Ferill 308. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 358  —  308. mál.




Beiðni um skýrslu


frá dómsmálaráðherra um aðgerðir til að sporna við uppgangi skipulagðrar glæpastarfsemi.


Frá Karli Gauta Hjaltasyni, Bergþóri Ólasyni, Ingibjörgu Davíðsdóttur, Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur, Ragnari Jónssyni, Sigríði Á. Andersen, Snorra Mássyni, Þorgrími Sigmundssyni og Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


    Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að dómsmálaráðherra flytji Alþingi skýrslu um aðgerðir sem hefur verið ráðist í og til stendur að ráðast í með það að markmiði að sporna við uppgangi skipulagðrar glæpastarfsemi hér á landi, m.a. með hliðsjón af ábendingum sem fram koma í skýrslum greiningardeildar ríkislögreglustjóra.
    Óskað er eftir því að skýrslan taki m.a. til eftirfarandi þátta:
     a.      Hvort og hvernig lögð hafi verið áhersla á að fjölga lögreglumönnum sem rannsaka skipulagða brotastarfsemi og styðja betur við störf þeirra og til hvaða aðgerða hafi verið gripið í þeim efnum.
     b.      Hvaða aðgerða gripið hafi verið til í því skyni að efla frumkvæði lögreglu við afbrotavarnir og samfélagslöggæslu, t.d. með fjölgun almennra lögreglumanna, samfélagslögreglumanna og lögreglumanna á dreifbýlum svæðum.
     c.      Hvort áætlanir standi til þess að efla og fjölga í sérsveit ríkislögreglustjóra í ljósi mikillar fjölgunar verkefna sveitarinnar, hversu öflug sveitin þurfi að vera að mati ráðherra og hvenær þeim markmiðum skuli náð.
     d.      Hvort og þá á hvern hátt rannsóknarúrræði lögreglu hafi verið rýmkuð eða þeim fjölgað eftir ábendingar í skýrslum greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Þá er óskað eftir samanburði á rannsóknarúrræðum lögreglunnar við úrræði lögreglu annars staðar á Norðurlöndum.
     e.      Hvernig ráðherra hyggist bregðast við þeirri þróun sem orðið hefur annars staðar á Norðurlöndunum að glæpasamtök noti börn til að fremja alvarlega glæpi og hvort ráðherra hafi áætlun um hvernig forða megi því að svipuð þróun verði hér á landi.
     f.      Hvort til standi að auðvelda enn frekar brottvísanir erlendra aðila sem taldir eru tengjast skipulögðum glæpasamtökum og hverjar séu að mati ráðherra helstu hindranir í vegi fyrir slíkum aðgerðum.
     g.      Hvort til standi að leggja til breytingu á lögum um íslenskan ríkisborgararétt, nr. 100/1952, til að mynda þannig að umsækjandi þurfi að vera búsettur lengur hér á landi áður en ríkisborgararéttur er veittur, í ljósi athugasemda sem fram hafa komið í skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra um að menn gætu hlotið ríkisborgararétt áður en upplýsingar um tengsl þeirra við hryðjuverkasamtök bærust lögreglu.
     h.      Hvort gripið hafi verið til aðgerða til að fyrirbyggja að umsækjendur um alþjóðlega vernd sæti, sökum bágrar félagsstöðu sinnar, misnotkun og kúgun af ýmsum toga, svo sem mansali, og hvort frekari aðgerðir séu fyrirhugaðar í því skyni.
     i.      Hvort gripið hafi verið til aðgerða, og þá hvaða, til að koma í veg fyrir að glæpasamtök misnoti opinbera þjónustu og kerfi sem lið í skipulagðri starfsemi sinni. Þar er átt við bótakerfi, vinnumiðlun, móttökukerfi vegna flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd og ýmsa félagslega aðstoð sem stendur þeim til boða.

Greinargerð.

    Greiningardeild ríkislögreglustjóra tók til starfa 1. janúar 2007 og er hlutverki og markmiðum deildarinnar lýst í reglugerð nr. 404/2007 en hún á m.a. að leggja mat á hættu á skipulagðri glæpastarfsemi með skýrslugerð og stefnumiðaðri greiningu.
    Fyrsta skýrsla þessarar gerðar var unnin fyrir árið 2008. Í þeirri skýrslu og þeim sem síðar voru unnar var dregin upp heildarmynd af skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi.
    Í skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra frá árinu 2015 um mat á skipulagðri brotastarfsemi kemur fram að lögreglan telji að henni sé ekki fært að halda uppi ásættanlegri frumkvæðislöggæslu vegna fjárskorts og manneklu. Lögreglan sé undirmönnuð og brýnt sé að fjölga lögreglumönnum. Þá sé talið að verði lögreglunni áfram sniðinn svo þröngur stakkur sé sú hætta fyrir hendi að umfang skipulagðrar brotastarfsemi aukist án viðspyrnu samfélagsins. Í skýrslunni er m.a. fjallað um aukna hættu á tölvubrotum, peningaþvætti og mansali og jafnframt þá hættu að flóttafólk í bágri stöðu sæti kúgun og misneytingu af hálfu skipulagðra glæpasamtaka.
    Í sambærilegri skýrslu greiningardeildarinnar frá árinu 2017 er m.a. fjallað um að skipulögðum brotahópum hafi vaxið ásmegin og að lögreglan glími við manneklu, fjárskort og aukið álag. Einnig er fjallað um að vegna skorts á mannafla og ófullnægjandi tækjabúnaðar sé farþegalistagreiningum lítið sinnt en slík greining sé þó eitt öflugasta tæki lögreglu við landamæraeftirlit. Þá kemur fram að störf lögreglu séu um flest erfiðari og margslungnari en áður var, ekki síst vegna alþjóðavæðingar. Brýnt sé að styrkja lögregluna þannig að hún sé þess megnug að tryggja réttaröryggi borgaranna og vernda grundvallarhagsmuni ríkisins.
    Áhyggjur lögreglunnar af vexti skipulagðrar glæpastarfsemi eru áfram tíundaðar í áhættumatsskýrslu greiningardeildarinnar frá árinu 2019. Í skýrslunni er lagt fram líkan löggæsluáætlunar um fjögur áhættustig og er niðurstaða matsins sú að skipulögð glæpastarfsemi valdi „gífurlegri áhættu“ en það er alvarlegasta stigið. Greiningardeildin telur skipulagða glæpastarfsemi alvarlegustu ógnina við samfélag og einstaklinga að náttúruhamförum frátöldum. Í skýrslunni er geta lögreglunnar til að sporna við skipulagðri glæpastarfsemi talin lítil.
    Í skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra frá árinu 2021 segir að áhætta á Íslandi vegna skipulagðrar brotastarfsemi teljist mjög mikil. Þá segir í skýrslunni: „Lögregla hefur upplýsingar um að hingað til lands sé flutt fólk er sæti misneytingu og jafnvel mansali. Á Íslandi eru starfandi glæpahópar sem eru tengdir ákveðnum þjóðarbrotum frá Mið-Austurlöndum og Suðaustur-Evrópu og stunda skipulagt smygl á fólki og mansal.“
    Árið 2025 gaf ríkislögreglustjóri út hættumatsskýrslu greiningardeildar um hryðjuverkaógn á Íslandi. Þar er m.a. fjallað um að alvarlegt ofbeldi meðal ungmenna hafi aukist. Kemur þar fram að ungmenni í viðkvæmri stöðu séu oft berskjölduð fyrir öfgum á internetinu og að brotahópar sem og þeir sem aðhyllast öfgahyggju reyni þar að nálgast börn og ungmenni til að efla sinn málstað. Slík þróun hafi þegar sést í nágrannalöndum okkar og þekkist á ensku sem „crime terror nexus“ og geti skapað alvarlega ógn þar sem brota- og hryðjuverkastarfsemi skarast. Þá segir enn fremur í skýrslunni:
     „Að endingu skal hér nefna vaxandi ógn sem felst í sambandi skipulagðra brotahópa og hryðjuverkasamtaka líkt og nefnt var í upphafi þessa kafla. Slíkar tengingar eru ein birtingarmynd hryðjuverkaógnar sem veldur lögreglu á Norðurlöndum áhyggjum. Sænska öryggislögreglan hefur staðfest að stjórnvöld í Íran nýti sér brotahópa innan Svíþjóðar til að ráðast gegn öðrum ríkjum, hópum eða einstaklingum sem þau telja andstæðinga klerkastjórnarinnar í Teheran.“
    Í skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra frá febrúar 2026 um innra öryggi Íslands er enn á ný varað við þeirri alvarlegu ógn sem stafar af skipulagðri brotastarfsemi á Íslandi. Þar kemur fram að brotahópar hafi orðið sérhæfðari, beiti í auknum mæli ofbeldi og hótunum og hagnýti sér bæði einstaklinga í viðkvæmri stöðu og lögleg fyrirtæki í þágu brotastarfsemi. Þá er tilgreint að hefðbundnar afbrotatölur gefi ekki fullnægjandi mynd af umfangi skipulagðrar brotastarfsemi, enda séu slík brot oft dulin.
    Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn og sviðsstjóri öryggis- og greiningarsviðs ríkislögreglustjóra, tók undir þessa þróun í viðtali í Spursmálum 23. október 2026. Í máli hans kom fram að um tuttugu skipulagðir brotahópar væru starfandi hér á landi, flestir með rík tengsl við útlönd, og að vopnaútköllum lögreglu hefði fjölgað. Fjöldi skipulagðra hópa hefur því farið stigvaxandi á síðustu árum. Samkvæmt skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra árið 2015 var talið að fimm til tíu hópar væru virkir á sviði skipulagðrar brotastarfsemi og í skýrslu frá árinu 2017 var talið að um tíu slíkir hópar væru starfræktir. Fjöldi skipulagðra brotahópa hefur því nálega fjórfaldast á rúmum áratug.
    Í fyrrnefndu viðtali lýsti Karl Steinar jafnframt áhyggjum af þeirri þróun að einstaklingar tækju að sér alvarleg ofbeldisverk gegn greiðslu fyrir skipulagða brotahópa, jafnvel manndráp. Enn fremur hefur ofbeldis- og hótunarbrotum gegn lögreglumönnum fjölgað verulega á undanförnum árum, en tilkynntar hótanir nær þrefölduðust á árunum 2016–2025. Þrátt fyrir þessa þróun og sívaxandi umfang og alvarleika skipulagðrar brotastarfsemi hefur hlutfall menntaðra lögreglumanna af mannfjölda lækkað á sama tímabili.
    Í ljósi alls framangreinds, skýrslna greiningardeildar ríkislögreglustjóra og þróunar í nálægum löndum telja skýrslubeiðendur að nauðsynlegt sé að kalla eftir upplýsingum um til hvaða aðgerða hafi verið gripið til þess að bregðast við ábendingum greiningardeildar ríkislögreglustjóra í því skyni að styðja lögregluna í baráttunni við skipulagða glæpastarfsemi.