Ferill 115. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 341  —  115. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Hildi Sverrisdóttur um auglýsingar.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvað hafa ráðuneytið og stofnanir þess varið miklu fé í auglýsingar á síðastliðnum fjórum árum? Svar óskast sundurliðað eftir mánuðum, tegund auglýsingamiðils, hvort miðillinn telst til fjölmiðils eða samfélagsmiðils og hvort miðillinn er innlendur eða erlendur.

    Heildarkostnaður ráðuneytisins og stofnana þess við birtingu auglýsinga á síðastliðnum fjórum árum frá september 2022 hefur verið tekinn saman. Birtingarkostnaður er flokkaður eftir mánuðum og hvort birtingar eru í innlendum eða erlendum miðlum. Í innlendum miðlum eru birtingar flokkaðar í tvennt; fjölmiðla og aðra miðla.
    Í meðfylgjandi töflu er birtur samanlagður birtingarkostnaður hjá innviðaráðuneyti, Byggðastofnun, Fjarskiptastofu, Samgöngustofu og Vegagerðinni. Enginn kostnaður fellur til vegna auglýsinga hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa.
    Tilgreindur er birtingarkostnaður vegna auglýsinga- og kynningarherferða, (almannaheillaauglýsinga), funda, viðburða og ráðstefna, atvinnuauglýsinga og ýmissa annarra tilkynninga. Kostnaður vegna lögbundinna birtinga í Stjórnartíðindum og Lögbirtingablaði er undanskilinn. Allar upphæðir eru í krónum.
    Ráðuneyti og stofnanir leggja ríka áherslu á að birta auglýsingar í íslenskum fjölmiðlum. Stofnanir ráðuneytisins hafa margar hverjar lögum samkvæmt ríka tilkynningarskyldu og/eða sinna lögbundnu fræðslu- og kynningarstarfi. Áhersla er lögð á birtingar í innlendum miðlum en til að ná til allra markhópa geta staðið fagleg rök til þess að birta auglýsingar á völdum erlendum samfélagsmiðlum samhliða birtingum í íslenskum fjölmiðlum. Einkum á það við um almannaheillaauglýsingar og átaksverkefni þegar sérstaklega þarf að ná til sérstakra hópa, t.d. ungmenna, eða í þeim tilvikum þegar miðla þarf upplýsingum um staðbundna viðburði og kynningarfundi á tilteknum svæðum.

Innlent

Erlent

Ár – mánuður Fjölmiðill Ekki fjölmiðill Samfélagsmiðill Samtals
2022-09 2.579.136 569.803 469.326 3.618.265
2022-10 2.653.423 135.866 131.721 2.921.010
2022-11 3.084.306 212.925 242.501 3.539.732
2022-12 6.614.755 137.184 932.518 7.684.457
2023-01 6.082.150 1.089.376 490.683 7.662.209
2023-02 1.297.769 519.832 284.577 2.102.178
2023-03 1.688.903 152.513 284.181 2.125.597
2023-04 1.464.432 240.703 238.486 1.943.621
2023-05 2.328.493 533.394 314.893 3.176.780
2023-06 3.648.615 547.510 275.239 4.471.364
2023-07 4.161.940 0 486.402 4.648.342
2023-08 2.800.385 55.778 867.060 3.723.223
2023-09 1.179.307 227.184 276.628 1.683.119
2023-10 12.114.685 5.585.099 250.695 17.950.479
2023-11 2.221.071 0 334.108 2.555.179
2023-12 1.851.927 0 254.233 2.106.160
2024-01 6.167.398 2.867.773 134.757 9.169.928
2024-02 2.457.533 835.439 675.960 3.968.932
2024-03 1.716.559 135.020 117.857 1.969.436
2024-04 578.769 358.794 20.850 958.413
2024-05 5.306.914 988.949 314.640 6.610.504
2024-06 3.179.974 487.780 49.101 3.716.855
2024-07 1.414.098 66.960 144.270 1.625.328
2024-08 750.069 81.195 246.674 1.077.938
2024-09 1.307.205 114.700 343.287 1.765.192
2024-10 1.801.622 1.094.184 51.072 2.946.878
2024-11 2.978.140 997.046 276.576 4.251.762
2024-12 5.206.722 1.458.860 83.137 6.748.719
2025-01 4.386.620 1.541.102 176.963 6.104.685
2025-02 1.306.581 610.734 244.166 2.161.481
2025-03 1.199.681 313.540 709.393 2.222.614
2025-04 1.942.629 1.150.469 816.037 3.909.135
2025-05 3.429.599 713.054 750.921 4.893.574
2025-06 2.346.563 1.729.817 988.511 5.064.891
2025-07 933.796 928.663 860.142 2.722.601
2025-08 4.092.513 717.693 1.220.868 6.031.074
2025-09 1.890.762 213.694 546.724 2.651.180
2025-10 632.690 379.775 370.066 1.382.531
2025-11 3.970.981 202.492 178.829 4.352.302
2025-12 3.653.473 1.120.323 668.592 5.442.388
2026-01 1.472.691 88.493 0 1.561.184
2026-02 1.317.936 533.076 13.375 1.864.387
2026-03 1.978.327 43.724 34.305 2.056.356
2026-04 1.680.024 280.421 15.998 1.976.443
2026-05 1.743.282 687.005 83.676 2.513.963
2026-06 1.508.944 125.113 1.430 1.635.487
2026-07 1.008.147 0 2.593 1.010.740
2026-08 1.078.857 77.330 89.483 1.245.670
2026-09 853.320 36.058 0 889.378
Samtals 156.646.035 33.114.476 18.834.514 208.595.025
Prósenta 75% 16% 9% 100%