Ferill 304. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 354 — 304. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um nýjan talnakvarða í lokanámsmati grunnskóla.
Frá Ingibjörgu Isaksen.
1. Hvaða hæfni þarf nemandi að sýna til að hljóta einkunnirnar 7, 8, 9 og 10 í lokanámsmati grunnskóla og hvað greinir einkunnirnar að? Hvaða faglegu rök liggja að baki því að nemandi sem uppfyllir hæfniviðmið aðalnámskrár hljóti einkunnina 7 en þurfi að sýna frekari hæfni til að hljóta hæstu einkunn? Óskað er eftir að matsviðmiðin fylgi svarinu.
2. Hvernig verður tryggt að verkefni og próf gefi öllum nemendum tækifæri til að sýna þá hæfni sem þarf til að hljóta einkunnirnar 8, 9 og 10?
3. Hvernig eiga kennarar að nýta niðurstöður prófa og verkefna yfir skólaárið við ákvörðun lokaeinkunnar? Á lokaeinkunn að byggjast á meðaltali einkunna sem nemandi hefur hlotið yfir skólaárið eða þeirri hæfni sem hann hefur náð við lok námsins?
4. Hvernig verður tryggt að kennarar meti hæfni nemenda með sambærilegum hætti og að sambærileg frammistaða leiði til sömu einkunnar óháð skóla eða kennara?
5. Hvenær verða endanleg matsviðmið tilbúin og leiðbeiningar og hvenær verður nauðsynlegum breytingum á námsumsjónarkerfum lokið?
6. Hvernig verður tryggt að skólar hafi nægan tíma til undirbúnings og að skráning og miðlun einkunna milli skólastiga verði tilbúin fyrir brautskráningu úr grunnskóla og innritun í framhaldsskóla vorið 2027?
7. Hverjar voru niðurstöður könnunar Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu um stuðning við innleiðingu á talnakvarða og vægi flokka, einkum hvað varðar skilning skóla á kvarðanum, stöðu undirbúnings og þörf fyrir leiðbeiningar til kennara, nemenda og foreldra? Óskað er eftir heildarniðurstöðum könnunarinnar ásamt upplýsingum um fjölda svarenda og svarhlutfall.
8. Hvenær bárust ráðuneytinu niðurstöður fyrrnefndrar könnunar og hvernig hefur verið brugðist við þeim?
9. Er ráðherra reiðubúinn að fresta innleiðingu nýs talnakvarða í lokanámsmati grunnskóla um eitt ár svo að unnt verði að ljúka undirbúningi í samráði við kennara og skólastjórnendur og tryggja að matsviðmið, dæmi um verkefni og upplýsingar til nemenda og foreldra liggi fyrir áður en næsti útskriftarárgangur hefur skólaárið? Ef svo er ekki, hvaða faglegu rök mæla gegn frestun?
Skriflegt svar óskast.