Ferill 302. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 347 — 302. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um afplánun fangelsisrefsinga erlendis.
Frá Sigurði Erni Hilmarssyni.
1. Hversu margir dómþolar hafa ár hvert frá árinu 2020 afplánað refsingu sem dæmd var hér á landi í öðru ríki? Óskað er sundurliðunar eftir því hvort flutningur byggðist á lögum nr. 56/1993, um alþjóðlega samvinnu um fullnustu refsidóma og samningi Evrópuráðsins um flutning dæmdra manna frá 21. mars 1983 eða á lögum nr. 69/1963, um fullnustu refsidóma, sem kveðnir hafa verið upp í Danmörku, Finnlandi, Noregi eða Svíþjóð, o.fl. Jafnframt er óskað sundurliðunar eftir því hvort samþykkis dómþola var aflað, sbr. 2. mgr. 38. gr. laga nr. 56/1993.
2. Hver er stefna ráðherra um fullnustu refsinga í öðrum ríkjum, þar á meðal um nýtingu heimilda laga nr. 56/1993 og 4. mgr. 54. gr. laga nr. 15/2016, um fullnustu refsinga, og um gerð samninga við önnur ríki á því sviði?
Skriflegt svar óskast.