Ferill 298. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 337  —  298. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um svæðisborgina Akureyri.

Frá Ingvari Þóroddssyni.


     1.      Hvernig miðar vinnu við að skilgreina Akureyri sem svæðisborg og móta hlutverk hennar, sbr. þingsályktun nr. 1/157, um borgarstefnu fyrir árin 2025–2040?
     2.      Hefur verið skilgreint hvaða þjónustu svæðisborginni er ætlað að veita, hvaða ábyrgð og réttindi fylgja hlutverkinu og hvernig ríkið hyggst tryggja fjármögnun þess? Ef svo er ekki, hvenær er þess að vænta?
     3.      Stendur til að festa stöðu Akureyrar sem svæðisborgar í lög eða með öðrum formlegum hætti og ef svo er, hvenær?
     4.      Hvenær er áætlað að þróunaráætlun fyrir borgarsvæði Akureyrar liggi fyrir og hvaða breytingum mega íbúar svæðisins búast við að þeirri vinnu lokinni?


Munnlegt svar óskast.