Ferill 297. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 336  —  297. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um Herjólf III og Herjólf IV.

Frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur.


     1.      Telur ráðherra að afkastageta Breiðafjarðarferjunnar Baldurs sé nægjanleg til að leysa Herjólf IV af hólmi þegar hann bilar eða fer í slipp? Hvaða gögn liggja til grundvallar því mati?
     2.      Hver er afstaða ráðherra til þess að Herjólfur III verði varanlegt varaskip fyrir Herjólf IV, í stað Breiðafjarðarferjunnar Baldurs, þar til ný Vestmannaeyjaferja hefur verið smíðuð?
     3.      Hvar verður Herjólfur III við bryggju veturinn 2026–2027?
     4.      Ef vilji ráðherra stendur til þess að Herjólfur III verði varaskip fyrir Herjólf IV, verður hann þá staðsettur í Vestmannaeyjum veturinn 2026–2027? Hvernig verður tryggt að skipið geti sinnt hlutverki sínu sem varaskip og hvernig verður rekstur þess fjármagnaður?
     5.      Hvernig hyggst ráðherra tryggja öruggar samgöngur til og frá Vestmannaeyjum til framtíðar?


Skriflegt svar óskast.


Greinargerð.

    Hinn 10. ágúst 2026 óskaði Vestmannaeyjabær eftir formlegum viðræðum við Vegagerðina um stöðu Herjólfs III og fyrirkomulag samgangna til Vestmannaeyja fyrir veturinn 2026– 2027. Jafnframt óskaði bæjarfélagið eftir formlegri afstöðu stjórnvalda að viðræðunum loknum. Í erindinu kom fram að yfirlýsingar fulltrúa ríkisstjórnarinnar hefðu gefið tilefni til að ætla að Herjólfur III yrði áfram tiltækur til að bregðast við samgönguvanda yfir vetrarmánuðina.
    Herjólfur III hefur nú fengið haffærisskírteini en ákvörðun um framtíðarnýtingu skipsins liggur ekki fyrir. Skipið er það eina hér á landi með haffæri í flokki B. Rekstur Herjólfs III samhliða Herjólfi IV myndi kalla á sérstaka fjármögnun og viðaukasamning við núverandi rekstrarsamning Vegagerðarinnar og Herjólfs ohf.