Ferill 319. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 376 — 319. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um Matsferil og PISA-kannanir.
Frá Jóni Pétri Zimsen.
1. Hve hátt hlutfall spurninga í skylduhluta Matsferils, þ.e. stöðu- og framvinduhluta fyrir 4., 7. og 9./10. bekk, byggist á samræmdum könnunarprófsspurningum sem voru notaðar á árunum 2009–2022?
2. Hve hátt hlutfall hæfniviðmiða aðalnámskrár grunnskóla í íslensku og stærðfræði fyrir 4., 7. og 9. bekk er metið með spurningum sem vísað er til í 1. tölul.?
3. Hve hátt hlutfall hæfniviðmiða aðalnámskrár grunnskóla fyrir 4., 7. og 9. bekk er metið með spurningum í stöðu- og framvinduhluta Matsferils?
4. Eru sömu eða lítt breyttar spurningar notaðar ár eftir ár í Matsferli fyrir hvern árgang?
5. Er það mat ráðherra að Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (áður Menntamálastofnun) hafi deilt niðurstöðum PISA-kannana árin 2012, 2015 og 2018 með sveitarfélögum og grunnskólum í trássi við lög eða stjórnvaldsfyrirmæli?
6. Hvers vegna hefur vinnulagi við upplýsingagjöf varðandi PISA verið breytt frá því sem var árin 2015 og 2018?
Skriflegt svar óskast.