver ber ábyrgð á að fylgja þeim eftir? Getur safnið hafið nýtingu hússins að hluta áður en sýningin verður opnuð?
4. Er opnun sýningarinnar háð framgangi fyrirhugaðrar sameiningar stofnananna eða lagabreytingum vegna hennar? Hvernig verður tryggt að breytingar á stofnanafyrirkomulagi tefji ekki opnun?
5. Hvaða tillögur að breytingum á lögum vegna sameiningarinnar eru fyrirhugaðar og hvenær verða þær lagðar fyrir Alþingi? Verður Náttúruminjasafn Íslands áfram skilgreint í lögum sem eitt af höfuðsöfnum Íslands?
6. Hvernig verður ábyrgð á höfuðsafnshlutverki Náttúruminjasafns Íslands háttað við fyrirhugaða stofnanabreytingu? Hvernig verða lögbundin hlutverk safnsins, faglegt sjálfstæði þess og tengsl við önnur höfuðsöfn og stjórnsýslu safnamála tryggð?
7. Hvaða stjórnfyrirkomulag er fyrirhugað fyrir safnið innan sameinaðrar stofnunar? Verður það með sérstaka stjórn eða faglega yfirstjórn og hvaða vald mun hún hafa yfir stefnumótun, fjármunum, ráðningum starfsfólks og safnastarfi?
8. Hvaða breytingar eru fyrirhugaðar á störfum, fjölda stöðugilda og starfsaðstöðu starfsfólks Náttúruminjasafns Íslands? Hvernig verður tryggt að safnið búi yfir þeirri sérþekkingu og mannafla sem þarf til að sinna höfuðsafnshlutverki sínu og reka sýninguna í Náttúruhúsi í Nesi?
9. Hvernig verður húsnæðismálum safnsins háttað eftir sameiningu, bæði hvað varðar sýningar og fræðslu, skrifstofur og vinnuaðstöðu, varðveislu safnkosts og rannsóknir? Hvaða ákvarðanir hafa þegar verið teknar þar að lútandi?
10. Hvaða samráð fór fram áður en ákvörðun um að vinna að sameiningunni var tilkynnt og hvaða samráð er fyrirhugað við frekari undirbúning hennar? Óskað er upplýsinga um aðkomu starfsfólks, stjórnenda Náttúruminjasafns Íslands, safnaráðs og annarra hlutaðeigandi, helstu sjónarmið þeirra og hvernig tekið hefur verið tillit til þeirra.
Skriflegt svar óskast.