Ferill 299. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Prentað upp.
Þingskjal 338 — 299. mál.
Flutningsmenn.
Tillaga til þingsályktunar
um smíði eða kaup á aukaferju til siglinga milli Vestmannaeyja og lands.
Flm.: Karl Gauti Hjaltason, Ingibjörg Davíðsdóttir, Þorgrímur Sigmundsson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Ingveldur Anna Sigurðardóttir.
Alþingi ályktar að fela innviðaráðherra að undirbúa kaup eða smíði á aukaferju sem nýtt verði til reglulegra siglinga milli Vestmannaeyja og lands yfir sumartímann og verði jafnframt varaferja fyrir Herjólf og Baldur. Einnig verði horft til þess að nýta megi ferjuna til viðbótar við Herjólf þegar siglt er til Þorlákshafnar að vetrarlagi, eftir því sem aðstæður leyfa og þörf krefur. Við val á ferju verði þess gætt að hún uppfylli þær kröfur sem gera þarf til öruggra og hagkvæmra farþega- og bifreiðaflutninga og geti sinnt hlutverki varaferju fyrir báðar ferjuleiðir. Ráðherra leggi fyrir Alþingi áætlun um kaup eða smíði ferjunnar eigi síðar en á vorþingi árið 2027.
Greinargerð.
Ástandið versnar enn ef Herjólfur getur ekki sinnt hlutverki sínu til fulls, t.d. vegna nauðsynlegrar viðgerðar eða bilunar. Fjölmörg dæmi eru um að grípa hafi þurft til sérstakra ráðstafana af þeim sökum. Árið 2023 varð bilun í skrúfu Herjólfs sem varð til þess að kalla þurfti til varaskip og einnig var gerður samningur við Icelandair um að sinna daglegum flugferðum til og frá Vestmannaeyjum á meðan Herjólfur fór í slipp vegna viðgerðar. Flugsamgöngur stóðu yfir í eina viku. Árið 2026 varð alvarleg vélarbilun í Herjólfi sem leiddi til þess að kalla þurfti til ferjuna Baldur til að sinna ferjusiglingum til og frá Vestmannaeyjum, með tilheyrandi röskun á ferjusiglingum um Breiðafjörð.
Baldur sinnir reglubundnum ferjusiglingum milli Stykkishólms og Brjánslækjar með viðkomu í Flatey og gegnir þar mikilvægu hlutverki fyrir samgöngur milli landshluta. Ferjan styttir ferðaleiðir verulega fyrir íbúa, atvinnulíf og aðra vegfarendur sem eiga erindi milli Suður- og Miðvesturlands og Vestfjarða. Baldur hefur jafnframt verið nýttur sem varaferja fyrir Herjólf þegar Herjólfur er óstarfhæfur vegna bilana, viðhalds eða annarra ástæðna. Þótt það fyrirkomulag tryggi samgöngum til Vestmannaeyja ákveðið varaafl hefur það þann ókost að þegar Baldur er kallaður til þjónustu fyrir Herjólf þarf hann að víkja úr reglubundnum siglingum sínum á Breiðafirði með tilheyrandi raski fyrir notendur þeirrar ferjuleiðar og byggðir beggja vegna Breiðafjarðar.
Flutningsmenn þessarar tillögu telja að með kaupum eða smíði á nýrri ferju yrði hægt að leysa þessi margþættu vandamál með heildstæðari hætti. Á sumrin myndi nýja ferjan sigla með Herjólfi og auka þannig afkastagetu og framboð ferða til og frá Vestmannaeyjum. Að vetrarlagi yrði sama ferja nýtt sem varaferja fyrir Herjólf og Baldur og tryggði þannig þjónustu þegar þörf krefði. Jafnframt væri unnt að nýta ferjuna til viðbótar við Herjólf þegar siglt er til Þorlákshafnar og bæta þannig framboð og þjónustu á siglingaleiðinni. Með þessu fyrirkomulagi yrði unnt að draga úr því að samgöngutruflanir á einni ferjuleið hefðu bein áhrif á þjónustu á annarri. Kaup á nýrri ferju myndu styrkja samgöngur bæði við Vestmannaeyjar og á Breiðafirði og auka rekstraröryggi ferjusamgangna á báðum leiðum.
Að mati flutningsmanna er rétt að ráðist verði í kaup eða smíði á nýrri ferju sem geti gegnt þessu tvíþætta hlutverki og styrkt verulega samgöngur bæði við Vestmannaeyjar og á Breiðafirði.
Flutningsmenn leggja til að ráðherra ráðist í aðgerðir í samræmi við tillögu þessa og leggi fyrir Alþingi fullbúna áætlun eigi síðar en á vorþingi árið 2027.