Ferill 253. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 353 — 253. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs.
1. Hver eru áform ráðherra um framtíð starfs samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs?
Starf samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs hefur reynst mikilvægt síðan því var komið á fót árið 2019. Ekki eru uppi áform um að leggja starfið niður og unnið er að því að móta framtíðarfyrirkomulag þess.
2. Hefur farið fram endurskoðun á lögum nr. 45/2019, um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs, í samræmi við ákvæði til bráðabirgða II? Ef svo er, hverjar voru helstu niðurstöður endurskoðunarinnar og hvaða hagsmunaaðilar komu að henni?
Ráðuneytið vinnur að endurskoðun laga um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs nr. 45/2019, í samræmi við ákvæði til bráðabirgða II. Endanlegar niðurstöður endurskoðunar liggja ekki fyrir að svo stöddu en ráðuneytið hefur átt í víðtæku samráði við hagaðila.
Í tengslum við endurskoðun laganna hefur öllum forsvarsmönnum þeirra samtaka og félaga sem falla undir starfssvið samskiptaráðgjafa verið boðið að óska eftir fundi með ráðuneytinu til að koma athugasemdum sínum á framfæri. Ráðuneytið hefur fundað með öllum þeim sem þess óskuðu, þ.e. Bandalagi íslenskra skáta, Landssambandi ungmennafélaga, Samfés, Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, Ungmennafélagi Íslands, KFUM og KFUK, Æskulýðsvettvanginum, Körfuknattleikssambandi Íslands, Skautasambandi Íslands, Akstursíþróttasambandi Íslands, Fimleikasambandi Íslands og Knattspyrnusambandi Íslands. Jafnframt hefur ráðuneytið fundað með núverandi og fyrrum samskiptaráðgjöfum og umsjónaraðila verkefnisins.
Þess má einnig geta að áform um endurskoðun laga nr. 45/2019 voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 2. júlí 2024 (mál nr. S-134/2024) og bárust tvær umsagnir, annars vegar frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands og hins vegar frá Ungmennafélagi Íslands.
3. Hvenær rennur út núgildandi samningur ráðuneytisins við þann aðila sem sinnir starfi samskiptaráðgjafa? Hefur samningnum verið sagt upp eða ákvörðun tekin um að framlengja hann ekki og ef svo er, á hvaða forsendum?
Núgildandi samningur um umsjón með starfsemi samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs gildir til 31. desember 2026. Samningnum hefur ekki verið sagt upp og hefur ráðuneytið það til skoðunar hvort forsendur séu til framlengingar samningsins.
4. Hefur ráðherra tekið ákvörðun, eða eru uppi áform, um að breyta fyrirkomulagi starfs samskiptaráðgjafa, færa verkefni hans til annars aðila eða leggja starfið niður? Ef svo er, í hverju felast fyrirhugaðar breytingar?
Ekki eru áform um að leggja niður starf samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. Fyrirkomulag starfseminnar er til skoðunar með hliðsjón af þeim sjónarmiðum sem fram hafa komið í samráði við hagsmunaaðila og af reynslu núverandi fyrirkomulags. Unnið er að því að finna bestu lausnina til framtíðar. Áfram verður byggt á lögbundnu hlutverki og markmiðum samskiptaráðgjafa.
5. Hvaða samráð hefur átt sér stað við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands og önnur íþrótta- og æskulýðssamtök um framtíð starfs samskiptaráðgjafa?
Talsvert samráð hefur þegar átt sér stað við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands og Æskulýðsvettvanginn (samstarfsvettvangur Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og UMFÍ) um framtíð starfsins líkt og áður hefur verið rakið og vísast til svars við 2. tölul. fyrirspurnarinnar. Ráðuneytið mun áfram eiga í samráði við hagaðila eftir því sem málinu vindur fram.