Ferill 289. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 324  —  289. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um aldur lögreglumanna, starfsaldur, brotthvarf úr starfi og nýliðun.

Frá Sigurði Erni Hilmarssyni.


     1.      Hver var aldursdreifing lögreglumanna 1. september 2026, sundurliðuð eftir lögregluembættum og aldursbilunum 20–29 ára, 30–39 ára, 40–49 ára, 50–59 ára og 60 ára og eldri, og hver var meðalaldur þeirra? Óskað er eftir því að greint verði á milli lögreglumanna sem lokið hafa formlegri lögreglumenntun og þeirra sem ekki hafa lokið formlegri lögreglumenntun.
     2.      Hver var dreifing starfsaldurs lögreglumanna 1. september 2026, sundurliðað eftir lögregluembættum og eftir því hvort starfsaldur var skemmri en 5 ár, 5–9 ár, 10–19 ár eða 20 ár eða lengri? Óskað er eftir því að greint verði á milli lögreglumanna sem lokið hafa formlegri lögreglumenntun og þeirra sem ekki hafa lokið formlegri lögreglumenntun.
     3.      Hversu margir lögreglumenn hættu störfum ár hvert árin 2016–2025, sundurliðað eftir lögregluembættum, eftir því hvort um var að ræða starfslok vegna töku eftirlauna eða af öðrum ástæðum og eftir því hvort starfsaldur í lögreglu við starfslok var skemmri en 5 ár, 5–9 ár, 10–19 ár eða 20 ár eða lengri? Óskað er eftir því að greint verði á milli lögreglumanna sem lokið hafa formlegri lögreglumenntun og þeirra sem ekki hafa lokið formlegri lögreglumenntun.
     4.      Hverjar eru helstu ástæður þess að lögreglumenn hætta störfum og nefndar eru m.a. í starfslokaviðtölum og könnunum?
     5.      Hversu margir lögreglumenn ná 65 ára eftirlaunaaldri árin 2027–2031, sundurliðað eftir lögregluembættum?
     6.      Hver var fjöldi verkefna sem skráð voru í málaskrá lögreglu ár hvert árin 2009–2025 og fjöldi skráðra verkefna á hvern lögreglumann, sundurliðað eftir lögregluumdæmum miðað við núverandi umdæmaskipan?
     7.      Hver eru áform ráðherra um nýliðun í lögreglu, þ.m.t. um fjölda nemenda sem verða teknir í lögreglunám, og hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar til að draga úr brotthvarfi lögreglumanna úr starfi?
     8.      Hver eru áform ráðherra um starfsþjálfun nýliða, símenntun og sérhæfða þjálfun lögreglumanna? Hvernig verður fjármögnun þessa tryggð?


Skriflegt svar óskast.


Greinargerð.

    Ekki er óskað eftir upplýsingum sem þegar liggja fyrir heldur upplýsingum sem gera það kleift að meta þróun aldurs, starfsaldurs og brotthvarfs lögreglumanna úr starfi og álag á lögreglu, m.a. til samanburðar við svar á þskj. 1777 á 145. löggjafarþingi, þskj. 1524 á 157. löggjafarþingi og þskj. 1263 á 150. löggjafarþingi.