Ferill 166. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 340  —  166. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um meðferð viðtalsbeiðna.


     1.      Hefur ráðherra sett sér vinnureglur um meðferð viðtalsbeiðna?
    Ráðherra veitir fjölmiðlum viðtöl eins og kostur er þegar eftir því er leitað og ef dagskrá hans leyfir. Alla jafna leita fjölmiðlar til aðstoðarmanna ráðherra um slík viðtöl eða til upplýsingafulltrúa ráðuneytisins. Ekki hefur verið talin ástæða til að setja vinnureglur um meðferð viðtalsbeiðna frá fjölmiðlum. Ráðuneytið hefur á hinn bóginn sett sér vinnureglur um meðferð formlegra fyrirspurna og gagnabeiðna, og er þess þá óskað að slíkar beiðnir séu sendar skriflega.

     2.      Hefur ráðherra hafnað viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og ef svo er, hversu oft og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?
    Það hefur komið fyrir að innviðaráðherra hefur ekki getað orðið við beiðni um viðtal. Beiðnir íslenskra fjölmiðla berast iðulega eftir óformlegum leiðum, en algengast er að fjölmiðlar óski eftir viðtölum við ráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi. Í undantekningartilvikum getur dagskrá ráðherra leitt til þess að hann eigi ekki kost á að veita viðtal við þær aðstæður. Ekki er haldin skrá yfir slíkar beiðnir eins og fram kemur í svari við fyrsta lið og þar af leiðandi er ekki til yfirlit yfir hvaða fjölmiðlar hafa óskað eftir viðtölum eða hversu oft ekki hefur verið unnt að verða við þeim.

     3.      Hversu oft hefur ráðherra samþykkt viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?
    Eins og fram kemur í næsta tölulið á undan er ekki haldin skrá yfir viðtalsbeiðnir frá fjölmiðlum og þar af leiðandi liggur ekki fyrir hversu oft ráðherra hefur veitt einstökum fjölmiðlum viðtöl, en viðtölin eru fjölmörg við alla helstu fjölmiðla landsins.