Ferill 316. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 373 — 316. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um nýtingu og eflingu skattalegra hvata til almannaheillastarfs.
Frá Ragnhildi Jónsdóttur.
1. Hvernig hefur fjöldi aðila á almannaheillaskrá þróast frá gildistöku laga nr. 32/2021? Svar óskast sundurliðað eftir árum og starfsemisflokkum ásamt fjölda samþykktra og synjaðra umsókna og helstu ástæðum synjana.
2. Hver hefur reynslan verið af afmörkun þeirrar starfsemi sem veitir rétt til skráningar á almannaheillaskrá? Hafa komið fram álitaefni sem gefa tilefni til að skýra viðmið eða leiðbeiningar svo að félög geti betur áttað sig á möguleikum sínum til skráningar?
3. Hvaða leiðbeiningar og aðstoð standa félögum til boða við skráningu, endurnýjun skráningar og upplýsingaskil? Hafa verið greind tækifæri, m.a. í samráði við minni félög sem byggja á sjálfboðastarfi, til að einfalda framkvæmdina og auðvelda þátttöku þeirra í kerfinu?
4. Hefur verið skoðað hvort breytingar á fjárhæðarmörkum árlegs frádráttar einstaklinga, m.a. afnám 10.000 kr. lágmarks eða hækkun 350.000 kr. hámarks, gætu aukið enn frekar hvata til framlaga og eflt fjármögnun almannaheillastarfs?
5. Hvernig hafa ráðuneytið og Skatturinn kynnt frádráttarheimildirnar og hefur þekking almennings, fyrirtækja og félaga á þeim verið könnuð? Hvaða tækifæri eru til frekari kynningar í samstarfi við almannaheillafélög og hvaða kynningarefni stendur félögunum til boða?
Skriflegt svar óskast.