Ferill 164. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 380 — 164. mál.
Svar
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um meðferð viðtalsbeiðna.
1. Hefur ráðherra sett sér vinnureglur um meðferð viðtalsbeiðna?
Vinnureglur eru til staðar en stór hluti viðtalsbeiðna innlendra fjölmiðla berst eftir óformlegum leiðum, svo sem í persónu (eftir ríkisstjórnarfundi), símleiðis eða í smáskilaboðum til aðstoðarmanna ráðherra. Æskilegt er, og óskað eftir því, að viðtalsbeiðnir komi skriflega til upplýsingafulltrúa til að hægt sé að tryggja eftirfylgni innan tímamarka og skráningu í málaskrá.
Þegar fjölmiðlar, bæði innlendir og erlendir, óska skriflega eftir viðtali er beiðnin skráð og viðtalið veitt að því gefnu að svigrúm finnist í dagskrá ráðherra. Ef dagskrá leyfir ekki viðtöl innan þeirra tímamarka sem eftir er óskað, er eftir atvikum leitað annarra leiða til að verða við beiðninni, svo sem að óska eftir skriflegum spurningum eða bjóða upp á símaviðtal. Upplýsingafulltrúi er tengill fjölmiðla við ráðuneytið og sinnir leiðbeiningarskyldu í þeim efnum. Það getur falið í sér að beina fyrirspurn á annað ráðuneyti eða stofnun ef svo ber undir.
2. Hefur ráðherra hafnað viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og ef svo er, hversu oft og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?
Ráðherra hefur ekki hafnað viðtalsbeiðnum frá innlendum fjölmiðli í þeim skilningi að hann gefi ekki kost á sér til viðtals. Sökum anna hefur það gerst að ekki sé unnt að verða við viðtalsbeiðnum, sérstaklega þeim sem berast með stuttum fyrirvara eða ef umfjöllunarefnið heyrir ekki undir ráðuneytið. Í slíkum tilvikum er þeim sem óskar eftir viðtali greint frá ástæðu þess að ekki er unnt að verða við beiðninni.
3. Hversu oft hefur ráðherra samþykkt viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?
Ekki er hægt að svara nákvæmlega um fjölda viðtala sem ráðherra hefur veitt á kjörtímabilinu, en stór hluti þeirra fer fram eftir ríkisstjórnarfundi þar sem ráðherrar veita fjölmiðlum jafnan viðtöl ef aðstæður leyfa. Alls hafa verið haldnir um 150 ríkisstjórnarfundir það sem af er kjörtímabilinu. Á þessu kjörtímabili hefur ráðherra veitt fjölda viðtala við helstu fjölmiðla landsins og verið gestur í umræðuþáttum í sjónvarpi og útvarpi, sem og fagtímaritum. Má þar nefna viðtöl við fréttastofu RÚV, fréttastofu Sýnar (áður Stöðvar 2) og Vísi, Morgunblaðið, Heimildina, Samstöðina, Eyjuna og Grapevine. Ráðherra hefur einnig verið gestur í umræðuþáttum, m.a. Sprengisandi, Kastljósi, Silfrinu, Bítinu og Morgunútvarpinu. Þess utan hefur ráðuneytið orðið við fjölda upplýsingabeiðna frá fjölmiðlum landsins.