Ferill 196. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 325  —  196. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur um farnetsþjónustu eftir útfösun 2G- og 3G-netkerfa.


     1.      Hefur ráðherra fengið og brugðist við kvörtunum eða ábendingum um skert farsímasamband í kjölfar útfösunar 2G- og 3G-farnetskerfa?
    Endanleg lokun 2G-farneta fór fram um áramótin 2025/2026 og 3G-netum var lokað í júní 2026. Frá áramótum hafa borist örfá erindi til ráðuneytisins sem fela í sér kvartanir eða ábendingar í tengslum við lokunina. Meiri hluti þeirra snýr að endabúnaði sem ekki virkar eftir lokunina en eitt þeirra varðar ábendingar um verra farnetssamband.
    Viðbrögð ráðuneytisins voru þau að óska eftir skýrslu Fjarskiptastofu um málið í heild. Stofnunin skilaði skýrslu um málið um miðjan september sl., þar sem farið var ítarlega yfir stöðu málsins og þær mótvægisaðgerðir sem eru í gangi.
    Í skýrslunni kemur meðal annars fram að þeim handtækjum sem ekki eru hæf til að framkvæma neyðarsímtöl hefur farið mjög hratt fækkandi og er vinna við að fækka þeim enn í gangi. Í október sl. sendi Fjarskiptastofa tilmæli til farnetsfyrirtækja um að loka á handtæki sem eru ekki hæf til að framkvæma neyðarsímtöl, með vísun í 96. gr. laga um fjarskipti, nr. 70/2022, og koma þannig í veg fyrir falskt öryggi hjá notendum. Mælst var til þess að lokun á tækin færi fram eigi síðar en 15. nóvember nk. að undangengnum a.m.k. tveimur tilkynningum í tækin um fyrirhugaða lokun.
    Enn fremur kemur fram í áðurnefndri skýrslu að Fjarskiptastofa hafi fengið Rohde & Schwarz, þýskt fyrirtæki sem m.a. sérhæfir sig í útbreiðslumælingum, til þess að gera umfangsmiklar mælingar til samanburðar á útbreiðslu farnetsþjónustu fyrir og eftir lokun 2G og 3G. Búist er við að úrvinnslu mælinga verði lokið í desember nk.

     2.      Hefur ráðherra íhugað hvort tilefni sé til aðkomu hins opinbera með skattalegum hvötum til að styrkja uppbyggingu og rekstur almennrar fjarskiptaþjónustu með einhverjum hætti á svæðum þar sem getur ríkt markaðsbrestur og farnetsþjónusta verið skert?
    Verulegar útbreiðslukvaðir hvíla á farnetsfyrirtækjum samkvæmt ákvæðum tíðniheimilda og skal útbreiðsla farnetsþjónustu ná til 99% heimila og vinnustaða, með stigvaxandi gagnaflutningshraða á komandi árum.
    Önnur krafa samkvæmt tíðniheimildum er að tíðnirétthafi skuli „tryggja að þjónusta hans verði ekki lakari hvað varðar útbreiðslu farneta á landmassa Íslands og á hafinu kringum landið miðað við 1. janúar 2023. Skal þess sérstaklega gætt við lokun eldri kynslóða farneta að hvorki verði skerðing á þjónustu né útbreiðslu.“
    Varðandi mögulega skerðingu á farnetsþjónustu við lokun 2G og 3G eru næstu skref að fá niðurstöður úr samanburðarmælingum og er það í höndum Fjarskiptastofu að meta hvort farnetsfyrirtækin hafi uppfyllt sínar skyldur samkvæmt tíðniheimildum og krefjast úrbóta eftir atvikum.
    Hvað varðar staði þar sem markaðsbrestur hefur hamlað útbreiðslu farneta, þá ber að geta þess að í gangi er verkefni sem snýr að því að útbreiðsla verði því sem næst óslitin á öllum stofnvegum eigi síðar en í árslok 2028, en verkefni þetta er unnið af farnetsfyrirtækjum samkvæmt skilmálum í tíðniheimildum sem gefnar voru út árið 2023.
    Innviðaráðuneytið hefur í tilteknum tilfellum styrkt uppbyggingu sendastaða þar sem markaðsbrestur hefur hamlað uppbyggingu og talið hefur verið sérstaklega mikilvægt að bæta samband af öryggisástæðum. Nýjasta dæmið um slíkt er undirbúningur fyrir uppbyggingu sendastaðar í vestanverðri Borgarbyggð.
    Almennar stuðningsaðgerðir ríkisins í formi skattalegra hvata vegna útbreiðslu farneta á landsvísu hafa ekki verið til athugunar.

     3.      Hefur ráðherra í hyggju að láta framkvæma heildaráhættumat á fjarskiptasambandi og neyðarþjónustu á landinu öllu í kjölfar útfösunarinnar?
    Í fyrrnefndri skýrslu Fjarskiptastofu er gerð grein fyrir hugsanlegum áhættum vegna lokunar. Þar kemur einnig fram lýsing á áhættumati sem farnetsfyrirtæki var gert að framkvæma samkvæmt fyrirmælum Fjarskiptastofu. Í skýrslunni kemur enn fremur fram, í kafla um næstu skref, að Fjarskiptastofa hyggist ljúka heildarmati á áhættu vegna útfösunar.
    Þegar það mat liggur fyrir ásamt niðurstöðum samanburðarmælinga á útbreiðslu verður metið hvort þörf sé á frekari aðgerðum.