Ferill 218. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 350  —  218. mál.




Svar


menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Söndru Sigurðardóttur um málstefnu íslensks táknmáls.


     1.      Hvernig hefur innleiðingu málstefnu íslensks táknmáls miðað frá því að þingsályktun þess efnis var samþykkt 20. mars 2024?
    Innleiðing málstefnu íslensks táknmáls hófst árið 2024 og tekur mið af aðgerðaáætlun hennar fyrir árin 2024–2027. Málstefnan byggist á sex meginstoðum: máltöku táknmálsbarna, rannsóknum og varðveislu, jákvæðu viðhorfi, fjölgun umdæma íslensks táknmáls, lagaumhverfi og máltækni. Markmiðið er að styrkja stöðu málsins, varðveita það til framtíðar og bæta málumhverfi og þátttökumöguleika táknmálsfólks.

     2.      Hvernig miðar framkvæmd þeirra aðgerða sem kveðið er á um í aðgerðaáætlun málstefnu íslensks táknmáls 2024–2027? Hvaða aðgerðum, eftir því sem við á, er lokið, hvaða aðgerðir eru komnar til framkvæmda en er ólokið og hvaða aðgerðir eru óhafnar?
    Aðgerðaáætlunin nær til 32 aðgerða sem heyra undir fjölbreyttan hóp ábyrgðaraðila. Framkvæmdir eru hafnar á 26 aðgerðum en sex aðgerðir eru enn á undirbúningsstigi. Engri aðgerð hefur verið formlega lokið.
    Meðal verkefna sem eru komin til framkvæmda eru snemmtæk íhlutun og ráðgjöf fyrir börn og fjölskyldur, samþætting þjónustu í þágu farsældar táknmálsbarna og stuðningur við skóla. Jafnframt er hafin vinna við rannsóknir og undirbúning málheildar íslensks táknmáls, aðgengi að upptökum á SignWiki, þróun fjarnáms og fjarkennslu og áframhaldandi söfnun málfanga.
    Meðal helstu ábyrgðaraðila eru menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, mennta- og barnamálaráðuneyti, Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, RÚV, Háskóli Íslands og Félag heyrnarlausra.
    Staða aðgerða 3. nóvember 2026:

Aðgerðir Staða
A1 Snemmtæk íhlutun fyrir börn og fjölskyldur Framkvæmd hafin
A2 Samþætting þjónustu í þágu farsældar táknmálsbarna Framkvæmd hafin
A3 Markvisst eftirlit með námi og kennslu táknmálsbarna í leik-, grunn- og framhaldsskólum Framkvæmd hafin
A4 Endurskoðun aðalnámskrár til að styrkja stöðu íslensks táknmáls Framkvæmd ekki hafin
A5 Nám í kennslufræði táknmáls við Háskóla Íslands Framkvæmd hafin
A6 Upplýsingar og gjaldfrjáls ráðgjöf um máltöku Framkvæmd hafin
A7 Gjaldfrjáls ráðgjöf fyrir leik- og grunnskóla Framkvæmd hafin
A8 Markviss aðlögun táknmálsbarna að tákmálssamfélagi Framkvæmd hafin
A9 Færnimat í íslensku táknmáli á grundvelli evrópskra staðla Framkvæmd ekki hafin
A10 Táknmálstalandi nemendur í leik-, grunn- og framhaldsskólum njóti náms og kennslu við hæfi Framkvæmd hafin
A11 Fræðsluefni um íslenskt táknmál Framkvæmd hafin
A12 Menningarsjóðir aðgengilegir vegna útgáfu táknmálsefnis Framkvæmd hafin
A13 Almenningur hafi aðgengi að táknmálsnámi hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra Framkvæmd hafin
B1 Verkefnaáætlun fyrir málheild um íslenskt táknmál Framkvæmd hafin
B2 Rannsóknir á íslensku táknmáli og miðlun þeirra Framkvæmd hafin
B3 Aðgengi að upptökum á SignWiki Framkvæmd hafin
C1 Upplýsingar og viðburðir á íslensku táknmáli Framkvæmd hafin
C2 Foreldrar táknmálsbarna fái faglega ráðgjöf og fræðslu um íslenskt táknmál Framkvæmd hafin
C3 Upplýsingar um réttindi tengd íslensku táknmáli verði aðgengilegar á vefjum Framkvæmd hafin
C4 Reglulegir viðburðir um íslenskt táknmál Framkvæmd hafin
C5 Fræðsla um íslenskt táknmál, sögu og menningu þess hluti af námsefni grunnskólabarna Framkvæmd hafin
C6 Jákvætt viðhorf til íslensks táknmáls til stuðnings stefnuaðgerðum stjórnvalda Framkvæmd ekki hafin
C7 Dagur íslenska táknmálsins 11. febrúar Framkvæmd hafin
D1 Þýðingar úr íslensku yfir á íslenskt táknmál og öfugt Framkvæmd hafin
D2 Endurmenntun táknmálstúlka verði tryggð sem og sérhæfing Framkvæmd ekki hafin
D3 Táknmálstalandi fólk hafi möguleika á að birta eigin sögur eða annað listrænt efni Framkvæmd hafin
D4 Aukið aðgengi efnis og fræðslu á íslensku táknmáli Framkvæmd hafin
E1 Endurskoðun laga um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra Framkvæmd ekki hafin
E2 Lög um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls metin í samræmi við málstefnu Framkvæmd ekki hafin
F1 Þróun umhverfis til fjarnáms og fjarkennslu íslensks táknmáls Framkvæmd hafin
F2 Áframhaldandi söfnun málfanga Framkvæmd hafin
F3 Táknmálstalandi fólk menntað og þjálfað í tækni sem notuð er til að byggja upp málheild íslensks táknmáls Framkvæmd hafin

     3.      Eru einhver áform uppi um hvernig málstefnu íslensks táknmáls 2024–2027 verður fylgt eftir þegar hún hefur runnið sitt skeið?
    Aðgerðaáætlunin rennur út í lok árs 2027 og mikilvægt er að ákvörðun um næstu skref verði tekin að höfðu nánu samráði við táknmálssamfélagið, málnefnd um íslenskt táknmál og ábyrgðaraðila aðgerða. Þannig verði tryggð samfella í stuðningi við íslenskt táknmál og áfram unnið að því að styrkja máltöku táknmálsbarna, varðveislu málsins og möguleika táknmálsfólks til fullrar þátttöku í samfélaginu.