Ferill 307. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 357 — 307. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um vetrarþjónustu á Dettifossvegi.
Frá Jens Garðari Helgasyni.
Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að vetrarþjónusta á Dettifossvegi verði færð úr G-reglu í A- eða B-reglu? Ef svo er, hvernig hyggst ráðherra tryggja nauðsynlega fjármögnun?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.
Dettifossvegur er nýbyggður vegur og nemur fjárfestingin 4,7 milljörðum kr. Vegurinn gegnir mikilvægu hlutverki fyrir íbúa og atvinnulíf í Norðurþingi, sérstaklega íbúa Kelduhverfis og Öxarfjarðar. Sem stendur er vegurinn á G-reglu sem þýðir að það er engin þjónusta frá 1. nóvember til 20. mars. Vegurinn lokar í fyrstu snjóum. Hins vegar kveður A- eða B-regla vetrarþjónustunnar á um 7 eða 6 daga þjónustu. Aukið þjónustustig myndi þýða að þessi fjárfesting í vegakerfinu nýttist betur. Samkvæmt Vegagerðinni er áætlaður kostnaður vegna þessa um 20–25 millj. kr. á ári.