Ferill 318. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 375 — 318. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um starfs- eða sérnámsbraut í framhaldsskóla.
Frá Önnu Maríu Jónsdóttur.
1. Hvaða áform hefur ráðherra um að einfalda og bæta umsóknarferli ungmenna sem sækja um nám á starfs- eða sérnámsbraut í framhaldsskóla að loknu grunnskólanámi?
2. Hvernig hyggst ráðherra koma til móts við framangreind ungmenni svo að þau fái viðeigandi skólavist?
3. Telur ráðherra þörf á að endurskoða reglur og verklag um umsóknir um nám á starfs- og sérnámsbrautum til að tryggja að nemendur með sérþarfir sitji ekki eftir í námsúrræðum sem þeir ráða ekki við?
Munnlegt svar óskast.