Ferill 305. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 355  —  305. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um mönnunarviðmið og öryggi sjúklinga á bráðalegudeildum.

Frá Ragnhildi Jónsdóttur.


     1.      Hvernig hefur tillögum í skýrslu vinnuhóps heilbrigðisráðuneytis um mönnunarviðmið í hjúkrun frá árinu 2024 og niðurstöðum og tillögum í skýrslu um innleiðingu mönnunarviðmiða í hjúkrun á bráðalegudeildum Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri frá árinu 2026 verið fylgt eftir? Hvaða aðgerðir hafa þegar komið til framkvæmda og hverjum er enn ólokið?
     2.      Hvernig er fylgst með því hvort raunveruleg mönnun á þeim bráðalegudeildum sem fjallað er um í skýrslunum samræmist reiknaðri hjúkrunarþörf sjúklinga? Hvernig er áhætta vegna frávika metin, hver ber ábyrgð á ákvörðunum um viðbrögð þegar mönnun er undir viðmiðum og hvernig er tryggt að viðeigandi ráðstafanir séu gerðar til að vernda öryggi sjúklinga?
     3.      Hver verða næstu skref ráðuneytisins við innleiðingu faglegra mönnunarviðmiða? Hvaða mælikvarðar verða notaðir til að meta áhrif innleiðingar á gæði og öryggi þjónustu?
     4.      Hefur ráðuneytið tekið afstöðu til tillögu um stofnun embættis yfirhjúkrunarfræðings innan stjórnsýslunnar? Ef svo er, hver er afstaða ráðuneytisins og hvernig er fyrirhugað að tryggja samræmda faglega yfirsýn yfir mönnun og hjúkrunarþjónustu á landsvísu?


Skriflegt svar óskast.