Ferill 105. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 369  —  105. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um árangur endurhæfingar.


     1.      Hversu margir sem hófu töku endurhæfingarlífeyris eða þáðu sjúkra- og endurhæfingargreiðslur á hverju ári 2015–2026 fóru innan 12, 24, 36 og 60 mánaða annars vegar á örorkulífeyri og hins vegar í vinnu, nám eða aðra virkni? Svar óskast sundurliðað eftir fjölda mánaða.
     2.      Hversu stórt hlutfall þeirra sem ljúka endurhæfingu teljast hafa aukið starfsgetu og hvaða mælikvarðar eru notaðir til að meta árangur endurhæfingar?

    Í töflu 1 má sjá upplýsingar um fjölda einstaklinga sem fengu samþykkta umsókn um örorkulífeyri í kjölfar endurhæfingar á tímabilinu 2015–2026, greint eftir árum og lengd þess tíma sem viðkomandi einstaklingar fengu greiddan endurhæfingarlífeyri eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur. Upplýsingar vegna ársins 2026 miðast við stöðuna eins og hún var 2. október 2026.
    Helsti mælikvarði á árangur endurhæfingar er hvort einstaklingur sækir um örorkulífeyri í kjölfar endurhæfingar eða ekki. Upplýsingar um fjölda einstaklinga sem fara í vinnu, nám eða aðra virkni í kjölfar endurhæfingar liggja hvorki fyrir hjá Tryggingastofnun né hjá ráðuneytinu.

Tafla 1. Fjöldi sem fær örorkulífeyri í kjölfar endurhæfingar.

2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025 2026
Innan 12 mán. (1–12 mán.) 179 136 150 133 148 137 142 108 126 90 43 5
Innan 24 mán. (13–24 mán.) 223 204 215 186 228 210 160 116 118 86 6 0
Innan 36 mán. (25–36 mán.) 111 131 149 184 286 175 116 130 69 11 0 0
Innan 60 mán. (37–59 mán.) 94 88 121 119 96 96 94 58 11 0 0 0
Fjöldi 1–59 mán. 607 559 635 622 758 618 512 412 324 187 49 5
Hlutfall sem fór á örorkulífeyri innan 60 mán. 55,6% 48,4% 48,5% 44,1% 44,4% 31,1% 28,3% 22,3% 14,3% 7,6% 1,8% 0,2%
Heimild: Tryggingastofnun.

     3.      Hver var meðal- og miðgildislengd endurhæfingartímabils eftir árum og aldurshópunum 18–19, 20–24, 25–29, 30–34, 35–39, 40–49, 50–59 og 60–66 ára? Hvernig hefur hún breyst eftir lengingu hámarkstíma endurhæfingarlífeyris?
    Í töflum 2 og 3 má sjá meðal- og miðgildislengd þess tíma sem einstaklingar fengu greiddan endurhæfingarlífeyri eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur á tímabilinu 2015–2026, greint eftir árum og umbeðnum aldurshópum. Hámark greiðslutímabils fyrrnefndra greiðslna samkvæmt lögum um almannatryggingar hefur verið lengt þrisvar sinnum frá árinu 2020 eða í 3 ár árið 2020, í 5 ár árið 2023 og í 7 ár árið 2025. Líkt og sjá má í töflum 2 og 3 hefur bæði meðal- og miðgildislengd endurhæfingartímabils almennt farið hækkandi í öllum aldurshópum á árunum 2015–2026.

Tafla 2. Meðaltalslengd í mánuðum eftir aldurshópum og árum.

2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025 2026
<20 6,4 7,2 6,2 6,8 7,6 8,5 9,0 9,4 7,7 9,4 9,5 11,0
20–24 12,0 12,5 12,5 13,1 12,7 13,5 15,3 16,3 15,9 17,7 19,5 22,0
25–29 14,7 14,1 14,3 15,6 16,5 16,0 17,1 17,7 18,1 20,8 23,3 25,2
30–34 15,3 15,1 14,8 16,0 15,3 16,2 17,3 17,2 18,4 20,6 23,1 26,1
35–39 15,4 15,5 14,6 14,7 15,2 16,0 18,0 18,7 17,9 19,4 22,4 25,7
40–49 14,0 13,6 13,1 13,1 13,7 15,2 16,6 16,9 17,7 19,7 21,9 24,8
50–59 12,1 11,4 11,8 12,2 12,1 13,6 14,8 15,2 14,9 16,9 18,7 22,3
60+ 10,6 8,8 9,6 10,0 10,3 11,7 13,0 12,7 12,9 14,7 16,2 18,4

Tafla 3. Miðgildislengd í mánuðum eftir aldurshópum og árum.

2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025 2026
<20 6,0 6,0 5,0 6,0 6,0 7,0 8,0 8,0 6,5 9,0 8,0 10,0
20–24 10,0 10,5 10,0 12,0 11,0 12,0 14,0 15,0 14,0 15,0 17,0 19,0
25–29 13,0 12,0 13,0 14,0 15,0 14,0 15,0 16,0 15,0 17,0 20,0 21,0
30–34 13,0 13,0 13,0 15,0 13,0 13,0 15,0 14,0 16,0 16,0 19,0 21,0
35–39 14,0 13,0 13,0 13,0 13,0 13,0 16,0 17,0 15,0 15,0 18,0 21,0
40–49 12,0 12,0 11,0 11,0 12,0 13,0 14,0 14,0 14,0 16,0 18,0 21,0
50–59 11,0 9,5 10,0 10,0 10,0 11,0 12,0 12,5 11,0 13,0 15,0 18,0
60+ 9,0 8,0 8,0 8,0 8,0 10,0 11,0 10,0 11,0 12,0 13,0 15,0
Heimild: Tryggingastofnun.

     4.      Hver var fjöldi 18–29 ára og 30–39 ára sem sóttu um örorkumat en var synjað vegna þess að endurhæfing var ekki fullreynd, sundurliðað eftir árum 2015–2026?
    Í töflu 4 má sjá upplýsingar um fjölda einstaklinga á aldrinum 18–29 ára annars vegar og 30–39 ára hins vegar sem var synjað um örorkumat þar sem endurhæfing var ekki metin fullreynd á tímabilinu 2018–2026, greint eftir árum, en fyrir árið 2018 voru upplýsingar um synjunarástæður ekki skráðar með sama hætti og nú er og sýnir taflan því aðeins tímabilið 2018–2026.

Tafla 4.

Ár synjunar Fjöldi einstaklinga yngri en 30 ára við synjun Fjöldi einstaklinga 30–39 ára við synjun
2018 111 85
2019 229 162
2020 260 200
2021 181 126
2022 144 123
2023 157 164
2024 146 134
2025 126 144
2026 77 120

     5.      Hvaða mat liggur fyrir á fjárhagslegum langtímaávinningi ríkissjóðs af aukinni starfsendurhæfingu, þ.e. með lægri framtíðarútgjöldum vegna örorku og auknum skatttekjum vegna atvinnuþátttöku? Hafa forsendur þess mats gengið eftir?
    Almennt er gengið út frá því að fjárhagslegur ábati fyrir ríkissjóð af aukinni starfsendurhæfingu sé fólginn í ýmsum þáttum, þ.m.t. lækkun hvað varðar nýgengi örorku þar sem færri munu þá þurfa á greiðslum frá ríkinu að halda í tengslum við framfærslu. Má í því sambandi nefna að snemmtæk íhlutun með réttri þjónustu á réttum tíma er almennt talin áhrifaríkasta leiðin til að auka árangur endurhæfingar og til að draga úr nýgengi örorku en tímalengd óvirkni, hvort sem er vegna sjúkdóma eða atvinnumissis, er talin hafa mesta forspárgildið um líkur á varanlegri örorku. Er því gengið út frá því að markviss þjálfun og fjölbreyttar vinnumarkaðaðgerðir séu mikilvægur liður í starfsendurhæfingu sem auki líkur á endurkomu á vinnumarkað. Þá er ótalinn samfélagslegur ábati af aukinni virkni og þar með auknum lífsgæðum fólks.
    Samhliða aukinni áherslu á starfsendurhæfingu hefur nýgengi örorku farið lækkandi og hefur því dregið úr því að einstaklingar fái greiddan örorkulífeyri að lokinni endurhæfingu en hlutfallið fór úr 58% árið 2017 í 31% árið 2024. Þannig hefur heildarfjöldi þeirra sem ljúka endurhæfingu án þess að fá greiddan örorkulífeyri að lokinni endurhæfingu fimmfaldast frá árinu 2016 (267 einstaklingar) til ársins 2025 (1.343 einstaklingar). Ætla má að sú þróun gefi vísbendingu um að aukin áhersla á markvissa snemmtæka íhlutun með endurhæfingu stuðli að því að einstaklingar séu í minna mæli en áður metnir með varanlega örorku sem aftur hefur áhrif til lækkunar á útgjöld ríkissjóðs vegna örorku til framtíðar litið.