Ferill 226. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 372 — 226. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Berglindi Hörpu Svavarsdóttur um uppbyggingu bráðaviðbragðs og bráðaþjónustu á Austurlandi.
1. Hvernig metur ráðherra árangur þeirrar uppbyggingar sem ráðist hefur verið í til að efla bráðaviðbragð á Egilsstöðum?
Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur fengið fjármagn til kaupa á búnaði sem styður við greiningu og meðferð bráðveikra einstaklinga á Egilsstöðum, m.a. blóðgasmæli og færanlegu ómtæki. Bráðaviðbragðið byggist jafnframt á skipulögðu vaktafyrirkomulagi lækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkraflutningamanna. Þá hefur verið komið á bakvakt geislafræðings hluta úr degi utan dagvinnutíma sem tilraunaverkefni til að bæta þjónustuna.
Ráðherra telur að með þessari uppbyggingu hafi aðstaða til fyrstu greiningar og meðferðar á Egilsstöðum batnað og forsendur til að meta þörf fyrir sérhæfðari þjónustu eða flutning sjúklinga styrkst. Uppbyggingin samræmist jafnframt áherslum í skýrslu viðbragðsteymis um bráðaþjónustu frá desember 2022 um viðeigandi búnað, mönnun og færni starfsfólks.
Að mati ráðherra er uppbyggingin mikilvægur þáttur í að efla bráðaþjónustu á Austurlandi og auka öryggi íbúa. Miklar vegalengdir og áhrif veðurs og samgangna á aðgengi að sérhæfðri heilbrigðisþjónustu undirstrika mikilvægi öflugs bráðaviðbragðs og viðeigandi greiningargetu á svæðinu.
2. Hefur ráðherra einhver áform um kaup á stærri greiningartækjum, m.a. sneiðmyndatæki, til að bæta greiningargetu og tryggja íbúum Austurlands gott aðgengi að bráðaþjónustu?
Ráðherra telur mikilvægt að áfram verði horft til þess hvernig tryggja megi góða greiningargetu á Austurlandi með hliðsjón af þörfum íbúa, landfræðilegum aðstæðum og þeirri þjónustu sem þegar er til staðar.
Ákvörðun um fjárfestingu í stærri greiningartækjum þarf að byggjast á heildstæðu mati á bráðaþjónustu á Austurlandi. Tryggja þarf að húsnæði, mönnun og rekstur styðji við þá þjónustu sem búnaðinum er ætlað að veita. Við slíka skoðun þarf jafnframt að taka ákvörðun um það hvort um flutning þjónustu er að ræða milli landsvæða, frá Neskaupstað til Egilsstaða, eða hvort verið er að bæta við nýrri þjónustueiningu. Almennt er talið rökrétt að sneiðmyndatæki sé staðsett nálægt skurðaðstöðu og skurðteymi sem getur hafið nauðsynlega meðferð sé slík aðstaða til staðar í umdæminu.
3. Mun ráðherra tryggja fjármögnun næsta áfanga uppbyggingar bráðaviðbragðs á Egilsstöðum, þar á meðal til kaupa á sneiðmyndatæki og uppsetningar nauðsynlegrar aðstöðu fyrir slíkt tæki?
Heilbrigðisráðherra getur lagt til að tiltekin verkefni séu fjármögnuð en það er fjármála- og efnahagsráðherra sem leggur fjárlagafrumvarp fyrir Alþingi þar sem leitað er heimilda til ráðstöfunar útgjalda eftir málefnasviðum og málaflokkum og til hvers konar skuldbindinga ríkissjóðs.
Ráðherra leggur áherslu á að fjárfesting í greiningarbúnaði sé metin samhliða kostnaði við nauðsynlega aðstöðu, mönnun og rekstur slíkrar þjónustu. Rými fyrir nýtt sneiðmyndatæki er ekki fyrir hendi í núverandi húsnæði heilsugæslunnar á Egilsstöðum og því þyrfti að byggja við húsnæðið ef slíkt tæki yrði staðsett þar. Jafnframt þyrfti að tryggja fjármagn til aukinnar mönnunar geislafræðinga og bakvaktarþjónustu, auk viðeigandi eftirlits og umönnunar sjúklinga meðan beðið er niðurstaðna rannsókna.
4. Hvenær er áætlað að hægt verði að sinna fullnægjandi bráðagreiningu á Egilsstöðum, þar á meðal með notkun sneiðmyndatækis?
Á Egilsstöðum er þegar gerð fyrsta greining og meðferð vegna bráðra veikinda og slysa og mat lagt á þörf fyrir sérhæfðari þjónustu eða flutning sjúklinga. Uppbygging undanfarinna ára hefur miðað að því að styrkja þessa þjónustu. Í aðdraganda skoðunar á hagkvæmni og gagnsemi þess að hafa sneiðmyndatæki á Austurlandi þarf að vinna þarfagreiningu fyrir slíkt tæki sem tekur mið af þjónustunni sem fyrir er, íbúafjölda, umferð ferðamanna og ýmsum samgöngutengdum þáttum. Tvö sneiðmyndatæki í rekstri á Austurlandi gætu verið áskorun mönnunarlega séð og gætu ógnað rekstri tækisins í Neskaupstað vegna minna umfangs myndgreininga á því svæði.