Ferill 317. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 374 — 317. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um mönnunarviðmið og öryggi íbúa á hjúkrunarheimilum.
Frá Ragnhildi Jónsdóttur.
1. Hvernig nýta stjórnvöld fyrirliggjandi upplýsingar um mönnun, faglega samsetningu starfsfólks og umönnunarþörf íbúa til að meta hvort mönnun á hjúkrunarheimilum samrýmist faglegum viðmiðum? Liggur fyrir heildstætt mat á stöðunni? Ef svo er, hverjar eru helstu niðurstöður matsins?
2. Hvernig er metin sú áhætta sem frávik frá faglegum mönnunarviðmiðum hafa í för með sér fyrir öryggi íbúa á hjúkrunarheimilum? Hvernig er brugðist við áhættunni og sannreynt að úrbætur séu fullnægjandi?
3. Hvað líður þeirri vinnu við skilgreiningu á mönnun og faglegri samsetningu starfsfólks á hjúkrunarheimilum sem ráðherra greindi Alþingi frá 11. september 2026? Hvenær er gert ráð fyrir því að niðurstöður liggi fyrir? Hvernig verða þær nýttar við eftirlit með gæðum og öryggi þjónustu? Verður þörf á endurskoðun faglegra mönnunarviðmiða metin á grundvelli þeirra?
4. Er hafin eða er fyrirhuguð endurskoðun á kröfum um þjónustu í hjúkrunarrýmum samkvæmt kröfulýsingu fyrir hjúkrunarrými og dvalarrými með hliðsjón af umönnunarþörf íbúa, faglegum mönnunarviðmiðum og gæðum og öryggi þjónustu? Ef svo er, hvað líður endurskoðuninni, hvenær er áætlað að uppfærðar kröfur taki gildi og hvernig verður vinnan samrýmd þeirri vinnu sem vísað er til í 3. tölul.? Ef svo er ekki, telur ráðherra þörf á slíkri endurskoðun?
Skriflegt svar óskast.