Ferill 177. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 379 — 177. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Njáli Trausta Friðbertssyni um fjarskiptakerfi.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða farsíma- og gagnaflutningskerfi nýta ráðuneytið og stofnanir þess í fjarskiptum sínum? Svar óskast sundurliðað eftir framleiðanda og stofnun.
Ráðuneytið og stofnanir þess nota fjarskiptaþjónustu margra fjarskiptafyrirtækja sem veitt er um ýmis fjarskiptakerfi fyrir farsíma- og gagnaflutning. Eðli máls samkvæmt fara fjarskipti tveggja aðila um þau fjarskiptakerfi sem fjarskiptaþjónusta beggja aðila er byggð á. Því er ómögulegt að segja hvaða fjarskiptakerfi eða búnaður kemur við sögu í fjarskiptum við aðra aðila. Sundurliðun á fjarskiptaþjónustu einstakra ráðuneyta og ríkisstofnana og notkun þeirra á tilteknum farsíma- og gagnaflutningskerfum eða búnaði slíkra kerfa getur skapað öryggisógn. Slíkar upplýsingar mætti nota til skipulagðra netárása á umrædd kerfi með það fyrir augum að hafa áhrif á fjarskipti stjórnvalda og þá þjónustu sem reiðir sig á fjarskipti og gagnaflutning. Með hliðsjón af slíkri mögulegri öryggisógn er á grundvelli öryggishagsmuna hvorki upplýst um hvaða farsíma- og gagnaflutningskerfi eru notuð né hverjir framleiðendur búnaðar þessara kerfa eru.