Ferill 313. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 365  —  313. mál.
Stjórnartillaga.



Tillaga til þingsályktunar


um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027–2041.


Frá innviðaráðherra.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að vinna að framkvæmd eftirfarandi stefnu í byggðamálum til 15 ára og aðgerðaáætlun til fimm ára, sbr. lög um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði innviða.

I. FRAMTÍÐARSÝN

    Ísland verði í fremstu röð með trausta og örugga innviði, öflug sveitarfélög, verðmætasköpun og framsækna þjónustu. Tenging byggða og Íslands við umheiminn verði í jafnvægi við umhverfið.
    Meginmarkmiðið er að innviðir mæti þörfum samfélagsins og byggðir og sveitarfélög um land allt verði sjálfbær.
    Í öllum landshlutum verði blómlegar byggðir og öflugir byggðakjarnar þar sem stuðlað verði að bættum lífskjörum landsmanna og búsetufrelsi með sem jöfnustu aðgengi að grunnþjónustu og fjölbreyttum atvinnutækifærum.

II. LYKILVIÐFANGSEFNI

    Til að takast á við áskoranir á sviði byggðaþróunar verði unnið að eftirfarandi fimm lykilviðfangsefnum:
     1.      Fjölbreyttu atvinnulífi.
     2.      Lýðfræðilegri þróun og grunnþjónustu.
     3.      Innviðum.
     4.      Alþjóðlegri samkeppnisstöðu og sjálfbærni byggða.
     5.      Umhverfis- og loftslagsmálum.


III. MARKMIÐ, ÁHERSLUR OG MÆLIKVARÐAR

    Markmið stjórnvalda í byggðamálum eru að:
     A.      Jafna aðgengi að þjónustu.
     B.      Jafna tækifæri til atvinnu.
     C.      Stuðla að sjálfbærri þróun byggða um land allt.
    Sérstök áhersla verði lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf.
    Við útfærslu á markmiðum verði leitast við að beita aðferðafræði altækrar hönnunar þar sem tekið er mið af ólíkri stöðu og þörfum allra íbúa landsins.
    Eftirfarandi áherslur verði lagðar til grundvallar aðgerðum og samhæfingu við aðrar opinberar áætlanir þannig að markmiðum byggðaáætlunar verði náð.

A. Jafna aðgengi að þjónustu.
     a.      Opinber stefnumörkun hafi byggðasjónarmið að leiðarljósi.
     b.      Grunnþjónusta verði veitt sem mest í nærumhverfi.
     c.      Aðgengi að miðlægri þjónustu verði tryggt og kostnaður við þjónustusókn óháð búsetu jafnaður.
     d.      Tryggðir verði traustir fjarskiptainnviðir um allt land.
     e.      Tækni verði nýtt markvisst til að efla þjónustu og bæta aðgengi.
     f.      Tryggð verði tækifæri til menntunar um land allt.
     g.      Samgönguinnviðir styðji við daglegt líf.
     h.      Vetrarþjónusta styðji örugga vinnu- og þjónustusókn.
     i.      Framboð af menningu, listum og íþróttum verði tryggt óháð búsetu og efnahag.
     j.      Öryggi og viðbragðsgeta verði efld um allt land.
     k.      Jöfnun orkukostnaðar verði aukin og orkuöryggi eflt.

Mælikvarðar sem stuðst verði við til að meta framgang markmiðs:
     1.      Fjöldi íbúa sem búa í meira en 30 kílómetra fjarlægð frá heilsugæslustöð, leik-, grunn- og framhaldsskóla og dagvöruverslun.
     2.      Hlutfallsleg skólasókn á framhaldsskólastigi (15–19 ára og 20 ára og eldri) og háskólastigi (19–29 ára og 30 ára og eldri).
     3.      Mismunur á húshitunarkostnaði heimila.

B. Jafna tækifæri til atvinnu.
     a.      Fjölbreytt, sjálfbær atvinnuuppbygging verði efld um allt land.
     b.      Stuðlað verði að nýsköpun, frumkvöðlastarfi og grænni atvinnustarfsemi.
     c.      Afhendingaröryggi raforku verði styrkt með dreifðari orkuvinnslu og orkuskiptum.
     d.      Óstaðbundnum störfum verði fjölgað og staðsetning opinberra starfa taki mið af byggðasjónarmiðum.
     e.      Þekkingarsetur og vinnustaðaklasar verði efld og þróuð.
     f.      Menning og skapandi greinar styðji við sjálfbæra byggðaþróun.
     g.      Hringrásarhagkerfi, sjálfbær auðlindanýting og loftslagslausnir styðji við atvinnu- og byggðaþróun.
     h.      Stuðlað verði að nýliðun og aðlögun að breyttum atvinnuháttum.
     i.      Byggðatengdar aflaheimildir verði nýttar til að styrkja smærri sjávarbyggðir.
     j.      Styrkleikar einstakra svæða verði greindir og nýttir við atvinnuuppbyggingu.

Mælikvarðar sem stuðst verði við til að meta framgang markmiðs:
     1.      Hlutfall starfandi.
     2.      Hlutfall ríkisstarfa af íbúafjölda á vinnualdri (18–69 ára).
     3.      Fjölbreytni atvinnulífs samkvæmt ÍSAT gögnum.

C. Stuðla að sjálfbærri þróun byggða um land allt.
     a.      Mannauður, menning, félagslegur jöfnuður og lýðfræðileg sjálfbærni styðji við þróun öflugra byggða.
     b.      Stuðlað verði að virkri þátttöku innflytjenda í samfélögum.
     c.      Samspil dreifbýlis og þéttbýlis verði þróað til eflingar sjálfbærri byggðaþróun.
     d.      Öflug sveitarfélög og sterk vinnu- og þjónustusóknarsvæði styðji við sjálfbæra þróun byggða.
     e.      Aðferðafræði sóknaráætlana landshluta og verkefnisins Brothættra byggða verði styrkt og þróuð áfram.
     f.      Stuðlað verði að fjölbreyttu framboði íbúða og atvinnuhúsnæðis um land allt.
     g.      Skilvirkt regluverk styðji við sjálfbæra þróun byggða.
     h.      Þekking, rannsóknir og alþjóðlegt samstarf á sviði byggðamála styrki atvinnu- og byggðaþróun.
     i.      Byggðaþróun taki mið af loftslagsaðlögun, náttúruvernd og líffræðilegri fjölbreytni.
     j.      Samfélagsinnviðir, seigla og viðbragðsgeta verði efld.
     k.      Byggðaþróun taki mið af fæðuöryggi og sjálfbærri land- og auðlindanýtingu.
     l.      Stuðlað verði að lýðræðislegri þátttöku almennings, ekki síst ungs fólks og fólks af erlendum uppruna.

Mælikvarðar sem stuðst verði við til að meta framgang markmiðs:
     1.      Framfærsluhlutfall (0–17 ára og 70 ára og eldri).
     2.      Lýðfræðilegir veikleikar.
     3.      Meðalatvinnutekjur.

IV. SAMHÆFING VIÐ AÐRAR STEFNUR OG ÁÆTLANIR

    Alþingi ályktar að náið samráð milli ráðuneyta, stofnana ríkisins, sveitarfélaga, atvinnulífs, félagasamtaka og almennings sé mikilvægt við framkvæmd byggðastefnu. Með því móti verði tryggð samhæfing við aðra stefnumótun og áætlanagerð hins opinbera. Meðal þess sem horft verði til í því sambandi er eftirfarandi:
     a.      Regluleg umræða fari fram á vettvangi ríkisstjórnarinnar um stöðu og framkvæmd byggðaáætlunar og tækifæri til samhæfingar.
     b.      Stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál verði efldur og virk þátttaka þvert á Stjórnarráðið tryggð.
     c.      Tryggð verði fagleg aðkoma Byggðastofnunar að framkvæmd og eftirfylgni byggðaáætlunar.
     d.      Þjónustukort sem sýnir aðgengi íbúa landsins að mikilvægum búsetuþáttum ásamt mælaborði um framvindu byggðamála verði efld og þróuð.
     e.      Samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga og landshlutasamtök sveitarfélaga sé virkt.
     f.      Fram fari kerfisbundin miðlun upplýsinga, rannsóknir, fræðsla og alþjóðlegur samanburður.
     g.      Tryggð verði regluleg upplýsingagjöf til Alþingis.
    Við framkvæmd laga um opinber fjármál verði fjallað sérstaklega um byggðasjónarmið í tengslum við mótun og framlagningu fjármálaáætlunar og fjárlaga hvers árs.

V. AÐGERÐAÁÆTLUN FYRIR ÁRIN 2027–2031

    Alþingi ályktar að unnið skuli í samræmi við eftirfarandi aðgerðaáætlun til að tryggja framgang markmiða byggðaáætlunar.
    Einstök ráðuneyti fjármagni aðgerðir eftir því sem við á. Fjárheimildir byggðaáætlunar verði nýttar til fjármögnunar aðgerða, ýmist til samfjármögnunar með ábyrgðar- og framkvæmdaraðilum eða að öllu leyti, eftir því sem fjárheimildir leyfa. Fjárhæðir sem tilgreindar eru við einstakar aðgerðir taka einungis til framlaga af fjárheimildum byggðaáætlunar. Önnur fjármögnun kemur frá viðkomandi ábyrgðarráðuneyti eða eftir atvikum viðkomandi undirstofnunum.

A. Jafna aðgengi að þjónustu.
A.1. Verslun í minni byggðarlögum.
     Markmið: Að stutt verði við rekstur dagvöruverslunar í minni byggðarlögum til að viðhalda mikilvægri grunnþjónustu.
     Stutt lýsing: Með fjárstuðningi verði komið til móts við vanda dagvöruverslana á fámennum markaðssvæðum og búa við háan flutningskostnað, óhagkvæm innkaup og erfið rekstrarskilyrði.
     Viðmið um árangur: Að byggðarlögum án dagvöruverslana fjölgi ekki.
     Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun.
     Dæmi um samstarfsaðila: Landshlutasamtök sveitarfélaga, sveitarfélög.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Stefna um opinbera þjónustu.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 82 millj. kr.

A.2. Stuðningur við innflytjendur á landsbyggðinni.
     Markmið: Að auka aðgengi innflytjenda á landsbyggðinni að námi, ráðgjöf og upplýsingum.
     Stutt lýsing: Í samstarfi ríkis, sveitarfélaga, atvinnulífs og félagasamtaka verði unnið að skapandi lausnum til að draga úr hindrunum sem innflytjendur á landsbyggðinni geta staðið frammi fyrir vegna búsetu sinnar og auka aðgengi þeirra að íslenskunámi, samfélagsfræðslu, ráðgjöf og upplýsingum. Sérstaklega verði horft til svæða fjarri starfsstöðvum Vinnumálastofnunar, tungumálaskóla og símenntunarmiðstöðva. Byggt verði á styrkleikum nærsamfélaga og nýtingu tæknilausna til að auka aðgengi að þjónustu óháð búsetu. Aðgerðin felur í sér að:
     a.      aðgengi að vönduðu íslenskunámi verði aukið með gæða fjarkennslu og stuðningi við notkun íslensku í daglegu lífi,
     b.      samfélagsfræðsla verði aðgengileg rafrænt sem og fræðsla um búsetu á landsbyggðinni og stuðning við íbúa við að sækja þjónustu fjarri heimili og
     c.      fleiri tækifæri verði sköpuð til að taka þátt í samfélaginu og nota íslensku í daglegum samskiptum við aðra íbúa.
     Viðmið um árangur: Fjöldi innflytjenda sem sækja íslenskunámskeið og nýta þjónustu símenntunarmiðstöðva.
     Ábyrgðarráðuneyti: Mennta- og barnamálaráðuneyti varðandi a-lið. Félags- og húsnæðismálaráðuneyti varðandi b- og c-lið.
     Framkvæmdaraðilar: Mennta- og barnamálaráðuneyti varðandi a-lið og félags- og húsnæðismálaráðuneyti varðandi b- og c-lið.
     Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög, símenntunarmiðstöðvar, tungumálaskólar, atvinnulífið, staðbundin félagasamtök og Vinnumálastofnun.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 30 millj. kr.

A.3. Sérfræðiþjónusta á heilbrigðissviði.
     Markmið: Að bæta aðgengi að sérhæfðri heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni.
     Stutt lýsing: Kallað verði eftir verkefnatillögum þar sem opinberum og einkareknum heilbrigðisþjónustuveitendum, einum eða í samstarfi, verður gefinn kostur á að sækja um stuðning til þróunar og framkvæmdar verkefna sem miða að því að bæta aðgengi að sérfræðiheilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Við mat á umsóknum verði m.a. litið til þess hvernig verkefni stuðla að auknu aðgengi að sérfræðilæknaþjónustu, nýtingu blandaðs þjónustufyrirkomulags með stað- og fjarþjónustu, auknu samstarfi milli þjónustuveitenda og bættum gæðum og hagkvæmni þjónustunnar.
     Viðmið um árangur: Hlutfall framboðs á almennri sérfræðiþjónustu til einstaklinga á heilbrigðisstofnunum utan höfuðborgarsvæðis.
     Ábyrgðarráðuneyti: Heilbrigðisráðuneyti.
     Framkvæmdaraðilar: Sérgreinasjúkrahús og einkaaðilar sem veita sérfræðiþjónustu í gegnum samninga við Sjúkratryggingar Íslands.
     Dæmi um samstarfsaðila: Sjúkratryggingar Íslands og heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Heilbrigðisstefna og stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 25 millj. kr.

A.4. Menntasjóður námsmanna.
     Markmið: Að nýta ívilnanir námslána til að bæta mönnun heilbrigðisstétta á þeim svæðum þar sem hún er veikust utan stærstu þéttbýlissvæða.
     Stutt lýsing: Áfram verði unnið með menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti að því að nýta ákvæði í lögum um Menntasjóð námsmanna sem kveða á um sérstaka ívilnun vegna námsgreina sem og sérstaka ívilnun vegna námsgreina á sérstökum svæðum. Vegna óvissu um kostnað við beitingu ívilnanaákvæða laganna verði afmörkun svæða og/eða starfsstétta skilgreind nánar en gert er í fyrirliggjandi greiningum.
     Viðmið um árangur: Að veittar hafi verið ívilnanir af hálfu Menntasjóðs sem leitt hafi til bættrar mönnunar heilbrigðisstétta á þeim svæðum sem hún er veikust utan stærstu þéttbýlissvæða.
     Ábyrgðarráðuneyti: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Heilbrigðisráðuneyti, Menntasjóður námsmanna, Byggðastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga.
     Dæmi um samstarfsaðila: Landshlutasamtök sveitarfélaga, sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir heilbrigðisumdæma.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Heilbrigðisstefna, mönnunarstefna í heilbrigðisþjónustu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum.

A.5. Heimilislækningar á landsbyggðinni.
     Markmið: Að bæta og festa í sessi mönnun heimilislækna og sérnámslækna í heimilislækningum á landsbyggðinni þar sem skortur á þeim er mestur.
     Stutt lýsing: Veittir verði styrkir vegna flutnings-, ferða- og húsnæðiskostnaðar sérnámslækna í heimilislækningum sem flytja í að minnsta kosti tíu mánuði til Vestfjarða eða Austurlands og stunda þar sérnám við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða eða Heilbrigðisstofnun Austurlands. Einnig megi veita helmingsstyrk vegna sérnáms á tilteknum starfsstöðvum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Heilbrigðisstofnun Norðurlands og Heilbrigðisstofnun Vesturlands ef fjármögnun leyfir. Sérnámið fari fram samkvæmt marklýsingu og sérnámssamningi á viðurkenndri kennslustofnun til kennslu sérnáms í heimilislækningum og uppfylla skilyrði reglugerðar nr. 856/2023. Styrkjum verði úthlutað til viðkomandi heilbrigðisstofnunar vegna sérnámslækna sem uppfylla skilyrði aðgerðarinnar. Settar verði úthlutunarreglur þar sem nánar verður kveðið á um skilyrði, umsóknarferli, ráðstöfun styrkja og uppgjör.
     Viðmið um árangur: Að heimilislæknum og sérnámslæknum í heimilislækningum hafi fjölgað á þeim stöðum sem um ræðir.
     Ábyrgðarráðuneyti: Heilbrigðisráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Kennslustjóri sérnáms í heimilislækningum.
     Dæmi um samstarfsaðila: Heilbrigðisstofnanir heilbrigðisumdæma.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Heilbrigðisstefna og mönnunarstefna í heilbrigðisþjónustu.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 25 millj. kr.

A.6. Almenningssamgöngur til og frá borgarsvæðum.
     Markmið: Að bæta aðgengi að borgarsvæðum og miðlægri þjónustu með áherslu á samþættingu mismunandi samgöngumáta.
     Stutt lýsing: Haldið verði áfram að greina og kortleggja heildstætt kerfi almenningssamgangna til og frá borgarsvæðum og innan þeirra þar sem samgöngumiðjan er höfuðborgarsvæðið annars vegar og Akureyri hins vegar. Jafnframt verði þarfir notenda greindar og lagðar til úrbætur. Horft verði til niðurstöðu væntanlegrar rannsóknar á vinnu- og skólasókn og greiningar á umferð á borgarsvæðum, sbr. aðgerð C.3 um þróunaráætlanir borgarsvæða.
     Viðmið um árangur: Að heildstæð greining á almenningssamgöngum til og frá borgarsvæðum liggi fyrir, ásamt forgangsröðuðum tillögum.
     Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðilar: Innviðaráðuneyti og Vegagerðin.
     Dæmi um samstarfsaðila: Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf., Byggðastofnun, landshlutasamtök sveitarfélaga, sveitarfélög og ungmennaráð.
     Tímabil: 2027–2028.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Samgönguáætlun, borgarstefna, Ferðumst saman – heildarstefna í almenningssamgöngum milli byggða, aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.

A.7. Almenningssamgöngur milli byggða.
     Markmið: Að styðja við þróun almenningssamgangna milli byggða.
     Stutt lýsing: Stuðningur ríkisins við almenningssamgöngur verði endurskilgreindur þar sem við á, þannig að hann styðji betur við að efla og stækka vinnu- og þjónustusóknarsvæði. Sérstök áhersla verði lögð á fjölkjarna og landstór sveitarfélög, með það að markmiði að styðja við samstarf og sameiningu sveitarfélaga. Á fáförnum leiðum verði horft til aukinnar samnýtingar almenningssamgangna og póst- og pakkaflutninga til að bæta rekstrarforsendur þjónustunnar. Þjónustuleiðir verði skilgreindar í samráði við heimafólk á hverju svæði og tekið mið af þörfum barna og ungmenna vegna lista-, íþrótta- og tómstundastarfs, sem og þörfum fatlaðs fólks, eldri borgara og annarra sem þurfa að reiða sig á þjónustuna. Horft verði til áforma um lagasetningu um almenningssamgöngur á landsvísu sem hafa það að markmiði að tryggja gæði og fyrirsjáanleika og að þjónustan taki mið af þörfum samfélagsins. Einnig verði lögð áhersla á betri samþættingu almenningssamgangna við aðra ferðamáta.
     Viðmið um árangur: Að notkun íbúa á almenningssamgöngum hafi aukist.
     Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðilar: Byggðastofnun og Vegagerðin.
     Dæmi um samstarfsaðila: Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga, sveitarfélög, svæðisbundin ungmennaráð og fyrirtæki.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Samgönguáætlun, Ferðumst saman – heildarstefna í almenningssamgöngum milli byggða.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 60 millj. kr.

A.8. Íþrótta- og æskulýðsstarf í dreifðum byggðum.
     Markmið: Að auka möguleika barna og ungmenna til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi á sínum svæðum.
     Stutt lýsing: Stutt verði við ferðalög barna og ungmenna vegna þátttöku á æfingum innan fámennari og dreifðari byggða til að ferðakostnaður verði ekki takmarkandi fyrir þátttöku þeirra. Með aukinni þátttöku verði betur hægt að byggja upp gæða íþrótta- og æskulýðsstarf sem stuðlar að ástundun yfir lengri tíma. Svæðisfulltrúar íþróttahreyfingarinnar sæki um stuðning vegna ferðakostnaðar innan svæðis þar sem þeir forgangsraða verkefnum. Skoðað verði, eftir atvikum, hvort koma megi á skipulögðum frístundaakstri í samstarfi við sveitarfélög. Við framkvæmd aðgerðarinnar verði litið til aðgerðar A.7 Almenningssamgöngur milli byggða.
     Viðmið um árangur: Að börnum og ungmennum í dreifðum byggðum og tækifærum þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi hafi fjölgað.
     Ábyrgðarráðuneyti: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðilar: ÍSÍ, UMFÍ og svæðisfulltrúar íþróttahreyfingarinnar.
     Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög, landshlutasamtök sveitarfélaga, sambandsaðilar ÍSÍ og UMFÍ, svæðisbundin ungmennaráð og farsældarráð.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Íþróttastefna, lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og stefna um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 78 millj. kr.

A.9. Umferðarminni tengivegir.
     Markmið: Að flýta lagningu bundins slitlags á tengivegum.
     Stutt lýsing: Hönnunarforsendur við uppbyggingu og lagningu bundins slitlags á umferðarminni vegum verði rýndar og endurskoðaðar. Vegagerðinni verði falið að rýna hönnunarstaðla sem notaðir eru í uppbyggingu samgönguinnviða með tilliti til kostnaðar og ábata og þannig skoðað hvort flýta megi lagningu bundins slitlags á umferðarminni leiðum með ódýrari og einfaldari hætti.
     Viðmið um árangur: Að fyrir liggi rýni og eftir atvikum endurskoðaðir hönnunarstaðlar fyrir umferðarminni tengivegi sem feli í sér lækkaðan kostnað við uppbyggingu þeirra.
     Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Vegagerðin.
     Dæmi um samstarfsaðila: Landshlutasamtök sveitarfélaga, sveitarfélög.
     Tímabil: 2027.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Samgönguáætlun.

A.10. Örnám á háskólastigi.
     Markmið: Að auka framboð á háskólanámi og jafna aðgengi að háskólamenntun óháð búsetu.
     Stutt lýsing: Í samstarfi háskóla, þekkingarsetra og atvinnulífs verði þróað og boðið upp á einingabært, gæðavottað og sveigjanlegt örnám á háskólastigi. Við þróun námsins verði tekið mið af hæfniþörfum atvinnulífs og samfélaga á landsbyggðinni, einkum þörf lykilatvinnugreina fyrir sérhæfða þekkingu. Lögð verði áhersla á að námið verði skipulagt þannig að unnt sé að stunda það samhliða starfi og óháð búsetu.
     Viðmið um árangur: Að framboð gæðavottaðs örnáms sem nýtist byggðum landsins hafi aukist.
     Ábyrgðarráðuneyti: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðilar: Háskólar á Íslandi.
     Dæmi um samstarfsaðila: Þekkingarsetur og samtök atvinnulífsins.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Atvinnustefna, háskólastefna.

A.11. Stjórnsýslustöðvar ríkis í héraði.
     Markmið: Að jafna aðgengi að þjónustu og auka nýtingu stafrænnar tækni.
     Stutt lýsing: Fylgt verði eftir byggða- og þjónustumarkmiðum laga um sýslumann, nr. 9/2026, með því að jafna aðgengi að þjónustu embættisins óháð búsetu. Unnið verði að því að þróa starfsstöðvar sýslumanns um land allt sem hluta af einni þjónustuheild, auka möguleika á jöfnu aðgengi að þjónustu og afgreiðslu óháð staðsetningu og nýta rafrænar og stafrænar lausnir til að dreifa verkefnum og álagi milli starfsstöðva. Samhliða verði fjölbreyttum og sérhæfðum störfum á landsbyggðinni fjölgað til að ná markmiðum aðgerðarinnar. Horft verði m.a. til þróunar í notkun stafrænna þjónustuleiða, dreifingar verkefna milli starfsstöðva og fjölgun starfa á landsbyggðinni. Jafnframt verði unnið markvisst að því að kynna sýslumannsembættið sem nútímalegan, fjölskylduvænan og spennandi vinnustað víðs vegar um land allt.
     Viðmið um árangur: Fleiri þjónustuþættir sýslumanns verði aðgengilegir fólki óháð búsetu og að nýting stafrænna og rafrænna þjónustuleiða aukist. Samhliða muni störfum á starfsstöðvum sýslumannsembættisins á landsbyggðinni fjölga og tryggt sé að hið minnsta 65% stöðugilda séu þar.
     Ábyrgðarráðuneyti: Dómsmálaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðilar: Dómsmálaráðuneyti og embætti sýslumanns.
     Dæmi um samstarfsaðila: Byggðastofnun, Stafrænt Ísland, Samband íslenskra sveitarfélaga, önnur ráðuneyti og stofnanir.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Sýslumenn – Framtíðarsýn; umbætur á þjónustu og rekstri, stefna um opinbera þjónustu.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 40 millj. kr.

A.12. Löggæsludrónar.
     Markmið: Að efla viðbragðsgetu lögreglu og auka öryggi almennings með því að stuðla að jafnara aðgengi að öryggisþjónustu í dreifbýli.
     Stutt lýsing: Sem hluti af tilraunaverkefni um sjálfvirka löggæsludróna á Norðurlandi eystra verði notkun þeirra þróuð áfram til að bæta stöðumat og upplýsingagjöf þegar útköll berast. Með því verði unnt að bregðast hraðar og markvissar við og auka öryggi almennings og viðbragðsaðila, m.a. þar sem dreifð byggð og miklar vegalengdir skapa áskoranir. Tæknin styðji þannig við störf lögreglu og annarra viðbragðsaðila, en kemur ekki í stað þeirra. Jafnframt verði byggð upp geta og þekking innan lögreglunnar til að nýta tæknina og verkefnið nýtt annars staðar á landinu.
     Viðmið um árangur: Að tími frá því að útkall berst þar til lögregla fær fullnægjandi stöðumat hafi styst í þeim tilvikum þar sem löggæsludrónar eru nýttir.
     Ábyrgðarráðuneyti: Dómsmálaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Lögreglan á Norðurlandi eystra.
     Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög á Norðurlandi eystra, lögregluembætti og aðrir viðbragðsaðilar.
     Tímabil: 2027–2029.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Stefna í löggæslumálum.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 9 millj. kr.

A.13. Menningarsjá.
     Markmið: Að kortleggja og gera aðgengi að menningu og menningarinnviðum um land allt sýnilegt.
     Stutt lýsing: Unnin verði menningarsjá sem sýni myndrænt aðgengi landsmanna að menningarstarfsemi, menningarstofnunum, viðburðum, skapandi greinum og menningarinnviðum um land allt. Við framkvæmdina verði horft til samlegðar með svipuðum verkefnum, svo sem uppfærslu þjónustukorts Byggðastofnunar. Við lok verkefnis liggi fyrir gagnagrunnur og myndræn framsetning sem hægt verði að nýta til frekari stefnumörkunar, forgangsröðunar stuðnings og mótunar aðgerðaáætlunar á sviði menningar og byggðamála.
     Viðmið um árangur: Aðgengileg og skilvirk menningarsjá.
     Ábyrgðarráðuneyti: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun.
     Dæmi um samstarfsaðila: Ráðuneyti, sveitarfélög, landshlutasamtök sveitarfélaga, Rannsóknarsetur skapandi greina, byggðasöfn, menningarstofnanir, menningarráð, safnaráð, menningar- og listamiðstöðvar, skapandi greinar og háskólasamfélagið.
     Tímabil: 2028–2029.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Menningarstefna, Skapandi greinar – sýn til framtíðar, aðgerðaáætlun um eflingu barnamenningar, sóknaráætlanir landshluta.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 2 millj. kr.

A.14. Loftbrú.
     Markmið: Að jafna aðstöðumun íbúa eftir búsetu með lægri ferðakostnaði og bættu aðgengi að miðlægri þjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
     Stutt lýsing: Áfram verði stutt við flugferðir íbúa á skilgreindum svæðum fjarri höfuðborgarsvæðinu með niðurgreiðslu flugfargjalda í gegnum Loftbrú. Þannig verði innanlandsflug gert að aðgengilegri samgöngukosti og dregið úr áhrifum fjarlægða á aðgengi að þjónustu. Fylgst verði með nýtingu úrræðisins eftir svæðum og reglulega lagt mat á hvernig það nýtist best til að jafna aðstöðumun íbúa og styðja við búsetufrelsi.
     Viðmið um árangur: Fjöldi niðurgreiddra flugleggja og hlutfall íbúa sem nýta Loftbrú, greint eftir svæðum.
     Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Vegagerðin.
     Dæmi um samstarfsaðila: Byggðastofnun, flugrekendur og landshlutasamtök sveitarfélaga.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Samgönguáætlun.

B. Jafna tækifæri til atvinnu.
B.1. Óstaðbundin störf.
     Markmið: Að efla búsetufrelsi með fleiri og fjölbreyttari ríkisstörfum á landsbyggðinni.
     Stutt lýsing: Haldið verði áfram að þróa og innleiða hugmyndafræði um óstaðbundin störf sem byggðaaðgerð, sem felur í sér að ríkisstörf séu ekki staðbundin nema eðli starfsins krefjist þess sérstaklega. Tryggt verði eins og kostur er að hugmyndafræðin leiði ekki til þess að störf sem þegar eru staðsett á landsbyggðinni færist til höfuðborgarsvæðisins. Úthlutað verði fjármunum til að styðja annars vegar við uppbyggingu og rekstur vinnustaðaklasa sem eru m.a. hugsaðir til að hýsa óstaðbundin störf og hins vegar að styðja við flutning einstakra starfa frá höfuðborgarsvæðinu út á land.
     Viðmið um árangur: Hlutfallsleg fjölgun og aukin fjölbreytni ríkisstarfa á landsbyggðinni.
     Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneyti, í samstarfi við forsætisráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun í samstarfi við ráðuneyti og ríkisstofnanir.
     Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög, landshlutasamtök, vinnustaðaklasar.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Stefna og aðgerðaáætlun um málefni sveitarfélaga.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 340 millj. kr.

B.2. Staðarval ríkisstarfa.
     Markmið: Dreifing starfa á vegum ríkisins verði jöfnuð og stuðlað að fjölbreyttu atvinnulífi sem víðast um landið.
     Stutt lýsing: Stuðlað verði að fjölbreyttu atvinnulífi sem víðast um landið, jafnari dreifingu ríkisstarfa og auknu búsetufrelsi. Þegar ný starfsemi hefst eða breytingar gerðar hjá ríkisstofnunum verði metið hvort staðsetja megi starfsemina á landsbyggðinni.
     Viðmið um árangur: Að hlutfall stöðugilda hjá ríkinu á landsbyggðinni hækki samkvæmt árlegri könnun Byggðastofnunar á fjölda ríkisstarfa.
     Ábyrgðarráðuneyti: Forsætisráðuneyti.
     Framkvæmdaraðilar: Öll ráðuneyti.
     Dæmi um samstarfsaðila: Ríkisstofnanir, sveitarfélög, landshlutasamtök sveitarfélaga, vinnustaðaklasar.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Stefna og aðgerðaáætlun um málefni sveitarfélaga.

B.3. Leiðarvísir um viðveru og fjarveru.
     Markmið: Að auðvelda ríkisstofnunum að nýta óstaðbundin störf sem byggðaaðgerð, fjölga atvinnutækifærum á landsbyggðinni og tryggja að framkvæmd slíkra starfa sé skýr, fagleg og samræmd.
     Stutt lýsing: Unninn verði leiðarvísir fyrir mannauðsstjóra og stjórnendur sem hafa starfsfólk í óstaðbundnu starfi eða í fjarvinnu. Leiðarvísirinn veiti viðmið um viðveru, fjarveru, fyrirkomulag fjarvinnu og óstaðbundin störf. Þar verði jafnframt fjallað um ráðningarferli og auglýsingar, þar á meðal merkingu starfa sem óstaðbundin á Starfatorgi, móttöku nýs starfsfólks sem starfar ekki í höfuðstöðvum og hlutverk stjórnenda og starfsmanna í blönduðu starfsumhverfi. Horft verði til stefnu ríkisins í mannauðsmálum.
     Viðmið um árangur: Útgáfa leiðarvísis.
     Ábyrgðarráðuneyti: Fjármála- og efnahagsráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Skrifstofa kjara- og mannauðsmála.
     Dæmi um samstarfsaðila: Innviðaráðuneyti, Byggðastofnun og stéttarfélög.
     Tímabil: 2027.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Stefna ríkisins í mannauðsmálum.

B.4. Stoðkerfi nýsköpunar á landsbyggðinni.
     Markmið: Að styrkja vistkerfi nýsköpunar í byggðum landsins með auknu samstarfi stoðstofnana á sviði nýsköpunar, atvinnuþróunar, háskólaþjónustu og símenntunar.
     Stutt lýsing: Veittur verði tímabundinn fjárstuðningur til að hvetja til samstarfs tveggja eða fleiri stoðstofnana innan landshluta sem þegar hafa samningsbundið eða lögbundið hlutverk og njóta opinbers stuðnings á sviði nýsköpunar, atvinnuþróunar, háskólaþjónustu eða símenntunar. Skilgreind verði styrkhæf samstarfsverkefni, svo sem þróun klasa, sameiginlegs verklags eða þjónustu, samnýting aðstöðu og þekkingar og viðburðir á sviði nýsköpunar, þar á meðal fræðsluverkefni og svæðisbundnir hraðlar. Með samstarfinu verði stuðlað að öflugra stoðkerfi nýsköpunar á landsbyggðinni og aukinni þátttöku aðila þar í opinberum samkeppnissjóðum.
     Viðmið um árangur: Að virkt samstarfi stoðstofnana hafi komist á og hlutdeild aðila á landsbyggðinni í opinberum samkeppnissjóðum nýsköpunar aukist.
     Ábyrgðarráðuneyti: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, í samstarfi við Byggðastofnun.
     Dæmi um samstarfsaðila: Ráðuneyti, landshlutasamtök sveitarfélaga, sveitarfélög, þekkingarsetur og símenntunarmiðstöðvar.
     Tímabil: 2027–2029.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Sóknaráætlanir landshluta, stefna um vísindi, tækniþróun og nýsköpun, atvinnustefna.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 70 millj. kr.

B.5. Kynskiptur vinnumarkaður á landsbyggðinni.
     Markmið: Að jafna stöðu kynja á vinnumarkaði á landsbyggðinni.
     Stutt lýsing: Gerð verði greining á áhrifum kynskipts vinnumarkaðar á atvinnuþróun, búsetuskilyrði og möguleika kvenna til atvinnu og starfsþróunar á landsbyggðinni. Sérstaklega verði fjallað um fjölbreytni starfa, launa- og tekjumun, aðgengi að opinberum störfum, áhrif óstaðbundinna starfa og tengsl menntunar, atvinnumöguleika og búsetu. Greint verði hvort fjölbreytni starfa á landsbyggðinni sé í samræmi við menntun kvenna og hvort mögulegur skortur sé á viðeigandi störfum. Byggt verði á fyrirliggjandi gögnum og rýnihópum með lykilaðilum, þar á meðal konum á landsbyggðinni, sveitarfélögum, landshlutasamtökum sveitarfélaga og aðilum vinnumarkaðarins. Afurð verkefnisins verði greiningarskýrsla og kortlagning helstu hindrana og tækifæra eftir landshlutum, sem styrkir þekkingargrunn stjórnvalda um áhrif kynskipts vinnumarkaðar með niðurstöðum og tillögum að aðgerðum í byggðamálum með hliðsjón af ólíkri stöðu kynjanna á vinnumarkaði. Vinnan byggist á aðgerð í byggðaáætlun fyrir árin 2018–2024 um atvinnuþátttöku og tekjumun eftir búsetu, þar sem gerð var úttekt á stöðu og tækifærum kvenna á vinnumarkaði í dreifbýli árin 2020–2021.
     Viðmið um árangur: Greining á áhrifum kynskipts vinnumarkaðar á landsbyggðinni liggi fyrir, ásamt kortlagningu hindrana og tækifæra eftir landshlutum og tillögum að aðgerðum.
     Ábyrgðarráðuneyti: Dómsmálaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Jafnréttisstofa.
     Dæmi um samstarfsaðila: Byggðastofnun.
     Tímabil: 2027–2029.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 5 millj. kr.

B.6. Norðurslóðarannsóknir.
     Markmið: Að efla rannsóknir um norðurslóðir.
     Stutt lýsing: Rannsóknaáætlun um norðurslóðir verði mótuð í samráði við viðeigandi ráðuneyti, hag- og rannsóknaraðila. Leitast verði við að útfæra áherslur, kostnaðargreina og skilgreina mögulega fjármögnun m.a. í samhengi við innlenda og erlenda sjóði. Þannig verði leitað leiða til að setja fram raunhæfa áætlun um eflingu alþjóðlegs og innlends rannsóknasamstarfs á sviði norðurslóðarannsókna. Unnið verði út frá nýtingu rannsóknainnviða, ekki síst á landsbyggðinni, svo sem með kynningarstarfsemi á þeim möguleikum sem fyrir hendi eru.
     Viðmið um árangur: Rannsóknaáætlun Íslands um norðurslóðir afhent hlutaðeigandi ráðuneytum.
     Ábyrgðarráðuneyti: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti í samstarfi við utanríkisráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Norðurslóðanetið, í samvinnu við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
     Dæmi um samstarfsaðila: Utanríkisráðuneyti, rannsóknarsetur á landsbyggðinni, háskólar, rannsóknastofnanir.
     Tímabil: 2027–2029.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Stefna Íslands í málefnum norðurslóða og framkvæmdaáætlun hennar.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 12 millj. kr.

B.7. Byggðatengdar ívilnanir.
     Markmið: Að meta fýsileika þess að beita efnahagslegum hvötum til að efla byggð.
     Stutt lýsing: Byggðastofnun verði falið að greina efnahagslega hvata- og ívilnunaraðgerðir sem Norðmenn beita í þágu byggðaþróunar og snúa m.a. að skatta- og samgöngumálum. Jafnframt verði stofnuninni falið að meta fýsileika þess að beita ívilnunum við íslenskar aðstæður, hvaða svæði kæmu til greina og hver kostnaður af einstökum aðgerðum gæti orðið.
     Viðmið um árangur: Að fyrir liggi greining á því hvernig beita megi byggðatengdum ívilnunum við íslenskar aðstæður, þ.m.t. mat á mögulegum aðgerðum, landfræðilegri afmörkun og kostnaði.
     Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneyti, í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun.
     Dæmi um samstarfsaðila: Háskólar, rannsóknarstofnanir, landshlutasamtök sveitarfélaga.
     Tímabil: 2027.

B.8. Hringrásariðngarðar.
     Markmið: Efla umgjörð og starfsumhverfi hringrásariðngarða um allt land.
     Stutt lýsing: Forsætisráðuneytið leiði, í samráði við hlutaðeigandi ráðuneyti, kortlagningu á laga- og reglugerðarumhverfi hringrásariðngarða. Greint verði hvaða breytinga á lögum og reglugerðum eða öðrum aðgerðum stjórnvalda kunni að vera þörf til að greiða fyrir uppbyggingu þeirra og samnýtingu orku, innviða, auðlindastrauma og annarra aðfanga. Niðurstöður greiningarinnar verði teknar saman í skýrslu ásamt tillögum að aðgerðaáætlun og lagðar fyrir hlutaðeigandi ráðuneyti.
     Viðmið um árangur: Kortlagning á laga- og reglugerðarumhverfi hringrásariðngarða liggi fyrir, ásamt aðgerðaáætlun um nauðsynlegar úrbætur af hálfu stjórnvalda.
     Ábyrgðarráðuneyti: Forsætisráðuneyti, í samstarfi við atvinnuvegaráðuneyti, innviðaráðuneyti og umhverfis-, loftslags- og orkuráðuneyti.
     Framkvæmdaraðilar: Utanaðkomandi ráðgjafar í samstarfi við ráðuneytin.
     Dæmi um samstarfsaðila: Íslandsstofa, landshlutasamtök sveitarfélaga, sveitarfélög, orku- og veitufyrirtæki.
     Tímabil: 2027.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Atvinnustefna.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 5 millj. kr.

B.9. Uppbygging atvinnuhúsnæðis í minni byggðarlögum.
     Markmið: Að styðja við atvinnuuppbyggingu í minni byggðarlögum og auka framboð atvinnuhúsnæðis.
     Stutt lýsing: Byggðastofnun verði falið að koma á samstarfi við sveitarfélög, átthagafjárfesta og aðra hagaðila um uppbyggingu atvinnuhúsnæðis í byggðarlögum og/eða á atvinnusóknarsvæðum þar sem markaðsbrestur hamlar uppbyggingu, einkum þar sem byggingarkostnaður er hærri en vænt markaðsvirði fullbyggðrar eignar og verulegur skortur er á hentugu atvinnuhúsnæði. Aðgerðin miði að því að rjúfa pattstöðu sem getur skapast þegar eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði og möguleikar til atvinnuuppbyggingar eru fyrir hendi en fjárhagslegar forsendur standa ekki undir nýbyggingu á almennum markaði. Uppbygging fari fram í samstarfi við staðbundna fjárfesta og aðra fjárfesta eftir því sem kostur er og verði húsnæði boðið til sölu eða leigu til atvinnustarfsemi. Stuðst verði við reynslu Byggðastofnunar af þeim uppbyggingarverkefnum sem þegar eru hafin, í samræmi við heimildir stofnunarinnar í kjölfar yfirstandandi endurskoðunar á lögum og reglugerðum um hana.
     Viðmið um árangur: Fjöldi samstarfsverkefna sem komast til framkvæmda, fermetrafjöldi atvinnuhúsnæðis sem byggður er eða tekinn í notkun, fjöldi fyrirtækja sem fá aðstöðu í húsnæðinu og fjöldi starfa sem skapast eða verða til staðar vegna verkefnanna.
     Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun.
     Dæmi um samstarfsaðila: Landshlutasamtök sveitarfélaga, sveitarfélög, átthagafjárfestar og aðrir einkaaðilar.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Atvinnustefna, landsskipulagsstefna, sóknaráætlanir landshluta og viðeigandi skipulagsáætlanir sveitarfélaga.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 6 millj. kr.

B.10. Nýliðun og kynslóðaskipti í landbúnaði.
    Markmið: Að treysta byggðafestu með því að auðvelda nýliðun og kynslóðaskipti í landbúnaði.
     Stutt lýsing: Við yfirstandandi endurskoðun á starfsskilyrðum landbúnaðarins verði horft sérstaklega til þess að auðvelda nýliðun og kynslóðaskipti í landbúnaði, m.a. með því að stuðla að því að stuðningskerfi landbúnaðarins verði fyrirsjáanlegra en það er í dag. Leitað verði leiða til að auka aðgengi að lánsfé til kynslóðaskipta í gegnum Byggðastofnun og áhrif núverandi 18–40 ára aldursmarka í reglugerð um almennan stuðning við landbúnað á nýliðun metin. Í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneytið verði regluverk um skattalega meðferð söluhagnaðar bújarða með tilliti til nýliðunar og kynslóðaskipta yfirfarið og í samstarfi við félags- og húsnæðismálaráðuneytið verði regluverk um verndun landbúnaðarlands til að stuðla að því að það nýtist til matvælaframleiðslu yfirfarið.
     Viðmið um árangur: Breytingar á stuðnings-, lána- og regluverki sem auðvelda nýliðun og kynslóðaskipti í landbúnaði hafi komið til framkvæmda.
     Ábyrgðarráðuneyti: Atvinnuvegaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Atvinnuvegaráðuneyti.
     Dæmi um samstarfsaðila: Fjármála- og efnahagsráðuneyti, félags- og húsnæðismálaráðuneyti, Byggðastofnun, Bændasamtök Íslands, Samtök ungra bænda.
     Tímabil: 2027–2029.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Landbúnaðarstefna og aðgerðaáætlun hennar.

B.11. Matvælaöryggi, nýsköpun og nýliðun í matvælaframleiðslu.
     Markmið: Að auka matvælaöryggi og styðja við nýsköpun og vöruþróun smáframleiðenda matvæla.
     Stutt lýsing: Leitað verði leiða til að fjölga matvælakjörnum þar sem frumkvöðlar og smáframleiðendur hafi aðgang að vottuðu vinnslurými til vöruþróunar og framleiðslu. Jafnframt verði stuðlað að auknu samstarfi starfandi matvælakjarna og miðlun reynslu þeirra til þeirra sem vilja nýta þjónustuna eða koma á fót sambærilegri starfsemi. Í samstarfi við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið verði efld fræðsla og ráðgjöf til smáframleiðenda, m.a. um styrki, fjármögnun og aðra aðstoð sem stendur til boða. Regluverk um smáframleiðslu matvæla verði yfirfarið í samstarfi við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og metið hvernig nýta megi svigrúm innan þess til nýsköpunar án þess að draga úr matvælaöryggi.
     Viðmið um árangur: Matvælakjörnum og þeim sem nýta aðstöðu þeirra til vöruþróunar og framleiðslu hafi fjölgað.
     Ábyrgðarráðuneyti: Atvinnuvegaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Atvinnuvegaráðuneyti.
     Dæmi um samstarfsaðila: Matís, Landbúnaðarháskóli Íslands, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneyti, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, landshlutasamtök sveitarfélaga, Bændasamtök Íslands, Samtök smáframleiðenda matvæla, Vörusmiðja Biopol, Nýtingarmiðstöð á Vopnafirði, Samtök verslunar og þjónustu o.fl.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Matvælastefna og aðgerðaáætlun hennar, Minni matarsóun – aðgerðaáætlun gegn matarsóun, Í átt að hringrásarhagkerfi – stefna í úrgangsmálum, atvinnustefna.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 35 millj. kr.

B.12. Fluggáttir.
     Markmið: Að efla heilsársferðaþjónustu um allt land.
     Stutt lýsing: Flugþróunarsjóður styðji við uppbyggingu nýrra flugleiða til Íslands þannig að koma megi á reglulegu millilandaflugi um alþjóðaflugvellina á Akureyri og Egilsstöðum.
     Viðmið um árangur: Fjölgun erlendra áfangastaða með beinu millilandaflugi um Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli, fjöldi millilandaflugsferða og fjöldi erlendra farþega um flugvellina.
     Ábyrgðarráðuneyti: Atvinnuvegaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Flugþróunarsjóður.
     Dæmi um samstarfsaðila: Austurbrú, Markaðsstofa Norðurlands, Isavia, Íslandsstofa og innviðaráðuneyti.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Ferðamálastefna, atvinnustefna.

B.13. Stórþörungarækt.
     Markmið: Að skapa skýran og fyrirsjáanlegan lagaramma um stórþörungarækt í sjó.
     Stutt lýsing: Heildstæður lagarammi um stórþörungarækt í sjó verði undirbúinn og innleiddur. Með lagasetningu verði komið á skýru leyfiskerfi fyrir rannsóknir og rekstur, reglum um nýtingu haf- og strandsvæða, umhverfisvernd, búnað og eftirlit. Þannig megi draga úr réttaróvissu og auðvelda fyrirtækjum, frumkvöðlum, rannsóknaraðilum og menntastofnunum að þróa verkefni á þessu sviði.
     Viðmið um árangur: Lög um stórþörungarækt hafi tekið gildi og komið á skýru og fyrirsjáanlegu leyfiskerfi sem styður við rannsóknir, nýsköpun og sjálfbæra atvinnuuppbyggingu.
     Ábyrgðarráðuneyti: Atvinnuvegaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Atvinnuvegaráðuneyti.
     Dæmi um samstarfsaðila: Háskólar, rannsóknastofnanir, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, sveitarfélög, nýsköpunar- og þróunarsetur, fyrirtæki, frumkvöðlar og hagsmunasamtök.
     Tímabil: 2027.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Atvinnustefna, matvælastefna og aðgerðaáætlun hennar.

B.14. Tækifæri í dreifðari orkuvinnslu.
     Markmið: Að skapa traustan grunn fyrir stefnumótun um dreifðari orkuvinnslu.
     Stutt lýsing: Ráðist verði í heildstæða kortlagningu á möguleikum til að efla byggðir landsins með dreifðari orkuvinnslu á landinu. Greining Umhverfis- og orkustofnunar á smávirkjanakostum verði nýtt til að meta möguleg byggðaáhrif af dreifðari orkuvinnslu. Skoða skuli atvinnumöguleika, áhrif á byggðafestu og tekjur sveitarfélaga sem felast í dreifðari orkuvinnslu með sérstakri áherslu á viðkvæmari byggðir. Niðurstöður slíkrar kortlagningar verði innlegg í orkuöflunarstefnu og rammaáætlun.
     Viðmið um árangur: Heildstæð kortlagning liggi fyrir um það hvar orkuvinnsla geti skapað mest byggðaleg áhrif.
     Ábyrgðarráðuneyti: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun í samstarfi við Umhverfis- og orkustofnun og eftir atvikum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og innviðaráðuneyti.
     Dæmi um samstarfsaðila: Verkefnisstjórn rammaáætlunar, Raforkueftirlitið, landshlutasamtök sveitarfélaga.
     Tímabil: 2027–2028.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Orkuöflunarstefna, rammaáætlun, orkustefna, atvinnustefna.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 4 millj. kr.

B.15. Svæðisbundið menningarstarf og skapandi greinar.
     Markmið: Að efla svæðisbundið menningarstarf og skapandi greinar sem þátt í sjálfbærri byggðaþróun og bæta aðgengi að menningu óháð búsetu.
     Stutt lýsing: Gerðir verði samningar ríkisins við landshluta til að efla svæðisbundið menningarstarf og skapandi greinar. Samningarnir taki mið af sérstöðu, styrkleikum og þörfum hvers landshluta og styðji við samstarf, samnýtingu innviða og þróun atvinnutækifæra á sviði menningar og skapandi greina.
     Viðmið um árangur: Menningarsamningar hafi verið gerðir við landshluta, verkefnum á grundvelli þeirra komið til framkvæmda og þátttaka aðila af landsbyggðinni í opinberum og alþjóðlegum samkeppnissjóðum aukist.
     Ábyrgðarráðuneyti: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðilar: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og landshlutasamtök sveitarfélaga.
     Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög, menningarstofnanir, menningarmiðstöðvar, söfn, listamiðstöðvar, listafólk og aðilar í skapandi greinum, Rannsóknarsetur skapandi greina, háskólar og aðrir hagaðilar á hverju svæði.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Menningarstefna, stefnumörkun stjórnvalda um skapandi greinar, sóknaráætlanir landshluta.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 10 millj. kr.

C. Stuðla að sjálfbærri þróun byggða um land allt.
C.1. Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða.
     Markmið: Að styðja við þróun og viðnámsþrótt svæða sem standa frammi fyrir lýðfræðilegum og efnahagslegum áskorunum.
     Stutt lýsing: Landshlutasamtök sveitarfélaga geti í samstarfi við haghafa í hverjum landshluta sótt um framlög í samkeppnissjóð vegna verkefna sem þau telja að nýtist einstökum svæðum eða landshlutanum í heild. Í forgangi verði verkefni sem m.a. eru talin hafa varanleg áhrif, eru atvinnuskapandi, hvetja til nýsköpunar á svæðinu og eflingar samfélagsrýma. Sérstök áhersla verði lögð á svæði sem búa við óhagstæða lýðfræðilega samsetningu, einhæft atvinnulíf og sem eru fjarri stærri þjónustu- og atvinnusóknarsvæðum.
     Viðmið um árangur: Að styrkt verkefni nái fyrirframskilgreindum markmiðum sínum og sýni fram á áhrif á atvinnulíf, nýsköpun eða samfélag á viðkomandi svæði.
     Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun.
     Dæmi um samstarfsaðila: Landshlutasamtök sveitarfélaga.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Sóknaráætlanir landshluta o.fl.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 700 millj. kr.

C.2. Brothættar byggðir.
     Markmið: Að valdefla og virkja frumkvæði íbúa, treysta stoðir dreifðra byggða og styrkja byggðafestu.
     Stutt lýsing: Áfram verði unnið samkvæmt verklagi og hugmyndafræði byggðaþróunarverkefnisins Brothættar byggðir með því að valdefla og virkja frumkvæði íbúa, treysta stoðir dreifðra byggða og styrkja byggðafestu. Þróun verði haldið áfram á framhaldsverkefni Brothættra byggða jafnframt því sem þróað verði verkefni sem hentar fleiri byggðarlögum. Aðgerðin byggist á víðtæku samráði og á því að virkja þekkingu og getu íbúa smærri til meðalstórra byggðarlaga til að móta framtíðarsýn, markmið og lausnir í því skyni að efla sitt samfélag.
     Viðmið um árangur: Árangur verði metinn út frá því að hve miklu leyti markmið verkefnisáætlana nást, þátttöku og viðhorfum íbúa, framvindu frumkvæðisverkefna og þróun helstu lýðfræðilegra þátta.
     Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun.
     Dæmi um samstarfsaðila: Stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál, íbúar þátttökubyggðarlaga, sveitarfélög og landshlutasamtök sveitarfélaga.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Sóknaráætlanir landshluta o.fl.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 650 millj. kr.

C.3. Þróunaráætlanir borgarsvæða.
     Markmið: Að þróa borgirnar og áhrifasvæði þeirra þannig að þau virki sem heildstæð svæði þegar kemur að atvinnusókn, búsetu og samgöngum.
     Stutt lýsing: Lagður verði grunnur að þróunaráætlunum fyrir áhrifasvæði Akureyrar annars vegar og Reykjavíkur hins vegar, sbr. skilgreiningu í borgarstefnu. Ólíkar sviðsmyndir varðandi þróun borgarsvæðanna verði rýndar og helstu áskoranir skilgreindar, svo sem í samhengi byggðaþróunar, loftslagsmála, lýðfræði og félagsmála. Aðgerðin stuðli einnig að auknu samstarfi sveitarfélaga og landshlutasamtaka á svæðunum og verði sérstaklega horft til samþættingar við sóknaráætlanir viðkomandi landshluta við vinnuna.
     Viðmið um árangur: Að greining liggi fyrir, unnin í samstarfi hlutaðeigandi sveitarfélaga og landshlutasamtaka.
     Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðilar: Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, í samstarfi við aðliggjandi landshlutasamtök sveitarfélaga.
     Dæmi um samstarfsaðila: Byggðastofnun, Vegagerðin, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, sveitarfélög á borgarsvæðunum.
     Tímabil: 2027–2028.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Samgönguáætlun, stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga, borgarstefna, svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, sóknaráætlanir landshluta.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 5 millj. kr.

C.4. Efling fjölmiðlunar í héraði.
     Markmið: Að styðja við lýðræðislega umræðu og fjölbreyttan fréttaflutning um land allt.
     Stutt lýsing: Veittir verði styrkir til einkarekinna staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins enda gegni þeir mikilvægu hlutverki við að tryggja aðgengi almennings að upplýsingum um menningar- og samfélagsmál. Efni þeirra sé fjölbreytt og ætlað almenningi á útbreiðslusvæði fjölmiðilsins og styðji þannig við lýðræðisþátttöku og menningarstarf.
     Viðmið um árangur: Fjöldi staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins sem fá styrk.
     Ábyrgðarráðuneyti: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
     Dæmi um samstarfsaðila: Fjölmiðlanefnd og Byggðastofnun.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Aðgerðaáætlun í málefnum fjölmiðla.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 15 millj. kr.

C.5. Íbúðauppbygging í samræmi við þörf.
     Markmið: Að stuðla að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis þar sem skortur hamlar þróun samfélaga og atvinnulífs.
     Stutt lýsing: Stuðlað verði að uppbyggingu fjölbreyttra íbúða í samræmi við metna þörf í húsnæðisáætlunum sveitarfélaga. Gripið verði til fjölbreyttra húsnæðislausna á grundvelli sérhæfðrar ráðgjafar Húsnæðis-, mannvirkja-, og skipulagsstofnunar við sveitarfélög til að stuðla að uppbyggingu á hentugu íbúðarhúsnæði, hvort sem er til leigu eða kaupa, á svæðum utan höfuðborgarsvæðisins þar sem bygging íbúða hefur verið í lágmarki eða sérstök vandkvæði eru á að fá fjármögnun á almennum markaði. Slíkar aðgerðir geti til að mynda falist í hlutdeildarlánum til fyrstu kaupenda og samningum við uppbyggingaraðila til að fjölga íbúðum sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána utan höfuðborgarsvæðisins, lánveitingum til nýbygginga, samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög og stofnframlögum til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum, þar á meðal til umbreytingar atvinnuhúsnæðis í íbúðarhúsnæði.
     Viðmið um árangur: Íbúðum til leigu og kaupa hafi fjölgað í samræmi við metna þörf á svæðum utan höfuðborgarsvæðisins þar sem húsnæðisskortur hamlar þróun samfélags og atvinnulífs.
     Ábyrgðarráðuneyti: Félags- og húsnæðismálaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.
     Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög og leigufélög.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Húsnæðisstefna, húsnæðis- og skipulagsáætlanir sveitarfélaga og landsskipulagsstefna.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 15 millj. kr.

C.6. Hringrásarlausnir fyrir sveitarfélög.
     Markmið: Að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda við meðhöndlun úrgangs, draga úr myndun úrgangs, auka endurvinnslu og draga úr kostnaði sveitarfélaga.
     Stutt lýsing: Aðgerðin styðji sveitarfélög og efli samstarf þeirra við þróun eða innleiðingu hringrásarlausna sem draga úr kostnaði þeirra við meðhöndlun úrgangs og losun gróðurhúsalofttegunda með því að draga úr myndun úrgangs eða að nýta úrgang sem auðlind og byggja upp innviði sem henta dreifðum byggðum. Horft verði til þess að sveitarfélög nýti svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs sem stjórntæki og samþætti viðeigandi stefnumörkun og áætlanir til að efla hringrásarhagkerfið. Með markvissri kortlagningu úrgangsstrauma og stigvaxandi þróun hringrásarverkefna geti sveitarfélög tekið upplýstar ákvarðanir, bætt þjónustu, aukið samstarf og skapað ný viðskiptatækifæri.
     Viðmið um árangur: Hringrásarlausnir hafi í auknum mæli verið innleiddar í starfi sveitarfélaga og stuðlað að minni úrgangsmyndun, aukinni endurvinnslu og lægri kostnaði eða losun vegna meðhöndlunar úrgangs.
     Ábyrgðarráðuneyti: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
     Framkvæmdaraðilar: Sveitarfélög og landshlutasamtök sveitarfélaga.
     Dæmi um samstarfsaðila: Samband íslenskra sveitarfélaga, sveitarfélög, fyrirtæki í úrgangsgeiranum, Umhverfis- og orkustofnun.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Í átt að hringrásarhagkerfi – stefna í úrgangsmálum, Saman gegn sóun – stefna um úrgangsforvarnir, Minni matarsóun – aðgerðaáætlun gegn matarsóun og Úr viðjum plastsins – aðgerðaáætlun í plastmálefnum.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 50 millj. kr.

C.7. Aðlögun sveitarfélaga að loftslagsbreytingum.
     Markmið: Að styrkja sveitarfélög í aðlögun að loftslagsbreytingum.
     Stutt lýsing: Með aðgerðinni verði geta og þekking innan sveitarfélaga til að skima fyrir áhættu vegna áhrifa loftslagsbreytinga og móta staðbundnar áætlanir og aðgerðir til aðlögunar efld. Hönnuð verði sniðmát og stoðefni, leiðbeiningar uppfærðar og gerðar aðgengilegar, m.a. í verkfærakistu loftslagsvænni sveitarfélaga. Haldnar verði vinnustofur fyrir sveitarfélög í öllum landshlutum þar sem verkfærin verða kynnt. Aðgerðin byggist á reynslu og aðferðafræði sem þróuð var í aðgerð C.10 í byggðaáætlun fyrir árin 2022–2026 um áhrif loftslagsbreytinga á sveitarfélög.
     Viðmið um árangur: Sveitarfélögum hafi fjölgað sem hafa metið staðbundna áhættu vegna loftslagsbreytinga og mótað áætlanir eða aðgerðir til aðlögunar.
     Ábyrgðarráðuneyti: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
     Framkvæmdaraðilar: Byggðastofnun, Veðurstofa Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga.
     Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög, landshlutasamtök sveitarfélaga, Umhverfis- og orkustofnun, Náttúrufræðistofnun, Land og skógur, Vegagerðin, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, háskólar o. fl.
     Tímabil: 2027–2030.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Aðgerð D.3.1 og D.3.3 í aðlögunaráætlun vegna loftslagsbreytinga á Íslandi, Loftlagsþolið Ísland, Í ljósi loftslagsvár – stefna um aðlögun að loftslagsbreytingum, líffræðileg fjölbreytni – stefna og markmið, landsskipulagsstefna.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 20 millj. kr.

C.8. Samstarf almannavarnafulltrúa.
     Markmið: Að auka samstarf og samhæfingu almannavarnafulltrúa um allt land og bæta stefnumótun og áætlanagerð á sviði almannavarna.
     Stutt lýsing: Árlega verði haldnar vinnustofur almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og almannavarnafulltrúa til að miðla þekkingu, styrkja samstarf og efla samhæfingu. Samhliða verði fræðsla aukin og henni miðlað áfram. Aðgerðin bæti vinnu við stefnumótun og áætlanagerð í takt við þá hættu sem hvert svæði stendur frammi fyrir. Með því verði stuðlað að sterkari staðbundnum almannavörnum og auknu áfallaþoli.
     Viðmið um árangur: Árlegar vinnustofur séu haldnar og niðurstöður þeirra nýttar við gerð og uppfærslu staðbundinna almannavarnaáætlana.
     Ábyrgðarráðuneyti: Dómsmálaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
     Dæmi um samstarfsaðila: Samband íslenskra sveitarfélaga, sveitarfélög, almannavarnanefndir og lögregluembætti.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Stefna stjórnvalda í almannavarna- og öryggismálum.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 10 millj. kr.

C.9. Líffræðileg fjölbreytni og skipulagsmál sveitarfélaga.
     Markmið: Að styrkja sveitarfélög í að takast á við vernd líffræðilegrar fjölbreytni og skapa skýrari tengingu milli skipulagsmála og náttúruverndar.
     Stutt lýsing: Hrint verði af stað samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga þar sem þróuð verði verkfæri, verklag og dæmi um góðar lausnir til að styðja sveitarfélög við að samþætta á skilvirkan hátt líffræðilega fjölbreytni í skipulagsmálum. Verkefnið byggist á þremur þáttum:
     a.      tilraunaverkefni með sveitarfélögum sem auglýst verður eftir,
     b.      verkfærakistu fyrir sveitarfélög og
     c.      miðlun og vitundarvakningu. Haldnar verði vinnustofur fyrir sveitarfélög, hönnuð sniðmát og stoðefni, útbúnar leiðbeiningar og þær gerðar aðgengilegar.
     Viðmið um árangur: Verkfærakista og leiðbeiningar um samþættingu líffræðilegrar fjölbreytni í skipulagsmálum hafi verið þróaðar, prófaðar og teknar í notkun af sveitarfélögum.
     Ábyrgðarráðuneyti: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
     Dæmi um samstarfsaðila: Byggðastofnun, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, Land og skógur, Náttúrufræðistofnun, Hafrannsóknastofnun, Bændasamtök Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, sveitarfélög og náttúrustofur.
     Tímabil: 2027–2029.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Líffræðileg fjölbreytni – stefna og markmið, aðlögunaráætlun vegna loftslagsbreytinga á Íslandi, landsskipulagsstefna.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 30 millj. kr.

C.10. List fyrir alla.
     Markmið: Að tryggja aðgengi og þátttöku barna og ungmenna í menningarlífi.
     Stutt lýsing: Unnið verði áfram að verkefninu List fyrir alla til að styrkja tengsl skólastarfs við menningar- og listalíf. Árlega verði auglýst eftir umsóknum á landsvísu frá starfandi listafólki, stofnunum og öðrum lögaðilum sem sinna barnamenningu. Völdum listviðburðum verði miðlað til barna á grunnskólaaldri um land allt með það að markmiði að jafna aðgengi þeirra að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum, óháð búsetu og efnahag. Umsjón með verkefninu verði falin Menningarfélagi Akureyrar til að styrkja hlutverk þess á landsbyggðinni og tengsl við menningar- og skólastarf um land allt.
     Viðmið um árangur: Fjöldi listviðburða og barna sem njóta þeirra á hverju ári.
     Ábyrgðarráðuneyti: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: List fyrir alla.
     Dæmi um samstarfsaðila: Fræðslu- og menningarsvið sveitarfélaga, grunnskólar, listgreinakennarar, listamenn, farsældarráð, svæðisbundin ungmennaráð og menningarstofnan-ir.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Aðgerðaáætlun um eflingu barnamenningar, Menningarstefna, Menningarsókn – aðgerðaáætlun.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 25 millj. kr.

C.11. Alþjóðleg samkeppnishæfni.
     Markmið: Að efla alþjóðlega samkeppnishæfni landsins.
     Stutt lýsing: Borgarsvæðin verði þátttakendur í alþjóðlegu samanburðarmati á samkeppnishæfni þannig að þau verði reglulega borin saman við önnur borgarsvæði. Mismunandi samkeppnislistar verði greindir og mat lagt á hvern þeirra yrði gagnlegast að komast á til að ná þeim árangri sem stefnt er að. Niðurstöðurnar verði nýttar til að draga fram styrkleika borgarsvæðanna, greina hvar úrbóta er þörf og auka alþjóðlegan sýnileika þeirra gagnvart fólki, fyrirtækjum og fjárfestum og efla þannig samkeppnishæfni þeirra og þar með landsins alls.
     Viðmið um árangur: Borgarsvæðin hafi verið tekin inn á viðurkennda alþjóðlega samanburðarlista.
     Ábyrgðarráðuneyti: Utanríkisráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Íslandsstofa.
     Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög, landshlutasamtök sveitarfélaga, innviðaráðuneyti, atvinnuvegaráðuneyti.
     Tímabil: 2027–2028.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Atvinnustefna, borgarstefna, ferðamálastefna.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 10 millj. kr.

C.12. Opinberar upplýsingar á sviði byggðamála.
     Markmið: Að styrkja þekkingargrunn fyrir stefnumótun og ákvarðanatöku á sviði byggðamála.
     Stutt lýsing: Áfram verði aflað nýrrar þekkingar á sviði byggðamála í samstarfi við opinberar stofnanir, m.a. með rannsóknum, uppbyggingu og viðhaldi tölfræðilegra gagnagrunna sem byggjast á svæðisgreindum upplýsingum. Með myndrænni framsetningu á tölulegum upplýsingum verði stutt við rannsóknir á byggðatengdum málefnum og leitast við að auka þekkingu og vitund um byggðaþróun. Lokið verði við gerð byggðavísitölu að norskri fyrirmynd sem byggist á upplýsingum um landfræðilega legu, lýðfræðilega þætti og efnahagslegar og félagslegar aðstæður til að leggja mat á stöðu svæða og tengja við ákvarðanatöku um byggðaaðgerðir.
     Viðmið um árangur: Svæðisgreindum upplýsingum sé safnað, þær uppfærðar reglulega og m.a. birtar í formi byggðavísitölu.
     Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun.
     Dæmi um samstarfsaðila: Hagstofa Íslands, landshlutasamtök sveitarfélaga, Samband íslenskra sveitarfélaga og háskólasamfélagið.
     Tímabil: 2027–2031.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 125 millj. kr.

C.13. Alþjóðlegt samstarf.
     Markmið: Að tryggja virka þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi um byggðaþróun og miðlun þekkingar.
     Stutt lýsing: Haldið verði áfram virkri þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi um byggðaþróun, m.a. á vettvangi Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins (NPA), Norræna Atlantssamstarfsins (Nora), Nordregio, ESPON og OECD. Þekkingu og reynslu úr samstarfinu verði miðlað til innlendra aðila og hún nýtt við mótun og framkvæmd byggðaaðgerða. Framlag til aðgerðarinnar verði nýtt til að fjármagna þátttöku íslenskra aðila í þeim fjölþjóðlegu atvinnu- og samfélagsþróunarverkefnum sem njóta stuðnings úr þessum áætlunum.
     Viðmið um árangur: Virk þátttaka Íslands í alþjóðlegu samstarfi um byggðaþróun.
     Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðilar: Innviðaráðuneyti og Byggðastofnun.
     Dæmi um samstarfsaðila: Háskólar, aðrar þekkingar- og rannsóknarstofnanir og landshlutasamtök sveitarfélaga.
     Tímabil: 2027–2031.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 470 millj. kr.

C.14. Samstarf í skipulags- og byggingarmálum.
     Markmið: Að styrkja faglegt samstarf og stjórnsýslulega getu sveitarfélaga í skipulags- og byggingarmálum.
     Stutt lýsing: Komið verði á fót formlegum samstarfsvettvangi fyrir skipulags- og byggingarfulltrúa í samstarfi sveitarfélaga og landshlutasamtaka sveitarfélaga. Með honum verði faglegt bakland sveitarfélaga styrkt, þekkingarmiðlun aukin og stuðlað að samræmdari og vandaðri stjórnsýslu og jafnræði í þjónustu. Samstarfið felist í sameiginlegri þróun verklags og miðlun sérfræðiþekkingar. Sérstök áhersla verði lögð á að styðja við smærri sveitarfélög sem búa yfir takmörkuðum mannafla og sérþekkingu.
     Viðmið um árangur: Fjöldi sveitarfélaga sem tekur þátt í virkum samstarfsvettvangi.
     Ábyrgðarráðuneyti: Félags- og húsnæðismálaráðuneyti.
     Framkvæmdaraðili: Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.
     Dæmi um samstarfsaðila: Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga og einstök sveitarfélög.
     Tímabil: 2027–2031.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Landsskipulagsstefna og húsnæðisstefna.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 15 millj. kr.

C.15. Svæðisbundin þróunargeta og sóknaráætlanir landshluta.
     Markmið: Að efla getu landshluta til að leiða atvinnu-, nýsköpunar- og samfélagsþróun og styrkja sóknaráætlanir landshluta sem vettvang svæðisbundinnar þróunar.
     Stutt lýsing: Sóknaráætlanir landshluta verði þróaðar áfram sem sameiginlegur vettvangur ríkis, sveitarfélaga, íbúa og hagaðila til að samþætta byggðamál, atvinnuþróun og nýsköpun á svæðisvísu. Greindir verði styrkleikar, sérstaða og þróunartækifæri einstakra landshluta. Sérstaklega verði horft til tækifæra til að auka framleiðni og útflutning, efla fjárfestingu og nýsköpun og fjölga störfum í atvinnugreinum með mikla framleiðni. Jafnframt verði lagt mat á reynslu og árangur af sóknaráætlunum og mótuð sameiginleg framtíðarsýn ríkis og sveitarfélaga um næstu kynslóð þeirra. Þannig verði sóknaráætlanir styrktar sem brú milli landsbundinnar stefnumótunar og svæðisbundinnar framkvæmdar og geta landshluta til sjálfbærrar verðmætasköpunar á eigin forsendum efld. Við vinnuna verði byggt á alþjóðlegri þekkingu, m.a. um sértækt samkeppnisforskot og styrkleika, staðbundna þróun og svæðisbundna þróunargetu.
     Viðmið um árangur: Greining á styrkleikum og þróunargetu landshluta liggi fyrir og mótuð hafi verið sameiginleg framtíðarsýn ríkis og sveitarfélaga um áframhaldandi þróun sóknaráætlana, ásamt nýjum sóknaráætlunarsamningum.
     Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneyti í samstarfi við önnur ráðuneyti.
     Framkvæmdaraðilar: Innviðaráðuneyti, Byggðastofnun og landshlutasamtök sveitarfélaga.
     Dæmi um samstarfsaðila: Samband íslenskra sveitarfélaga, sveitarfélög, Íslandsstofa, atvinnulíf og samtök þess, háskólar, rannsóknastofnanir, þekkingarsetur og símenntunarmiðstöðvar.
     Tímabil: 2027–2029.
     Tenging við aðra opinbera stefnumörkun: Sóknaráætlanir landshluta, atvinnustefna, nýsköpunarstefna, stefna í málefnum sveitarfélaga, háskólastefna og aðrar opinberar stefnur sem varða atvinnu-, nýsköpunar- og samfélagsþróun landshluta.
     Heildarframlag af byggðaáætlun: 12 millj. kr.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.