Ferill 311. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 362 — 311. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um val á meðferðarstað erlendis, m.a. fyrir börn með klumbufót.
Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.
1. Hvaða viðmið nota Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) við val á meðferðarstað erlendis, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 712/2010? Hvert er vægi sérþekkingar, reynslu og árangurs meðferðaraðila annars vegar og kostnaðar gildandi samninga og staðsetningar innan EES hins vegar? Er mat á gæðum og árangri skjalfest í hverju tilviki?
2. Var haft samráð við Landspítala og landlækni um val á meðferðarstað fyrir börn með klumbufót?
3. Hefur SÍ hætt að samþykkja greiðsluþátttöku vegna meðferðar barna með klumbufót í Bandaríkjunum? Ef svo er, hvenær var það ákveðið og á hvaða forsendum?
4. Lá fyrir faglegt mat á því hvort árangur og gæði meðferðar á Karólínska sjúkrahúsinu eða öðrum sjúkrahúsum innan EES væru sambærileg við meðferð í Bandaríkjunum? Ef svo er, hverjir unnu matið og hver var niðurstaðan?
5. Hver er meðalkostnaður SÍ vegna meðferðar barns með klumbufót innan EES annars vegar og í Bandaríkjunum hins vegar, að ferða- og dvalarkostnaði meðtöldum? Hefur kostnaðarmunur haft áhrif á val á meðferðarstað?
6. Hversu mörg börn hafa fengið greiðsluþátttöku vegna meðferðar við klumbufæti erlendis frá árinu 2020 og á hvaða sjúkrahúsum? Hversu margar umsóknir bárust á sama tímabili um meðferð utan EES, hversu margar voru samþykktar og hversu mörgum var synjað eða vísað á annan meðferðarstað og á hvaða forsendum? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
7. Hefur stefna eða framkvæmd SÍ við samþykkt meðferðar utan EES breyst á síðustu árum? Ef svo er, hvenær og hvers vegna?
8. Hversu margar umsóknir hafa borist frá árinu 2020 um meðferð barna utan EES vegna annarra sjúkdóma eða ástands en klumbufótar, hversu margar umsóknir voru samþykktar og hversu mörgum var synjað eða vísað á meðferðarstað innan EES? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
9. Lá fyrir mat ráðuneytisins eða SÍ á áhrifum lögfestingar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks á greiðsluþátttöku vegna meðferðar erlendis áður en lög nr. 80/2025 voru samþykkt? Hefur SÍ breytt verklagi eða matsviðmiðum í kjölfarið? Ef svo er, með hvaða hætti?
10. Hyggst ráðherra endurskoða reglugerð nr. 712/2010 til að tryggja að val á meðferðarstað ráðist fyrst og fremst af gæðum og árangri meðferðar í þágu barnsins, í samræmi við lög nr. 80/2025 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins? Ef svo er, hvenær gæti sú endurskoðun farið fram?
Skriflegt svar óskast.