Ferill 224. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 343  —  224. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Söndru Sigurðardóttur um uppbyggingu hjúkrunarrýma í Suðurkjördæmi.


     1.      Hversu mörg hjúkrunarrými eru á framkvæmdaáætlun í Suðurkjördæmi, sundurliðað eftir sveitarfélögum og forgangsröðun, þ.e. hversu mörg rými eru tilbúin til notkunar, hversu mörg rými eru á framkvæmdastigi og hversu mörg rými bíða framkvæmda?
    Í framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila 2026–2030, sem gefin var út í mars síðastliðnum, er gert ráð fyrir uppbyggingu 299 hjúkrunarrýma í Suðurkjördæmi, þar af 212 nýrra rýma. Frá útgáfu áætlunarinnar hefur fyrirhuguðum rýmum í Vík í Mýrdal verið fjölgað úr 15 í 20. Uppfærð áætlun gerir því ráð fyrir 304 rýmum í kjördæminu, þar af 217 nýjum rýmum. Af þeim fjölda hefur nú þegar verið lokið við 80 rými á Nesvöllum í Reykjanesbæ og eru þau rými komin í fulla notkun.
    Yfirlit yfir verkefnin, fjölda rýma, áætluð verklok og stöðu framkvæmda má sjá í eftirfarandi töflu.

Hjúkrunarrými í Suðurkjördæmi

Fjöldi rýma Þar af ný rými Áætluð verklok Staða
Reykjanesbær, Nesvellir 80 50 2026 Tilbúin til notkunar
Höfn 30 6 2027 Á framkvæmdastigi
Hveragerði, Ás 44 26 2027 Á framkvæmdastigi
Reykjanesbær, Keilisbraut 90 90 2028 Á framkvæmdastigi
Vík í Mýrdal 20 5 2029 Bíða framkvæmda
Óákveðið 40 40 2030 Bíða framkvæmda
Samtals 304

217

    

     2.      Hefur verið lagt mat á þörf hjúkrunarrýma eftir sveitarfélögum í Suðurkjördæmi? Ef svo er ekki, hyggst ráðuneytið láta gera slíkt mat og þá hvenær?
    Frá árinu 2021 hefur heilbrigðisráðuneyti árlega greint þörf fyrir hjúkrunarrými í hverju heilbrigðisumdæmi. Niðurstöður nýjustu greiningarinnar eru birtar í framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila 2026–2030. Greiningin tekur m.a. til heilbrigðisumdæma Suðurnesja og Suðurlands sem falla undir Suðurkjördæmi. Heilbrigðisráðuneyti annast þarfagreininguna og því þarf að beina erindi til þess varðandi hvort til standi að meta þörf hjúkrunarrýma sérstaklega eftir sveitarfélögum í Suðurkjördæmi. Nánar er fjallað um forsendur þarfagreiningarinnar í 4. kafla framkvæmdaáætlunar um uppbyggingu hjúkrunarheimila 2026–2030 1 .

1     www.stjornarradid.is/library/01-Frettatengt-myndir-og-skrar/FRN/Framkvaemdaaetlun_um_uppbyggingu_hjukrunarheimila_2026-2030.pdf