Ferill 141. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 346  —  141. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Júlíusi Viggó Ólafssyni um búsetu einstaklinga með alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hversu margir einstaklingar eru, samkvæmt nýjustu tiltæku upplýsingum, búsettir á Íslandi með gilt dvalarleyfi á grundvelli:
                  a.      alþjóðlegrar verndar, þar á meðal viðbótarverndar,
                  b.      réttar til alþjóðlegrar verndar á grundvelli fjölskyldutengsla,
                  c.      mannúðarsjónarmiða,
                  d.      sameiginlegrar verndar vegna fjöldaflótta, þar á meðal einstaklingar sem hafa fengið slíka vernd vegna stríðsins í Úkraínu?
    Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélagi og ríkisfangi.


    Við vinnslu svarsins var leitað upplýsinga hjá Útlendingastofnun. Svarið miðast við stöðu 1. október 2026, sem eru nýjustu upplýsingar sem liggja fyrir. Svarið tekur til einstaklinga sem þá höfðu gilt dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar og skráð lögheimili hér á landi.
    Frá því að innrás Rússlands í Úkraínu hófst hefur hópurinn sem sækir um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum tekið stakkaskiptum. Það sést á því að 1. október voru alls 8.405 einstaklingar búsettir hér á landi með dvalarleyfi á þeim grundvelli sem spurt er um. Þar af höfðu 5.037, eða tæplega 60%, dvalarleyfi á grundvelli sameiginlegrar verndar vegna fjöldaflótta og eru nær allir þeirra, eða 5.002, ríkisborgarar Úkraínu. Á sama tíma höfðu 1.988, eða rúm 23%, dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar, þ.m.t. viðbótarverndar, 977, eða 11,6%, höfðu hlotið alþjóðlega vernd á grundvelli fjölskyldutengsla og 403, eða tæp 5%, á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
    Af þeim sem hafa fengið alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum eru 75% búsettir á höfuðborgarsvæðinu, 8% á Suðurnesjum og 5,4% á Norðurlandi eystra. Á öðrum svæðum er hlutfall einstaklinga með slík dvalarleyfi lægra.
    Í tíð núverandi ríkisstjórnar hefur í ráðuneytinu verið unnið að breytingum á útlendingalöggjöf með það að markmiði að auka fyrirsjáanleika og styrkja umgjörð útlendingakerfisins í heild. Er þar um að ræða umfangsmiklar breytingar á lögum og reglugerðum á sviði útlendingamála sem geta haft áhrif á stærð og samsetningu þess hóps sem fyrirspurnin tekur til. Má þar nefna breytingar á lögum um útlendinga sem varða afturköllun alþjóðlegrar verndar, afnám svonefndrar 18 mánaða reglu og breytingu á skilyrðum fjölskyldusameiningar handhafa viðbótarverndar. Þá hafa verið sett lög um brottfararstöð og breytingar gerðar vegna verndarsamkomulags Evrópusambandsins. Í meðförum þingsins er nú frumvarp ráðherra um tímabundna vernd vegna fjöldaflótta og þá hefur nýtt frumvarp ráðherra um breytingar á dvalarleyfishluta laga um útlendinga að geyma ákvæði sem gerir auknar kröfur til framfærslu handhafa alþjóðlegrar verndar, ætli þeir sér að sækja um ótímabundið dvalarleyfi hér á landi. Áhrif þessara breytinga liggja ekki fyrir en gera má ráð fyrir að þær tölur sem fram koma í fylgiskjali geti tekið nokkrum breytingum þegar fram í sækir, bæði hvað varðar fjölda og samsetningu hópsins. Þegar gætir áhrifa breytinganna í tölum um fjölda umsókna um alþjóðlega vernd sem hafa dregist verulega saman milli ára.


Fylgiskjal.

www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0346-f_I.pdf