Ferill 320. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 377 — 320. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um tilkynningar um kynferðisofbeldi til barnaverndarþjónustu.
Frá Eydísi Ásbjörnsdóttur.
1. Hversu margar tilkynningar bárust barnaverndarþjónustu um kynferðisofbeldi gegn börnum, þ.m.t. stafrænt kynferðisofbeldi, á síðustu fimm árum? Svarið óskast sundurliðað eftir árum, barnaverndarumdæmum og aldri og kyni viðkomandi barna. Jafnframt er þess óskað að fram komi fjöldi barna sem tilkynnt var vegna á tímabilinu og fjöldi tilkynninga fyrir hvert barn.
2. Hversu oft urðu tilkynningar að barnaverndarmálum í framangreindum tilvikum og hversu mörg þeirra voru tilkynnt eða kærð til lögreglu?
Skriflegt svar óskast.