Ferill 300. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 339  —  300. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um niðurgreiðslu á flugferðum barna og ungmenna vegna landsliðsverkefna.


Flm.: Þorgrímur Sigmundsson, Ingibjörg Davíðsdóttir, Karl Gauti Hjaltason, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela innviðaráðherra, í samráði við mennta- og barnamálaráðherra, að undirbúa breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar. Breytingarnar miði að því að börn og ungmenni sem uppfylla búsetuskilyrði Loftbrúar og hafa verið valin í æfingahópa eða lokahópa landsliða á vegum sérsambanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands geti fengið niðurgreiðslu á flugferðum vegna staðfestra landsliðsverkefna. Slíkar ferðir verði ekki háðar árlegri fjöldatakmörkun Loftbrúar á niðurgreiddum flugleggjum.
    Stefnt verði að því að niðurgreiðsla taki til hvers flugleggs í áætlunarflugi innan lands til og frá höfuðborgarsvæðinu, að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:
     1.      Að iðkandi sé í staðfestum æfingahópi eða lokahópi landsliðs á vegum sérsambands Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
     2.      Að flugferð sé í beinum tengslum við landsliðsæfingar, æfingabúðir, keppni eða annan skipulagðan undirbúning fyrir landsliðsverkefni.
     3.      Að viðkomandi sérsamband staðfesti þátttöku iðkanda og tengsl ferðar við landsliðsverkefni.
    Við útfærslu breytinganna verði tryggt að niðurgreiðslan komi til lækkunar á þeim hluta ferðakostnaðar sem ella félli á iðkanda eða fjölskyldu hans. Heimilt verði að nýta niðurgreiðsluna þótt sérsamband eða íþróttafélag greiði hluta fargjalds, enda leiði hún hvorki til lækkunar á áður ákveðinni kostnaðarþátttöku þessara aðila né til þess að sami kostnaður verði niðurgreiddur oftar en einu sinni. Tryggt verði að niðurgreiðsla vegna landsliðsverkefna skerði ekki almennan rétt iðkanda til niðurgreiddra flugferða samkvæmt Loftbrú.
    Ráðherra verði falið að meta kostnað við breytingarnar og leggja fram tillögur um framkvæmd þeirra og fjármögnun, þar á meðal um aldursmörk, staðfestingu ferða og eftir atvikum samspil við annan fjárhagslegan stuðning, eigi síðar en fyrir lok vorþings 2027.

Greinargerð.

    Loftbrú var komið á laggirnar í september árið 2020 með það að markmiði að jafna aðstöðumun íbúa landsbyggðarinnar og bæta aðgengi þeirra að þjónustu og tækifærum á höfuðborgarsvæðinu. Í október árið 2026 veitti úrræðið þeim sem uppfylltu búsetuskilyrði 40% afslátt af fargjaldi fyrir allt að sex flugleggi á ári, eða þrjár ferðir fram og til baka.
    Ráðherra hefur boðað breytingar á útreikningi niðurgreiðslunnar frá 1. janúar 2027 þannig að miðað yrði við fasta fjárhæð á fluglegg í stað hlutfalls af fargjaldi. Í kjölfarið greindi ráðherra frá því að til stæði að endurskoða fjárhæðina, en ekki var boðuð breyting á árlegu hámarki niðurgreiddra flugleggja. Markmið tillögu þessarar er að fella úr gildi það hámark þegar um staðfest landsliðsverkefni ungra iðkenda er að ræða.

Ferðaþörf vegna landsliðsstarfs.
    Börn og ungmenni á landsbyggðinni þurfa reglulega að ferðast til höfuðborgarsvæðisins til að taka þátt í landsliðsæfingum, æfingabúðum, keppni og öðrum undirbúningi. Ferðaþörfin getur verið mikil áður en endanlegur landsliðshópur hefur verið valinn. Þrjár ferðir fram og til baka geta því dugað skammt og oft er þörf á fleiri ferðum. Ef miðað er við átta ferðir fram og til baka í dæmaskyni vegna landsliðsverkefna fela þær í sér 16 flugleggi, eða tíu umfram almennt árshámark Loftbrúar. Nýti iðkandi almennan rétt sinn í Loftbrú til landsliðsferða gengur það jafnframt á möguleika hans til að nota Loftbrú vegna annarra erinda.

Fjárhagslegur aðstöðumunur og dæmi um kostnað.
    Fjárhagsstaða sérsambanda og íþróttafélaga er mismunandi og þau hafa ekki öll bolmagn til að greiða ferðakostnað barna og ungmenna vegna landsliðsverkefna. Endurtekin flug og annar ferðakostnaður getur því ráðið miklu um það hvort fjölskyldur hafi tök á að standa undir kostnaði við þátttöku barna sinna í slíkum verkefnum.
    Samkvæmt upplýsingum frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) fengu 207 landsliðskeppendur árið 2025 sérstaka ferðastyrki vegna ferða innan lands að brottfararflugvelli, samtals 3,3 millj. kr. Viðmið ÍSÍ það ár gerðu ráð fyrir allt að 16.000 kr. styrk eftir vegalengd, en styrkirnir náðu ekki til æfingabúða.
    Á vef ÍSÍ kemur jafnframt fram að einingar innan ÍSÍ njóti sérstakra afsláttarkjara hjá Icelandair vegna innanlandsflugs. Samkvæmt þeim geta íþróttafélög og sérsambönd sótt um 3.200 kr. inneign fyrir hvern fluglegg við einstaklingsbókanir, auk þess sem íþróttahópar njóta 15% afsláttar af hópafargjöldum, þó ekki af sköttum og þjónustugjöldum. Kjörin ná m.a. til ferða vegna æfinga og móta.
    Þótt þessi afsláttarkjör geti dregið úr ferðakostnaði standa þau ekki nærri því undir útgjöldum. Ítrekaðar ferðir á landsliðsæfingar geta því áfram haft verulegan kostnað í för með sér, sérstaklega fyrir íþróttaiðkendur á landsbyggðinni sem þurfa að fljúga til Reykjavíkur og greiða jafnframt fyrir gistingu og annan ferðakostnað.
    Á sl. árum hafa komið fram fjölmörg dæmi í fjölmiðlum um íþyngjandi kostnað vegna landsliðsverkefna. Dæmi eru um að full þátttaka í yngra landsliði í körfuknattleik kalli á 20 ferðir vegna æfinga og 40 gistinætur á höfuðborgarsvæðinu.
    Í frétt Vísis frá 24. júlí 2026 greindi faðir leikmanns í U20 ára landsliði Íslands í körfuknattleik frá því að foreldrar hefðu þurft að draga börn sín úr landsliðshópum vegna kostnaðar. Hann greindi frá því að fjölskylda hans hefði greitt um 770 þús. kr. vegna landsliðsþátttöku sonarins árið 2025 og um 250 þús. kr. það sem af var árinu 2026. Þær fjárhæðir náðu til heildarkostnaðar við þátttökuna og ekki eingöngu til innanlandsflugs en varpa ljósi á fjárhagslega byrði fjölskyldna.

Stuðningur nái einnig til æfingahópa.
    Nái stuðningurinn eingöngu til lokahópa getur svo verið að kostnaður við undirbúning hafi þegar haft áhrif á hvaða iðkendur geta tekið þátt og þar með möguleika þeirra á að komast í endanlegt landslið. Þess vegna er brýnt að iðkendur í staðfestum æfingahópum njóti sama réttar og þeir sem hafa verið valdir í lokahópa.

Framkvæmd, eftirlit og fjármögnun.
    Tillagan felur í sér afmarkað viðbótarúrræði við núverandi styrkjakerfi. Við framkvæmd úrræðisins þyrfti að liggja fyrir staðfesting sérsambands á landsliðsverkefni og þátttöku iðkanda, svo að unnt væri að afgreiða niðurgreiðsluna með einföldum og rekjanlegum hætti Stuðningurinn á að lækka þann hluta fargjalds sem fellur á iðkanda eða fjölskyldu hans en ekki að koma í stað kostnaðarþátttöku sérsambands eða íþróttafélags.
    Við útfærslu niðurgreiðslunnar þarf að taka mið af gildandi skilmálum Loftbrúar þar sem ferðir á vegum samtaka og hópafargjöld eru undanskilin afslætti. Nýja niðurgreiðslufyrirkomulagið þyrfti að heimila stuðning vegna íþróttaferða óháð því hvort íþróttafélag eða sérsamband annist bókun eða hvort hópafargjald sé nýtt. Slík bókun á ekki ein og sér að útiloka stuðning en þó þarf að tryggja að sami ferðakostnaður sé ekki niðurgreiddur tvisvar. Einnig þarf að skilgreina aldur þeirra sem kæmu til með að falla undir úrræðið með hliðsjón af aldursflokkum landsliða og úthlutunarreglum ÍSÍ. Við kostnaðarmat verði sérstaklega tekið tillit til áætlaðs fjölda viðbótarflugleggja, niðurgreiðslu á hvern legg og þess hvernig rétturinn verði fjármagnaður án þess að það komi niður á öðrum notendum Loftbrúar.

Niðurlag.
    Val í landsliðverkefni er viðurkenning á hæfileikum og árangri ungra íþróttamanna. Búseta eða fjárhagsleg geta fjölskyldu á ekki að ráða því hvort iðkandi geti tekið þátt í undirbúningi og verkefnum landsliða. Tillaga þessi felur í sér mikilvægt fyrsta skref í þá átt að tryggja jafnræði og jafna möguleika barna og ungmenna til þátttöku í landsliðsverkefnum, óháð búsetu þeirra eða fjárhagslegri stöðu fjölskyldna. Með því er stuðlað að því að koma í veg fyrir að slíkir þættir leiði til ómálefnalegrar mismununar. Í framhaldinu væri ráð að skoða frekari stuðning til iðkenda sem keppa fyrir Íslands hönd á erlendri grundu.