Ferill 98. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 342  —  98. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um netöryggisvottun á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni.

Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá innviðaráðuneyti, Fjarskiptastofu og Samtökum iðnaðarins.
    Nefndinni bárust fjórar umsagnir auk minnisblaðs frá innviðaráðuneyti, dags. 16. október 2026, og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
    Markmið frumvarpsins er að innleiða í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/881 frá 17. apríl 2019 um Netöryggisstofnun Evrópusambandsins (ENISA), um netöryggisvottun upplýsinga- og fjarskiptatækni og um niðurfellingu reglugerðar (ESB) nr. 526/2013 (gerð um netöryggi) sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026.

Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
    Með frumvarpinu er ætlunin að lögfesta reglugerð (ESB) 2019/881 með það að leiðarljósi að bæta netöryggi á Íslandi. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu og þar er lýst nánar er meginmarkmið reglugerðar (ESB) 2019/881 annars vegar að tryggja Netöryggisstofnun Evrópusambandsins, ENISA, varanlegan rekstrargrundvöll og hins vegar að koma á fót samræmdu evrópsku vottunarferli fyrir vörur, þjónustu og ferla á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni. Þá mun gildissvið reglugerðarinnar einnig ná til svonefndra öryggisþjónustuveitenda með breytingarreglugerð (ESB) 2025/37 um stýrða öryggisþjónustu sem breytir ákvæðum reglugerðar (ESB) 2019/881.
    Eins og nánar er rakið í greinargerð var ENISA komið á fót í því skyni að efla netöryggi innan aðildarríkja Evrópusambandsins og styðja við þróun og framkvæmd laga og reglna á sviði netöryggis. Eitt helsta markmið frumvarpsins er þannig að tryggja fullnægjandi stig netöryggis fyrir upplýsinga- og fjarskiptatækni og stuðla að samræmi á innri markaðnum varðandi vottunarkerfi á þessu sviði, svo sem nánar er lýst í greinargerð með frumvarpinu.
    Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að Fjarskiptastofa fari með hlutverk landsbundins netöryggisvottunaryfirvalds á Íslandi samkvæmt reglugerð (ESB) 2019/881 og annist útgáfu netöryggisvottorða hér á landi þegar það á við. Þá skuli Fjarskiptastofa vera sjálfstæð gagnvart þeim aðilum sem stofnunin hefur eftirlit með og skuli starfsemi hennar sem tengist útgáfu evrópskra netöryggisvottorða vera aðskilin þeirri starfsemi sem sinnir eftirliti með netöryggisvottunum.
    Meiri hluti nefndarinnar er sammála meginmarkmiðum frumvarpsins, enda eru netöryggisógnir ört vaxandi vandamál í nútímasamfélagi. Þannig telur meiri hlutinn tímabært að gerð (ESB) 2019/881 verði lögfest hér á landi í heild sinni líkt og ráðgert er með frumvarpinu, enda samræmist það skyldum Íslands að þjóðarétti, sbr. a-lið 7. gr. EES-samningsins sem lögfestur var hér á landi með lögum nr. 2/1993. Þá lýstu umsagnaraðilar yfir almennri ánægju og stuðningi við frumvarpið en gerðu á hinn bóginn nokkrar athugasemdir við það sem nánar verður vikið að hér á eftir.

Netöryggisvottun samkvæmt frumvarpinu sé valkvæð.
    Í umsögn Opinna kerfa er gerð athugasemd við að ekki komi fram í frumvarpstextanum sjálfum að netöryggisvottun sé valkvæð heldur einvörðungu í greinargerð, enda megi gera vottunina að skyldu hér á landi. Í því sambandi er bent á að tilskipun (ESB) 2022/2555 (NIS2) heimili í 24. gr. aðildarríkjum að krefjast þess að nauðsynlegir og mikilvægir aðilar noti vottaðar vörur, þjónustu og ferla. Við innleiðingu reglugerðarinnar gæti vottun því í reynd orðið skylda fyrir birgja þeirra án sérstakrar umræðu á Alþingi. Þá væri skylda til vottunar íþyngjandi og myndi skerða atvinnufrelsi í skilningi 75. gr. stjórnarskrárinnar en slíka ákvörðun ætti löggjafinn að taka en ekki ráðherra með reglugerð.
    Í kafla 2.1 í greinargerð með frumvarpinu er nánar vikið að þessum atriðum. Þar kemur fram að það sé valkvætt fyrir aðila sem bjóða upp á vörur, þjónustu eða ferla á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni að afla vottunar á vörur, þjónustu eða ferla. Reglugerðin kveði hins vegar á um að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins muni reglulega leggja mat á vottunarferlið og hvort nauðsynlegt sé að gera það að skyldu fyrir ákveðnar vörur, þjónustu eða ferla. Fimm árum frá samþykkt reglugerðarinnar hafi á hinn bóginn engin áform verið birt um slíka vottunarskyldu. Í kafla 3.4 í greinargerð kemur fram að netöryggisvottun fyrir aðila skuli vera valkvæð nema annað sé tekið fram, sbr. 2. mgr. 56. gr. reglugerðar (ESB) 2019/881. Þá er áréttað í kafla greinargerðarinnar um mat á áhrifum frumvarpsins að í reglugerðinni sé ekki lögð sú krafa á aðila að afla sér netöryggisvottunar heldur sé slík vottun valkvæð. Frumvarpið kveði ekki á um annað fyrirkomulag. Verði frumvarpið að lögum muni það ekki setja beinar íþyngjandi kröfur á aðila á markaði heldur hafi þeir fullt vald til að meta hvort þeir vilji afla sér viðeigandi netöryggisvottunar út frá regluverkinu. Loks er áréttað í 4. kafla greinargerðar að þar sem vottanir samkvæmt frumvarpinu séu valkvæðar, verði hvorki talið að frumvarpið setji atvinnufrelsi skorður né að það skerði atvinnufrelsi, sbr. 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar.
    Að mati meiri hluta nefndarinnar þykir í ljósi framangreinds nægilega skýrt að netöryggisvottun samkvæmt frumvarpinu sé valkvæð. Þá beinir meiri hlutinn því til ráðuneytisins að bregðast við því með viðeigandi lagasetningu komi til þess að innleidd verði ný löggjöf á sviði Evrópuréttar sem mæli fyrir um að aðilum verði gert skylt að afla sér netöryggisvottunar.

Útvistun verkefna (4. gr.).
    Samkvæmt 4. gr. frumvarpsins getur Fjarskiptastofa, sem landsbundið netöryggisvottunaryfirvald, útvistað verkefnum sem varða útgáfu netöryggisvottorða og eftirlit á grundvelli frumvarpsins og/eða reglugerðar (ESB) 2019/881 til ytri aðila. Í skýringum við ákvæðið í frumvarpinu kemur fram að þessi leið þyki heppileg í ljósi smæðar landsins og til að tryggja aðgengi að sérfræðiþekkingu sem kunni að vera takmörkuð hér á landi. Þá væri útvistun verkefna einnig heppileg í ljósi smæðar stofnunarinnar, kæmi til þess að tryggja þyrfti hlutleysi og aðgreiningu verkefna. Eftir sem áður ber Fjarskiptastofa ábyrgð á verkefnum þrátt fyrir að til útvistunar komi, svo sem bent er á í greinargerð.
    Umsagnaraðilar bentu á mikilvægi þess að umgjörð útvistunar og framkvæmd ábyrgðar Fjarskiptastofu verði skýr, meðal annars afmörkun verkefna, sem og afmörkun ábyrgðar og eftirlits í samningum við framkvæmdaraðila. Þá þyrfti að gæta að sjálfstæði landsbundins netöryggisvottunaryfirvalds, sbr. 3. og 4. mgr. 58. gr. reglugerðar (ESB) 2019/881.
    Til áréttingar, með vísan til greinargerðar, bendir meiri hluti nefndarinnar á að heimild til handa Fjarskiptastofu til útvistunar verkefna til annarra aðila samkvæmt ákvæðinu sé fyrst og fremst beint til erlendra aðila en ekki innlendra þótt þeir séu ekki útilokaðir. Meiri hlutinn tekur undir framangreindar ábendingar umsagnaraðila en er að öðru leyti sammála þeim sjónarmiðum sem fram koma í greinargerð um að nauðsynlegt sé fyrir Fjarskiptastofu að hafa heimild til útvistunar verkefna út fyrir landsteinana til að tryggja sérfræðiþekkingu og gæta hlutleysis.

Kostnaður vegna útgáfu evrópsks netöryggisvottorðs og útvistunar verkefna (2. mgr. 4. gr.).
    Í 2. mgr. 4. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um að kostnaður sem hljótist af útgáfu evrópsks netöryggisvottorðs skuli greiddur af þeim aðila sem óski netöryggisvottunar.
    Í umsögn Fjarskiptastofu er bent á að þrátt fyrir að eðlilegt og sanngjarnt sé að sá aðili sem njóti afraksturs vottunar greiði fyrir hana, komi ekki nægilega skýrt fram í frumvarpinu að kostnaðarhlutur vottunarbeiðanda taki til alls kostnaðar við ferlið, þ.m.t. vegna sérfræðivinnu sem óhjákvæmilega þurfi að eiga sér stað hjá Fjarskiptastofu, sem og kostnaðar sem hljótist af almennu eftirliti og gerð útvistunarsamninga. Leggur stofnunin til að við 4. gr. frumvarpsins verði bætt sérstöku ákvæði þar sem Fjarskiptastofu verði heimilt að innheimta gjald vegna alls kostnaðar sem hljótist af útgáfu evrópskra netöryggisvottorða á grundvelli 23. gr. laga nr. 75/2021, um Fjarskiptastofu, þ.m.t. kostnað vegna vinnu starfsmanna stofnunarinnar eða verksamnings við umsækjanda. Þá gagnrýnir stofnunin að kostnaður vegna almenns eftirlits Fjarskiptastofu hafi ekki verið metinn og því sé alls óljóst hvort stofnunin hafi bolmagn til að sinna þeim verkefnum sem frumvarpið kveði á um.
    Í umsögn Opinna kerfa kveður við svipaðan tón en þar er bent á að skv. 5. mgr. 58. gr. reglugerðar ESB 2019/881 beri ríkinu að tryggja að netöryggisvottunaryfirvald hafi nægileg tilföng, þ.e. úrræði, til að beita valdheimildum sínum og sinna verkefnum sínum á árangursríkan og skilvirkan hátt. Ákvæði 2. mgr. 4. frumvarpsins mæli fyrir um að sá sem óski vottunar beri allan kostnað en engin gjaldskrá liggi fyrir. Verði vottun hér á landi hægari og dýrari en í öðrum EES-ríkjum sé íslenskum fyrirtækjum hollara að leita vottunar erlendis og markmið um innlenda getu náist ekki. Þá bentu Samtök iðnaðarins á að mikilvægt væri fyrir umsækjendur (fyrirtæki) að hafa skýrar upplýsingar um grundvöll gjaldtöku og áætlaðan heildarkostnað áður en ákvörðun væri tekin um að sækja um vottun. Það ætti líka við þegar verkefnum væri útvistað.
    Að mati meiri hluta nefndarinnar er skýrt að sá aðili sem óskar eftir útgáfu evrópsks netöryggisvottorðs skuli bera allan kostnað sem af því hlýst og að Fjarskiptastofa skuli innheimta umræddan kostnað frá aðila, sbr. skýringar við 2. mgr. 4. gr. í greinargerð með frumvarpinu. Þar er jafnframt nánar rakið um hvaða kostnað geti verið að ræða. Þá kemur fram að kjósi Fjarskiptastofa að útvista slíku verkefni á grundvelli samnings, sbr. 1. mgr. (4. gr.), skuli sá kostnaður jafnframt borinn af viðkomandi aðila. Meiri hlutinn telur þannig ekki þörf á sérstöku lagaákvæði um heimild Fjarskiptastofu til að innheimta gjald til að standa straum af þessum kostnaði.
    Meiri hlutinn bendir einnig á að í greinargerð er rakið að fyrirhuguð lagasetning feli í sér aukin verkefni fyrir Fjarskiptastofu en óljóst sé hversu umfangsmikil þau verkefni verði, enda háð því hvort aðilar kjósi að afla sér netöryggisvottunar. Erfitt sé því að meta fjárhagsleg áhrif á starfsemi Fjarskiptastofu til hlítar. Á hinn bóginn sé ljóst að ákveðin umgjörð og þekking þurfi að vera til staðar hjá stofnuninni til að sinna lögbundnum verkefnum á grundvelli reglugerðarinnar. Þá er jafnframt áréttað í frumvarpinu að áhrif þess á fjárheimildir Fjarskiptastofu verði metin með reglubundnum hætti.
    Í ljósi þessa telur meiri hlutinn ekki þörf á frekara kostnaðarmati, enda liggur umfang verkefna Fjarskiptastofu ekki nákvæmlega fyrir. Á hinn bóginn sé mikilvægt að reglubundið mat á áhrifum frumvarpsins á fjárheimildir Fjarskiptastofu fari fram með hliðsjón af þeim fjölda aðila sem sæki um netöryggisvottun. Þá áréttar meiri hlutinn mikilvægi þess að stofnunin hafi næg tilföng til þess að sinna hlutverki sínu, sem og öðrum lögbundnum verkefnum sem frumvarpið leggur stofnuninni á herðar, líkt og mælt er fyrir um í 5. mgr. 58. gr. reglugerðar (ESB) 2019/881, sbr. og 7. mgr. 58. gr., og nánar er vikið að í kafla 3.6.1 í greinargerð. Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að fylgjast vel með þróun mála á þessu sviði og stuðla að því að kostnaður vegna framangreindra verkefna Fjarskiptastofu verði endurmetinn eftir þörfum.

Áhrif breytingarreglugerðar (ESB) 2025/37 á lítil og meðalstór fyrirtæki.
    Fyrir nefndinni voru áhrif fyrirhugaðrar innleiðingar reglugerðar (ESB) 2025/37 á lítil og meðalstór fyrirtæki rædd. Líkt og að framan greinir verður gildissvið reglugerðar (ESB) 2019/881 útvíkkað með nýrri breytingarreglugerð (ESB) 2025/37 þannig að fyrrnefnda reglugerðin nái einnig til stýrðrar öryggisþjónustu. Umsagnaraðilar bentu sumir á að mat á áhrifum reglugerðar (ESB) 2025/37 á lítil og meðalstór fyrirtæki skorti í frumvarpið og kom það einnig til umræðu í nefndinni. Í minnisblaði innviðaráðuneytisins, dags. 16. október 2026, er rakið að í reglugerðinni sé sérstaklega lögð áhersla á að taka tillit til þarfa lítilla og meðalstórra fyrirtækja, þ.m.t. örfyrirtækja, við þróun og framkvæmd vottunarkerfa. Reglugerð (ESB) 2025/37 sé ætlað að útvíkka evrópska netöryggisvottunarkerfið þannig að það nái einnig til stýrðrar netöryggisþjónustu, þ.m.t. netöryggisráðgjafar, öryggisúttekta, veikleikaprófana og viðbragða við netöryggisatvikum.
    Þá kemur fram í minnisblaðinu að áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki sem veiti slíka þjónustu hafi verið skoðuð. Einnig hafi við gerð matsins verið tekið til skoðunar hvort ákvæði reglugerðarinnar færu í bága við stjórnarskrá, einkum og sér í lagi atvinnufrelsisákvæði 1. mgr. 75. gr. Við matið hafi verið litið til þess að reglugerð (ESB) 2025/37 breyti reglugerð (ESB) 2019/881 ekki á þann hátt að gera netöryggisvottun að skyldu. Um sé að ræða valkvæða netöryggisvottun en ekki almenna skyldu fyrir fyrirtæki sem veiti slíka þjónustu. Verði önnur Evrópulöggjöf tekin inn í EES-samninginn sem geri vottun að skyldu, þurfi að fara fram nýtt áhrifamat. Heildstætt hafi það verið niðurstaða matsins að bein áhrif innleiðingar reglugerðarinnar á lítil og meðalstór íslensk fyrirtæki yrðu óveruleg til skamms tíma. Óbein fjárhagsleg og samkeppnisleg áhrif kunni að verða meiri þegar einstök vottunarkerfi verða útfærð og tekin í notkun. Innleiðing reglugerðarinnar ein og sér fari ekki gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar.

Breytingartillögur.
Dagsektir og stjórnvaldssektir (12.–13. gr.).
    Í 12. og 13. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um heimildir Fjarskiptastofu til álagningar annars vegar dagsekta (12. gr.) og hins vegar stjórnvaldssekta (13. gr.). Í 2. mgr. 12. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um að sektir geti numið allt að 1.000.000 kr. fyrir hvern dag sem líður eða byrjar að líða. Í 2. mgr. 13. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um að sektir skv. 1. mgr. geti numið frá 10.000 kr. til 10.000.000 kr. eða allt að 4% af heildarveltu síðasta rekstrarárs hjá hverjum þeim aðila sem aðild á að broti, leiði það af sér hærri fjárhæð.
    Í kafla 3.10 í greinargerð kemur fram að aðildarríkjum sé veitt ákveðið svigrúm við innleiðingu reglugerðar (ESB) 2019/881 til að ákvarða nánar útfærslu þeirra viðurlaga- eða sektarheimilda sem netöryggisvottunaryfirvöld skuli hafa. Þá kveði reglugerðin heldur ekki á um fjárhæðarviðmið dagsekta eða stjórnvaldssekta. Þannig sé útfærsla ákvæða um stjórnsýsluviðurlög landsbundin í þessu tilviki. Þau viðmið sem sett séu fram í frumvarpi þessu byggjast annars vegar á 19. gr. laga um Fjarskiptastofu, nr. 75/2021, hvað dagsektarákvæði 12. gr. frumvarpsins snertir og 23. gr. laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða, nr. 78/2019, hvað stjórnvaldssektarákvæði 13. gr. frumvarpsins varðar.
    Umsagnaraðilar gagnrýna þær fjárhæðir sem settar eru fram í frumvarpinu, einkum ákvæði 2. mgr. 13. gr. þess um að stjórnvaldssektir geti numið allt að 4% af heildarveltu síðasta rekstrarárs hjá aðilum og telja að hér sé gengið mun lengra en tilefni sé til. Samtök iðnaðarins benda á það í umsögn sinni að skv. 65. gr. reglugerðar (ESB) 2019/881 beri aðildarríkjum að setja viðurlög sem skuli vera skilvirk, í réttu hlutfalli við brotið og hafa letjandi áhrif. 4% veltuviðmiðið feli að mati samtakanna í sér afar íþyngjandi hámarksviðurlög í kerfi þar sem netöryggisvottun sé að meginreglu valkvæð. Reglugerðin krefjist ekki veltutengdra sekta og útfærsla annars staðar á Norðurlöndunum á ákvæðinu sé almennt vægari.
    Meiri hluti nefndarinnar bendir á að aðildarríki hafi ákveðið svigrúm til að útfæra fjárhæðir sekta samkvæmt frumvarpinu, enda sé einvörðungu kveðið á um það í reglugerð (ESB) 2019/881 að ríki skuli setja reglur um viðurlög vegna brota á ákvæðum reglugerðarinnar eða netöryggisvottana, sem og að landsbundin netöryggisvottunaryfirvöld skuli hafa vald til að leggja á viðurlög, svo sem rakið er í kafla 3.10 í greinargerð. Líkt og áður greinir er fyrirmynd ákvæðisins sótt í 2. mgr. 23. gr. laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða, nr. 78/2019, en þar er mælt fyrir um að stjórnvaldssektir geti numið frá 10.000 kr. til 10.000.000 kr. en sektin skuli þó ekki vera hærri en sem nemur 3% af veltu síðasta almanaksárs sé um lögaðila að ræða.
    Með hliðsjón af framkomnum athugasemdum umsagnaraðila þykir að mati meiri hlutans á hinn bóginn rétt að lækka fyrrnefnda hlutfallstölu 2. mgr. 13. gr. frumvarpsins úr 4% í 2%. Þá beinir meiri hlutinn því til ráðuneytisins að fylgjast vel með hvernig ákvæðið reynist í framkvæmd og að það verði endurskoðað ef þörf krefur.
    

Sérstakt innleiðingarákvæði fest í lög varðandi framkvæmdarreglugerðir og breytingarreglugerðir.
    Í minnisblaði innviðaráðuneytisins, dags. 16. október 2026, er lögð til að gerð verði breyting á reglugerðarákvæði frumvarpsins í 14. gr. í þeim tilgangi að setja inn fullnægjandi heimild í frumvarpið til að innleiða bæði framkvæmdarreglugerðir og breytingarreglugerðir er varða reglugerð (ESB) 2019/881.
    Í minnisblaðinu kemur fram að það sé algengt þegar „grunngerðir“ séu lögfestar að settar séu heimildir til að innleiða breytingarreglugerðir og framkvæmdarreglugerðir með reglugerð sem ráðherra setji. Evrópureglugerðirnar séu þá innleiddar með svokallaðri tilvísunaraðferð, þ.e. vísað sé til reglugerðarinnar í reglugerð og öðlist hún gildi hér á landi. Í grunngerðinni sé að finna meginreglurnar og svo fremi að henni sé ekki breytt í grundvallaratriðum, þá sé gefin út breytingarreglugerð. Annars sé gefin út ný grunngerð. Í Evrópusambandinu sé ný grunngerð sem taki við af reglugerð (ESB) 2019/881 í löggjafarferli en hún muni kallast „Cybersecurity act II“. Framkvæmdarreglugerðir kveði nánar á um framkvæmd grunngerðarinnar en breyti henni ekki. Í frumvarpinu sé þegar heimild fyrir ráðherra til að innleiða framkvæmdarreglugerðir en ekki breytingarreglugerðir. Fyrir liggi að nokkrar framkvæmdarreglugerðir og a.m.k. ein breytingarreglugerð séu á leið inn í EES-samninginn á næstunni, nánar tiltekið framkvæmdarreglugerðir (ESB) 2024/482, 2024/3143, 2024/3144, 2025/2462, svo og breytingarreglugerð (ESB) 2025/37.
    Breytingarreglugerð (ESB) 2025/37 útvíkki hið evrópska netöryggisvottunarkerfi núverandi grunngerðar til stýrðrar öryggisþjónustu. Með breytingunni sé leitast við að bregðast við vaxandi mikilvægi slíkrar þjónustu í vernd upplýsingakerfa, einkum þar sem þau feli í sér sífellda vöktun, greiningu ógnana, viðbrögð við atvikum og aðra sérhæfða aðstoð sem fyrirtæki og stjórnvöld reiði sig á til að halda úti viðeigandi netöryggi. Reglugerðin breyti því hins vegar ekki að vottunin verði áfram valkvæð í samræmi við frumvarpið.
    Meiri hluti nefndarinnar tekur undir framangreind sjónarmið og telur til aukins skýrleika fallið að sérstöku innleiðingarákvæði verði bætt við frumvarpið þar sem mælt er fyrir um að ráðherra sé heimilt með reglugerð að innleiða bæði breytingarreglugerðir sem breyta efni reglugerðar (ESB) 2019/881, sem og framkvæmdarreglugerðir. Meiri hlutinn leggur því til, líkt og ráðuneytið stingur upp á í fyrrnefndu minnisblaði, að sérstöku innleiðingarákvæði þess efnis verði bætt við frumvarpið svo sem nánar er útfært hér að neðan. Jafnframt falli þá brott b-liður 14. gr. frumvarpsins svo sem ráðuneytið leggur til.
    Þá leggur meiri hlutinn einnig til nokkrar breytingar á frumvarpinu sem eru tæknilegs eðlis, m.a. í því skyni að samræma orðalag og gera aðrar smávægilegar lagfæringar sem þarfnast ekki frekari skýringa.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Við 2. gr.
                  a.      Í stað orðanna „í öllu Sambandinu“ í 1. og 22. tölul. komi: á öllu Evrópska efnahagssvæðinu.
                  b.      Í stað orðsins „Sambandsins“ í 3. tölul. komi: Evrópska efnahagssvæðisins.
                  c.      Orðin „frá 6. júlí 2016“ í 22. tölul. falli brott.
     2.      Í stað orðsins „Hugverkastofu“ í 2. mgr. 5. gr. og 6. gr. komi: Hugverkastofunnar.
     3.      1. mgr. 10. gr. orðist svo:
                  Einstaklingar og lögaðilar geta skotið til dómstóla ákvörðunum sem teknar eru vegna kvartana skv. 8. gr. vegna ófullnægjandi útgáfu, vanrækslu á að gefa út eða viðurkenna evrópskt netöryggisvottorð sem þeir einstaklingar eða lögaðilar eru handhafar að. Málshöfðunarfrestur er þrír mánuðir frá því að ákvörðun er tekin.
     4.      Við 12. gr.
                  a.      Í stað orðsins „eftir“ í 1. málsl. 1. mgr. komi: að.
                  b.      1. málsl. 3. mgr. orðist svo: Ef ákvörðun um dagsektir skv. 1. mgr. er skotið til dómstóla leggjast dagsektir ekki á fyrr en dómur er endanlegur.
     5.      Í stað „4%“ í 2. mgr. 13. gr. komi: 2%.
     6.      B-liður 14. gr. falli brott.
     7.      Á eftir 14. gr. komi ný grein, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Innleiðing.

    Ráðherra er heimilt með reglugerð að innleiða breytingarreglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins sem breyta efni reglugerðar (ESB) 2019/881, sem og að innleiða framkvæmdarreglugerðir.

Alþingi, 3. nóvember 2026.

María Rut Kristinsdóttir,
form.
Jónína Björk Óskarsdóttir, frsm. Dagur B. Eggertsson.
Ása Berglind Hjálmarsdóttir. Sigurður Helgi Pálmason. Þórarinn Ingi Pétursson.