Ferill 212. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 333  —  212. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Rósu Guðbjartsdóttur um stöðu farsældarlaga.


     1.      Hefur ráðuneytið greint eða metið stöðu á innleiðingu laga nr. 86/2021, um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna?
    Já. Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur, í samstarfi við Barna- og fjölskyldustofu og fleiri aðila, greint stöðu innleiðingar laga nr. 86/2021, um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Greiningin tekur meðal annars til framvindu innleiðingar, reynslu þjónustunotenda og þjónustuveitenda, málafjölda, kostnaðar og hindrana í framkvæmd.
    Ráðuneytið samdi við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands um rannsókn til að leggja grunn að mati á árangri laganna. Niðurstöðurnar voru kynntar á farsældarþingi í september 2023. Þá kallaði ráðuneytið árlega eftir upplýsingum frá sveitarfélögum um stöðu innleiðingar farsældar, málafjölda og kostnað viðkomandi sveitarfélaga vegna innleiðingar á lögunum á fyrstu þremur árum innleiðingarinnar. Þá var einnig óskað eftir upplýsingum um hverjar væru algengustu áskoranirnar við innleiðingu laganna. Upplýsingar fengust frá 50 sveitarfélögum, þar sem bjuggu 97% landsmanna.
    Á grundvelli framangreindra upplýsinga, auk niðurstaðna úr áðurnefndri rannsókn Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, gaf ráðuneytið út stöðuskýrslu til ráðherra á þriðja ári innleiðingar um innleiðingu laganna, í maí 2024. Ráðuneytið hefur einnig þróað mælaborð um farsæld barna, sem byggist að stórum hluta á Íslensku æskulýðsrannsókninni. Við uppfærslu þess í apríl 2026 urðu aðgengilegar samfelldar upplýsingar um stöðu barna árin 2023–2025. Gögnin styðja við greiningu á líðan og aðstæðum barna og forgangsröðun aðgerða, en sýna ekki ein og sér áhrif farsældarlaganna.
    Í haust lagði mennta- og barnamálaráðherra fram þingsályktunartillögu um stefnu og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna (75. mál). Aðgerð 16 um árangur af fyrstu fimm árum samþættrar þjónustu felur í sér mat á innleiðingu og framkvæmd laganna frá gildistöku þeirra. Byggt verður á fyrirliggjandi gögnum og frekari rannsóknum eða upplýsingum eftir þörfum.
    Þess má að lokum geta að Barna- og fjölskyldustofa safnar reglulega upplýsingum frá tengiliðum og málstjórum og hefur birt samantektir fyrir árin 2025 og 2026 um umfang samþættrar þjónustu og þróun.

     2.      Telur ráðherra að niðurskurður til málaflokksins um 1,1 milljarð samræmist samkomulagi um að ríkið tryggi sveitarfélögum fjármagn meðan á innleiðingu laganna stendur í ljósi þess að mat ríkisendurskoðanda í stjórnsýsluúttekt frá júní 2026 er að innleiðingunni sé ekki lokið?
    Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er gert ráð fyrir að tímabundið viðbótarframlag til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna innleiðingar laga nr. 86/2021, að fjárhæð 1,1 milljarður kr., falli niður. Framlaginu var ætlað að styðja sveitarfélög við að koma á nýju skipulagi vegna innleiðingar laganna. Tillagan um að fella niður viðbótarframlagið byggist á því að fimm ár verða liðin frá gildistöku laga nr. 86/2021 og áætluðu tímabili innleiðingarfjármögnunar lokið.
    Næsti áfangi felur í sér að stytta biðlista og efla sérhæfða þjónustu og úrræði fyrir börn með fjölþættan vanda. Auknu fjármagni er því beint til Barna- og fjölskyldustofu, Ráðgjafar- og greiningarstöðvar og annarrar sérhæfðrar þjónustu. Í fjárlagafrumvarpinu er þannig gert ráð fyrir 350 millj. kr. aukningu til styttingar biðlista barna, 800 millj. kr. aukningu til þjónustu við börn með fjölþættan vanda og verulega auknum stuðningi við Barna- og fjölskyldustofu upp á 1,4 milljarða kr., en 400 millj. kr. af því fjármagni er ætlað sérstaklega börnum í viðkvæmri stöðu. Þá er gert ráð fyrir að 700 millj. kr. renni til innleiðingarverkefna, þar með talið í framhaldsskólum og heilbrigðiskerfinu, og til styrkja til verkefna sem stuðla að snemmtækri íhlutun hjá sveitarfélögum.
    Þess má einnig geta að áðurnefndri þingsályktunartillögu um stefnu og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna ætlað að styðja áframhaldandi innleiðingu laganna með áherslu á að stytta biðlista, bæta þjónustufarvegi og efla ráðgjöf, fræðslu og handleiðslu fyrir sveitarfélög. Áætlunin er að fullu fjármögnuð en heildarkostnaður er 820,2 millj. kr. Að auki auglýsti ráðuneytið nýverið eftir umsóknum frá sveitarfélögum til að efla farsæld barna. Alls er um að ræða 474 millj. kr. sem verður úthlutað til verkefna.
    Framangreindar áherslur samræmast ábendingum Ríkisendurskoðunar um að efla þjónustuinnviði, skilgreina mælikvarða og forgangsraða aðgerðum sem eiga að auka farsæld barna. Áréttað er að þrátt fyrir niðurfellingu áðurnefnds viðbótarframlags berst fjármagn til sveitarfélaganna vegna laga nr. 86/2021 með öðrum leiðum og telur ráðherra því ekki að um niðurskurð til málaflokksins sé að ræða hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu.

     3.      Hyggst ráðherra bregðast við þeim áhyggjum sem berast frá sveitarfélögum um að innleiðingarferlið sé sett í uppnám með þessum niðurskurði? Ef svo er, hvernig?
    Ráðherra tekur áhyggjur sveitarfélaga alvarlega og er í virku samtali við fulltrúa þeirra um áhrif fyrirhugaðrar niðurfellingar framlags Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á innleiðingu laga nr. 86/2021.

     4.      Hefur ráðuneytið brugðist við þeim ábendingum ríkisendurskoðanda sem er að finna í úttektinni? Ef svo er, hvernig?
    Ráðuneytið hefur gripið til ýmissa ráðstafana til að bregðast við ábendingum Ríkisendurskoðunar. Mennta- og barnamálaráðherra hefur sem áður segir lagt fram þingsályktunartillögu um stefnu og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Í áætluninni eru m.a. aðgerðir til að bregðast við ábendingum Ríkisendurskoðunar. Þá hefur ráðuneytið einnig brugðist við með öðrum hætti líkt og nánar er gerð grein fyrir í eftirfarandi umfjöllun.
    Fyrsta ábending Ríkisendurskoðunar sneri að þörfinni á að bæta yfirsýn yfir stöðu barna og greina hvaða hindranir koma í veg fyrir að börn og forsjáraðilar fái þjónustu við hæfi þegar þörf er á henni. Í áðurnefndri þingsályktunartillögu er brugðist við þeirri ábendingu annars vegar með aðgerð 7 í framkvæmdaáætluninni sem felur í sér greiningu á því hvað helst skortir í þjónustu og stuðningi við börn, ásamt kortlagningu biðlista eftir lögbundinni þjónustu fyrir börn. Jafnframt er brugðist við ábendingunni með aðgerð 10 sem snýr að því að rýna þjónustufarvegi og gera tillögur að skilvirkari leiðum til að veita börnum þjónustu. Að auki er gert ráð fyrir 350 millj. kr. aukningu til styttingar biðlista barna í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2027.
    Önnur ábending Ríkisendurskoðunar fjallaði um að skilgreina hlutlæga árangursmælikvarða sem fylgt er eftir reglulega. Aðgerð 16 í áðurnefndri framkvæmdaáætlun beinist að þessari ábendingu. Aðgerðin felur í sér að meta árangur fyrstu fimm áranna og nýta niðurstöðurnar eftir atvikum til að móta tillögur að úrbótum. Markmiðið með aðgerðinni er að undirbyggja ákvarðanatöku og forgangsröðun við áframhaldandi innleiðingu laganna.
    Þriðja ábending Ríkisendurskoðunar sneri að því að sett verði á laggirnar stafrænt kerfi um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Umtalsverð vinna hefur þegar farið fram við þróun stafrænna lausna og má þar sérstaklega nefna nemendagrunn sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur umsjón með. Þá skilaði stýrihópur mennta- og barnamálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um samhæfða stafræna innviði í þágu farsældar barna nýverið niðurstöðum um sameiginlega framtíðarsýn ráðuneytisins og sambandsins um öflun og nýtingu gagna og stafræna þróun í málefnum barna. Í framkvæmdaáætluninni í áðurnefndri þingsályktunartillögu er jafnframt aðgerð um samfellda miðlun upplýsinga í þágu farsældar barna sem bregst einnig við þessari ábendingu. Markmið aðgerðarinnar er að samræma skráningu og tryggja að nauðsynlegum upplýsingum um barn í samþættri þjónustu sé miðlað á öruggan hátt milli þjónustuveitenda og að þær séu þeim aðgengilegar.
    Fjórða ábending Ríkisendurskoðunar fólst í því að skýra þurfi aðkomu veitenda almennrar þjónustu. Ráðuneytið tekur undir ábendingu Ríkisendurskoðunar um að skýra megi betur hvernig veitendur almennrar þjónustu geti komið að teymisvinnu. Aðilum sem veita almenna þjónustu er þó ekki skylt að taka þátt í samþættingu. Árið 2023 gaf Barna- og fjölskyldustofa út leiðbeiningar fyrir almenna þjónustuveitendur um aðkomu þeirra að stuðningsteymum. Þá er fyrirhugað að leggja mat á árangur af innleiðingu samþættrar þjónustu fyrstu fimm árin frá því að lögin voru samþykkt og verður horft sérstaklega til fyrrnefndrar ábendingar við matið.
    Fimmta ábending Ríkisendurskoðunar sneri að því að efla þurfi þjónustuinnviði. Ráðuneytið hefur brugðist við þeirri ábendingu eins og rakið er í svari við 2. tölul. fyrirspurnarinnar. Þá eru jafnframt aðgerðir í þingsályktunartillögunni sem styðja við eflingu þjónustuinnviða með endurskoðun þjónustufarvega og greiningu á biðlistum. Aðgerð 7 í framkvæmdaáætluninni snýr að biðlistum og því hvernig hægt sé að stytta biðina eftir þjónustu. Aðgerð 10 snýr að því að gera þjónustu fyrir börn með taugaþroskaraskanir skilvirkari. Þá mun aðgerð 9 styðja við eflingu þjónustuinnviða þar sem þjónustuveitendur munu hafa betri yfirsýn yfir þau úrræði og þá þjónustu sem börnum standa til boða.
    Sjötta ábending Ríkisendurskoðunar snýr að endurskoðun fyrirkomulags og skipulags vímuefnameðferðar barna og ungmenna. Brugðist hefur verið við ábendingunni með starfi stýrihóps undir forystu forsætisráðherra sem hefur verið falið að móta og innleiða heildrænt og samþætt þjónustufyrirkomulag sem tryggi samfellu í þjónustu, meðferð og endurhæfingu fyrir þennan hóp barna. Í stýrihópnum eru fulltrúar frá forsætisráðuneytinu, heilbrigðisráðuneytinu og mennta- og barnamálaráðuneytinu.
    Ráðuneytið hefur tekið ábendingum Ríkisendurskoðunar alvarlega og hafið vinnu við að bregðast við þeim með það að markmiði að bæta enn frekar framkvæmd laganna og tryggja börnum og fjölskyldum þeirra þjónustu við hæfi.