Ferill 173. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 371  —  173. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Njáli Trausta Friðbertssyni um kerfi í fjarskiptum ríkisins.


     1.      Hvaða farsíma- og gagnaflutningskerfi nýta ráðuneytið og stofnanir þess í fjarskiptum sínum? Svar óskast sundurliðað eftir framleiðanda og stofnun.
    Ráðuneytið og stofnanir þess nota fjarskiptaþjónustu margra fjarskiptafyrirtækja sem veitt er um ýmis fjarskiptakerfi fyrir farsíma og gagnaflutning. Eðli máls samkvæmt fara fjarskipti tveggja aðila um þau fjarskiptakerfi sem fjarskiptaþjónusta beggja aðila byggist á. Því er ómögulegt að segja hvaða fjarskiptakerfi eða búnaður kemur við sögu í fjarskiptum við aðra aðila. Sundurliðun á fjarskiptaþjónustu einstakra ráðuneyta og ríkisstofnana og notkun þeirra á tilteknum farsíma- og gagnaflutningskerfum eða búnaði slíkra kerfa getur skapað öryggisógn. Slíkar upplýsingar mætti nota til skipulagðra netárása á umrædd kerfi með það fyrir augum að hafa áhrif á fjarskipti stjórnvalda og þá þjónustu sem reiðir sig á fjarskipti og gagnaflutning. Með hliðsjón af slíkri mögulegri öryggisógn er á grundvelli öryggishagsmuna hvorki upplýst hvaða farsíma- og gagnaflutningskerfi eru notuð né hverjir framleiðendur búnaðar þessara kerfa eru.

     2.      Hefur ráðuneytið metið áhættu af notkun fjarskiptakerfa frá einstökum framleiðendum?
                  a.      Ef svo er, hvaða ráðstafanir hyggst ráðuneytið gera í kjölfar áhættumats?
                  b.      Ef svo er ekki, er í ráði að framkvæma áhættumat?

    Fjarskiptastofa fer með framkvæmd fjarskiptalaga og það er ekki í höndum ráðuneytisins að meta þá áhættu sem spurt er um. Fjarskiptastofa vinnur nú, á grundvelli fjarskiptalaga, að sértæku áhættumati sem snýr aðallega að íslenska farnetinu en einnig stofnnetinu, líkt og komið hefur fram opinberlega. Niðurstaða þessa áhættumats liggur ekki fyrir.

     3.      Hefur ráðuneytið tekið mið af því hvaða farsíma- og gagnaflutningskerfi opinberir aðilar í nágrannaríkjum sem aðild eiga að Atlantshafsbandalaginu nota í fjarskiptum sínum?
    Ráðuneytið er meðvitað um almenna þróun hjá öðrum bandalagsríkjum hvað slíkt varðar. Kröfur er varða farsíma- og gagnaflutningskerfi eru þó ekki sambærilegar hjá öllum ríkjunum. Í mörgum tilvikum eru nákvæmar upplýsingar um fjarskiptabirgja opinberra aðila ekki opinberar.