Ferill 306. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 356  —  306. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um umferðaröryggi í Kambaskriðum.

Frá Jens Garðari Helgasyni.


     1.      Hyggst ráðherra grípa til aðgerða á þessu ári eða á fyrri hluta þess næsta til að auka öryggi vegfarenda í Kambaskriðum, milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur?
     2.      Liggur fyrir aðgerðaáætlun til að auka fallvarnir og almennt umferðaröryggi á veginum um Kambaskriður? Ef svo er, hver er áætlunin, hvenær má búast við að framkvæmdir hefjist og hvenær má vænta þess að þeim ljúki?


Skriflegt svar óskast.


Greinargerð.

    Vegurinn um Kambaskriður er hættulegur þar sem tíð skriðuföll, grjóthrun og snjóskriður ógna öryggi vegfarenda. Skólabörnum er ekið alla virka daga um skriðurnar og eru foreldrar uggandi yfir ástandi vegarins.