Ferill 309. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 360  —  309. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um mannanöfn, nr. 45/1996.

Flm.: Heiða Ingimarsdóttir, Sigmar Guðmundsson, Eiríkur Björn Björgvinsson, Grímur Grímsson, María Rut Kristinsdóttir, Pawel Bartoszek, Sandra Sigurðardóttir.


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „föður- eða móðurnöfn“ í 1. mgr. kemur: foreldrisnöfn.
     b.      Í stað orðanna „föður eða móður“ í 1. og 2. málsl. 2. mgr. kemur: foreldris.
     c.      Í stað orðsins „föður“ í 3. málsl. 2. mgr. kemur: foreldris.
     d.      Í stað orðanna „afa síns“ í 4. málsl. 2. mgr. kemur: stórforeldris síns.
     e.      3. mgr. orðast svo:
                      Foreldrisnöfn eru mynduð þannig að á eftir eiginnafni eða eiginnöfnum og millinafni, ef því er að skipta, kemur nafn foreldris í eignarfalli með eða án viðbótarinnar son, dóttir eða bur.
     f.      Orðin „hvort heldur er í karllegg eða kvenlegg“ í 5. mgr. falla brott.
     g.      Í stað orðanna „föður eða móður“ í 6. mgr. kemur: foreldris.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Með frumvarpinu er lögð til breyting á 8. gr. laga um mannanöfn. Verði frumvarpið að lögum verður fólki frjálst að velja endingu foreldrisnafns óháð opinberri kynskráningu.

Umfjöllun um sambærileg mál á fyrri þingum.
    Sambærilegt mál var lagt fram áður á bæði 154. og 155. löggjafarþingi (65. mál). Í því máli var sama breyting og lögð er til í þessu frumvarpi lögð fram ásamt breytingum á öðrum lögum. Breiður samhljómur ríkti á meðal umsagnaraðila um nauðsyn þess að bæta stöðu kynsegin fólks og að frjáls ending kenninafna óháð kynskráningu væri réttarbót. Skilaði Þjóðskrá Íslands m.a. inn umsögn sem var jákvæð í garð fyrirhugaðra breytinga á 8. gr. laga um mannanöfn. Vísaði stofnunin þá til þess að breytingin væri ekki aðeins til þess fallin að auka réttindi kynsegin einstaklinga til foreldrakenningar heldur myndi það einnig jafna réttindi allra til foreldranafna. Benti Þjóðskrá Íslands í umsögn sinni á að í núverandi mynd fælist í ákvæðinu mismunun, þar sem aðeins kynsegin einstaklingar geta nú kennt sig við foreldri án endingar, en með breytingunni nær þessi réttur til allra. Þá þótti einnig til bóta að vísa til foreldris í stað móður eða föður og vísaði stofnunin til þess að hún hefði ekki getað orðið við beiðnum frá kynsegin fólki vegna þessara takmarkana laganna.

Tilurð og nauðsyn.
    Með frumvarpinu er lagt til að skráning kyns í þjóðskrá stýri því ekki hvers konar foreldrisnöfn fólk má velja sér. Með því er ætlunin að leiðrétta skekkju sem fylgdi samþykkt laga um kynrænt sjálfræði vegna tveggja hliðstæðra en ólíkra breytinga á lögum um mannanöfn.
    Með samþykkt laga um kynrænt sjálfræði var annars vegar fellt brott ákvæði 5. gr. mannanafnalaga sem kvað á um að stúlku skyldi gefa kvenmannsnafn og dreng karlmannsnafn. Samkvæmt greinargerð þótti eðlilegt í ljósi breyttra viðhorfa og efnis frumvarps um kynrænt sjálfræði að fella brott ákvæði sem byggðist alfarið á tvíhyggju um kyn.
    Hins vegar bættist nýr málsliður við 8. gr. mannanafnalaga sem heimilar einstaklingum með hlutlausa kynskráningu í þjóðskrá að nota föður- eða móðurnafn, þ.e. nafn föður eða móður í eignarfalli án viðbótarinnar -son eða -dóttir eða með viðbótinni -bur. Sú breyting gagnast hins vegar þrengri hópi þar sem hún stendur aðeins til boða þeim kynsegin einstaklingum sem velja að taka upp hlutlausa kynskráningu í þjóðskrá.
    Í rannsókn sem unnin var fyrir Kvenréttindafélag Íslands kemur fram að mörg kvár veigri sér við að breyta kynskráningu sinni af ótta við mismunun eða skrifræðislegar hindranir. Hlutlaus skráning kyns getur, enn sem komið er, skapað hindranir í stjórnsýslu heilbrigðiskerfisins en hún styðst við skráningu kyns í þjóðskrá og boðar t.d. ekki kvár með leg í leghálskrabbameinsskimanir eða kvár með blöðruhálskirtil í blöðruhálskrabbameinsskimanir. Breytt kynskráning getur einnig haft ófyrirséðar afleiðingar þar sem nokkurt bakslag hefur orðið í baráttu hinsegin fólks bæði hérlendis og erlendis og fólk óttast hvað framtíðin kunni að bera í skauti sér. Sum kvár veigra sér við því að breyta kynskráningu sinni af öryggisástæðum, m.a. vegna ferðalaga þar sem ekki öll ríki viðurkenna hlutlausa kynskráningu og í sumum ríkjum er beinlínis refsivert að vera trans. Þá má einnig leiða líkur að því að þar sem aðeins má breyta skráningu kyns einu sinni sé fjöldi trans fólks, og þá einkum kynsegin fólks, sem vilji síður taka svo endanlega ákvörðun, enda hefur lengi verið vitað að kynvitund fólks geti verið flæðandi og breytileg.
    Það orkar tvímælis að á sama tíma og krafa um kynjaskipt eiginnöfn var fjarlægð úr mannanafnalögum hafi slíkt hið sama ekki verið gert gagnvart kenninöfnum. Núverandi fyrirkomulag stendur í vegi fyrir því að hluti kynsegin fólks geti að fullu nýtt rétt sinn til að breyta nafni sínu. Þetta stangast á við það markmið laga um kynrænt sjálfræði að tryggt sé að kynvitund fólks njóti viðurkenningar, enda er rétturinn til nafns stór þáttur í rétti fólks til að skilgreina kyn sitt. Því er hér lagt til að allar útgáfur foreldrisnafna sem gildandi lög heimila standi einstaklingum til boða óháð kynskráningu.
    Meginbreytingin felst í e-lið 1. gr. frumvarpsins en aðrir stafliðir snúa að lagfæringum sem leiðir af þeirri breytingu.