Ferill 303. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 348 — 303. mál.
Fyrirspurn
til atvinnuvegaráðherra um eignarhald og nýtingu landbúnaðarlands.
Frá Degi B. Eggertssyni.
1. Hvernig metur ráðherra helstu niðurstöður nýlegrar skýrslu Landbúnaðarháskóla Íslands, „Eignarhald á landbúnaðarlandi“? Óskað er sérstaklega eftir afstöðu ráðherra til tillagna skýrslunnar um:
a. eignarhald dánarbúa og umfangsmikla sameign jarða,
b. skráningu og flokkun lögbýla eftir raunverulegri notkun,
c. vernd góðs ræktunarlands,
d. framkvæmd reglna um jarðasöfnun og erlent eignarhald, og
e. bætta gagnasöfnun og gagnsæi um eignarhald, nýtingu og skipulag landbúnaðarlands.
2. Hver er raunveruleg nýting lögbýla á Íslandi? Óskað er eftir að fram komi:
a. hversu mörg lögbýli eru í virkum landbúnaðartengdum rekstri,
b. hversu mörg eru með skráðan ábúanda,
c. hversu mörg eru í eyði,
d. hversu mörg eru í eigu dánarbúa,
e. hversu mörg eru í eigu fimm eða fleiri aðila,
f. hversu mörg eru fyrst og fremst nýtt til skógræktar, frístundadvalar, íbúðar eða annarra nota en landbúnaðar, og
g. hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar til að bæta lögbýlaskrá og tengja hana upplýsingum um eignarhald, stærð jarða, landnýtingu og skipulag.
3. Hvernig hafa ákvæði breytinga á jarðalögum sem gerðar voru árið 2020 til að takmarka jarðasöfnun reynst í framkvæmd og hvert er umfang erlends eignarhalds á landbúnaðarlandi? Svar óskast sundurliðað eftir árum frá gildistöku ákvæðanna, með upplýsingum um:
a. fjölda mála sem komið hafa til ráðherra vegna viðmiða um fjölda jarða eða heildarstærð lands,
b. fjölda leyfa sem hafa verið veitt, synjað eða bundin skilyrðum,
c. hvernig fylgst er með eignarhaldi tengdra aðila,
d. hvort ráðherra telji ákvæðin hafa náð markmiði sínu og hvort breytinga sé þörf, og
e. umfang beins og óbeins erlends eignarhalds á lögbýlum og landbúnaðarlandi og þróun þess undanfarin ár, eftir því sem upplýsingar liggja fyrir.
Skriflegt svar óskast.