Ferill 321. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 378 — 321. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um afdrif mála þar sem börn eru brotaþolar kynferðisofbeldis.
Frá Eydísi Ásbjörnsdóttur.
2. Hversu mörgum málum lauk með því að rannsókn var hætt eða hún felld niður og hversu mörg mál leiddu til þess að ákæra var gefin út? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
3. Hversu mörg mál leiddu til sakfellingar í héraðsdómi og hve mörgum var áfrýjað til Landsréttar? Svar óskast sundurliðað eftir niðurstöðu á báðum dómstigum og hvort dómur hafi verið staðfestur í Landsrétti, refsing milduð eða þyngd, sýknu snúið í sakfellingu eða sakfellingu snúið í sýknu.
Skriflegt svar óskast.