Ferill 322. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 381 — 322. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016 (stofnframlög).
Frá meiri hluta velferðarnefndar (KÁB, KÞS, RagnaS, JBÓ, HeiðaI).
1. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 7. mgr. 11. gr., sbr. einnig 14. gr., er heimilt að veita allt að 35% stofnframlag ríkis á grundvelli 1. mgr. 11. gr. til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum. Heimild 1. málsl. þessarar málsgreinar tekur þó ekki til íbúðarhúsnæðis á vegum sveitarfélaga, sbr. 3. tölul. 2. gr.
Sveitarfélagi er, þrátt fyrir 1. málsl. 1. mgr. 14. gr., heimilt að veita stofnframlag að hluta. Skal stofnframlag ríkis skv. 1. mgr. 11. gr. þá vera 23% að viðbættum þeim hluta 12% stofnframlags sveitarfélags skv. 1. málsl. 1. mgr. 14. gr. sem greiðist ekki af sveitarfélaginu þannig að samanlögð stofnframlög ríkis og sveitarfélags skv. 11. og 14. gr. nemi 35% af stofnvirði íbúðar.
Við afgreiðslu umsókna um stofnframlög skal Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun miða við að a.m.k. tveir þriðju hlutar þess fjármagns sem til úthlutunar er hverju sinni renni til íbúða sem ætlaðar eru tekju- og eignaminni leigjendum á vinnumarkaði. Heimilt er að víkja frá ákvæði 1. málsl. þessarar málsgreinar sé hlutfall umsókna um slíkar íbúðir lægra.
Endurgreiðsla á stofnframlagi sem veitt hefur verið af ríkinu samkvæmt ákvæði þessu skal renna í Húsnæðismálasjóð en endurgreiðsla á stofnframlagi sem veitt hefur verið, að hluta eða öllu leyti, af sveitarfélagi skal renna til viðkomandi sveitarfélags. Um endurgreiðslu stofnframlags fer að öðru leyti samkvæmt almennum ákvæðum laganna.
Ráðherra er heimilt að setja nánari fyrirmæli um framkvæmd ákvæðis þessa með reglugerð, svo sem um frekari skilyrði fyrir veitingu stofnframlags og um skilgreiningu tekju- og eignaminni leigjenda.
Ákvæði þetta gildir til 31. desember 2027.
2. gr.
Greinargerð.
Frumvarpið byggist á áherslum ríkisstjórnarinnar samkvæmt stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins frá 21. desember 2024. Það er enn fremur liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna endurskoðunar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði samkvæmt yfirlýsingu, dags. 8. október 2026, sem m.a. er ætlað að fylgja eftir fyrirheitum stjórnvalda um aðgerðir til stuðnings stöðugleikasamningnum frá 7. mars 2024. Lýstu stjórnvöld því yfir af því tilefni að stutt yrði við byggingu allt að 1.000 íbúða á ári á samningstímanum með stofnframlögum til almennra íbúða og hlutdeildarlánum til að mæta fyrirsjáanlegri íbúðaþörf ólíkra hópa samfélagsins. Í því sambandi var horft til þess að fjármagnaðar yrðu um 600 almennar íbúðir og um 400 hlutdeildarlánaíbúðir árlega á samningstímabilinu.
Við stofnun almenna íbúðakerfisins voru sett sambærileg markmið um árlegan fjölda almennra íbúða í tengslum við gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Þannig segir í yfirlýsingu ríkisstjórnar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins um húsnæðismál, dags. 28. maí 2015, til stuðnings kjarasamningum, að ráðist yrði í átak um byggingu félagslegra leiguíbúða. Stefnt væri að því að byggja 2.300 íbúðir á næstu fjórum árum, þ.e. á árunum 2016–2019, þó að hámarki 600 íbúðir á ári. Að því loknu yrði metin þörf á áframhaldandi uppbyggingu félagslegs leiguhúsnæðis, m.a. að teknu tilliti til stöðu opinberra fjármála.
Í framhaldinu var því lýst yfir í aðgerðapakka ríkisstjórnar Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs til stuðnings lífskjarasamningum, sem kynntur var 3. apríl 2019, að framlög í almenna íbúðakerfinu yrðu aukin um tvo milljarða kr. á hverju ári eða samtals sex milljarða kr. á árunum 2020–2022. Með þessu væri áætlað að unnt yrði að ráðstafa stofnframlögum til byggingar allt að 1.800 íbúða á árunum 2020–2022, eða að jafnaði 600 almennra íbúða árlega.
Þá gerðu ríki og sveitarfélög með sér rammasamning hinn 12. júlí 2022 um aukið framboð íbúða 2023–2032 og sameiginlega sýn og stefnu í húsnæðismálum. Var þar sett fram markmið um að 4.000 nýjar íbúðir yrðu byggðar ár hvert 2023–2027 og 3.500 íbúðir á ári 2028–2032. Þar af yrðu um 30% nýrra íbúða hagkvæmar íbúðir á viðráðanlegu verði, þ.e. almennar íbúðir, hlutdeildarlánaíbúðir eða aðrar íbúðir sem nytu opinbers húsnæðisstuðnings og ætlað væri að leysa úr húsnæðisþörf tekju- og eignalægri hópa.
Líkt og sést á eftirfarandi mynd hafa framangreind markmið um árlegan fjölda almennra íbúða ekki gengið eftir, þrátt fyrir að stjórnvöld hafi tryggt viðeigandi fjárheimildir til stofnframlaga.
Mynd 1. Samþykktar íbúðir og íbúðir teknar í notkun innan almenna íbúðakerfisins frá upphafi.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Frá því að almenna íbúðakerfið var sett á laggirnar 15. júní 2016 hafa samtals um 4.700 almennar íbúðir verið fjármagnaðar með stofnframlögum, þar af hafa um 3.200 almennar íbúðir verið teknar í notkun. Hefðu fyrrgreind markmið um uppbyggingu innan almenna íbúðakerfisins náðst væru almennar íbúðir aftur á móti nú um 6.000 talsins.
Þótt fyrrgreind markmið um fjölgun almennra íbúða hafi ekki náðst að fullu er óumdeilt að almenna íbúðakerfið hafi aukið húsnæðisöryggi fólks á leigumarkaði verulega með viðráðanlegu leiguverði og langtímaleigu. Þannig kveður 1. gr. laga um almennar íbúðir, nr. 52/2016, á um að markmið þeirra sé að bæta húsnæðisöryggi fólks undir ákveðnum tekju- og eignamörkum með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi leiguhúsnæði og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda eða að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna. Samkvæmt greiningu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar hefur meðalleiguverð á fermetra á höfuðborgarsvæðinu almennt verið um 18% lægra í almenna íbúðakerfinu undanfarin ár samanborið við markaðsleiguverð.
Mikilvægt er að hraða áframhaldandi uppbyggingu innan almenna íbúðakerfisins til að auka framboð á öruggu leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði. Samkvæmt mati Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar er áætlað að um 4.000 heimili séu nú á biðlistum eftir því að komast inn í almenna íbúðakerfið og er því ljóst að þörfin er mikil.
Sem fyrr greinir er ekki síður mikilvægt að tryggja áframhaldandi uppbyggingu á byggingamarkaði í ljósi þeirrar kólnunar sem verið hefur á markaðnum. Annars staðar á Norðurlöndum hafa opinber húsnæðisstuðningskerfi verið nýtt til sveiflujöfnunar á íbúðamarkaði við slíkar aðstæður. Markviss beiting þeirra hefur reynst áhrifarík leið til að örva íbúðauppbyggingu þegar umsvif á markaði hafa dregist saman. Með því má draga úr sveiflum á húsnæðismarkaði vegna misvægis milli framboðs og eftirspurnar eftir íbúðum og auka verðstöðugleika.
Frumvarpinu er því ekki aðeins ætlað að fjölga almennum íbúðum á skömmum tíma heldur jafnframt að styðja við áframhaldandi íbúðauppbyggingu við þær markaðsaðstæður sem nú eru uppi. Með því er lögð til tímabundin heimild ríkisins til ársloka 2027 til að fjármagna stofnframlag sveitarfélags, að hluta eða öllu leyti, til fjármögnunar á almennum íbúðum, en lögin gera nú ráð fyrir að stofnframlag ríkis og sveitarfélaga sé hvort um sig háð því að hinn aðilinn veiti einnig stofnframlag. Þannig verði hægt að ráðast hratt í nýbyggingarverkefni og áframhaldandi uppbyggingu almenna íbúðakerfisins.
Gert er ráð fyrir að tímabundin heimild ríkisins til að fjármagna stofnframlag sveitarfélags, að hluta eða öllu leyti, hafi ekki í för með sér áhrif á fjárlög eða frumvarp til fjárlaga, heldur rúmist innan fjárheimilda til stofnframlaga á gildistíma úrræðisins samkvæmt fjárlögum, sbr. kostnaðarmat félags- og húsnæðismálaráðuneytis dags. 3. nóvember 2026.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Með frumvarpinu er lagt til að komið verði á tímabundnu úrræði til ársloka 2027 til að fjölga á skömmum tíma almennum íbúðum fyrir tekju- og eignalægri leigjendur og styðja við áframhaldandi uppbyggingu innan almenna íbúðakerfisins. Aðgerðinni er jafnframt ætlað að styðja áframhaldandi íbúðauppbyggingu á fasteignamarkaði við núverandi markaðsaðstæður og stuðla þannig að auknu jafnvægi á húsnæðismarkaði til framtíðar litið.
Lagt er til í 1. gr. frumvarpsins að nýtt ákvæði til bráðabirgða bætist við lög um almennar íbúðir þar sem kveðið verði á um tímabundna heimild ríkisins til að fjármagna stofnframlög sveitarfélaga í almenna íbúðakerfinu. Samkvæmt lögunum nemur stofnframlag sveitarfélags 12% af stofnvirði íbúðar og er, sem fyrr greinir, forsenda þess að ríkið geti veitt stofnframlag til viðkomandi íbúðauppbyggingar. Algengt hefur verið fram til þessa að sveitarfélög veiti lóðir sem stofnframlag, líkt og heimilt er skv. 1. mgr. 14. gr. laganna, en einnig geta sveitarfélög veitt stofnframlög í formi beins framlags, lækkunar eða niðurfellingar á gjöldum sem umsækjanda ber að standa skil á til sveitarfélagsins vegna íbúðanna, sem og húsnæðis sem breyta á í almennar íbúðir. Undanfarin ár hefur aftur á móti hátt vaxtastig, og þar með aukinn fjármögnunar- og framkvæmdakostnaður, svo og takmarkað framboð byggingarhæfra lóða, hægt á uppbyggingu innan almenna íbúðakerfisins. Aðgerðinni er því ætlað að mæta skorti á byggingarhæfum lóðum ásamt þrengri fjárhagsstöðu sveitarfélaga við núverandi efnahagsaðstæður sem takmarkað hefur möguleika þeirra á að veita stofnframlag í formi beins framlags eða lækkunar eða niðurfellingar á gjöldum.
Þannig er í 1. mgr. 1. gr. frumvarpsins lögð til tímabundin undanþága frá ákvæði 7. mgr. 11. gr. laganna, sem kveður á um að forsenda fyrir veitingu stofnframlags ríkisins skv. 1. mgr. sömu greinar sé að hlutaðeigandi sveitarfélag, þar sem almenn íbúð verður staðsett, veiti umsækjanda jafnframt stofnframlag sveitarfélags, sbr. 14. gr. laganna. Ríkissjóði verði þannig veitt tímabundin heimild til fjármögnunar stofnframlaga sveitarfélaga í almenna íbúðakerfinu, sem nemur 12% af stofnvirði íbúðar, og geti þannig veitt 35% stofnframlag til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum, auk viðbótarframlaga sem við geta átt. Í þessu sambandi er þó gert ráð fyrir því í 2. mgr. 1. gr. frumvarpsins að sveitarfélag geti veitt stofnframlag að hluta eða öllu leyti, sem komi þá til frádráttar þeim stofnframlögum sem ríkið hefði annars veitt samkvæmt heimild 1. mgr. Aftur á móti er ekki gert ráð fyrir að heimild ríkissjóðs til að fjármagna stofnframlag sveitarfélags að hluta eða öllu leyti taki til íbúðarhúsnæðis á vegum sveitarfélaga, þ.e. íbúðarhúsnæðis sem sveitarfélög úthluta og ætlað er þeim sem sveitarfélögum ber sérstök lagaskylda til að veita úrlausn í húsnæðismálum, sbr. 3. tölul. 2. gr. laga um almennar íbúðir. Þannig er áfram gert ráð fyrir að sveitarfélög komi að fjármögnun slíkra almennra íbúða með 12% stofnframlagi.
Þá er í 3. mgr. 1. gr. frumvarpsins lagt til að framlengd verði forgangsregla þess efnis að við afgreiðslu umsókna um stofnframlög skuli Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun miða við að a.m.k. tveir þriðju hlutar þess fjármagns sem til úthlutunar er hverju sinni renni til íbúða sem ætlaðar eru tekju- og eignaminni leigjendum á vinnumarkaði. Efnislega samhljóða ákvæði er nú að finna í ákvæði til bráðabirgða VII í lögunum. Áfram er gert ráð fyrir að heimilt verði að víkja frá þeirri reglu sé hlutfall umsókna um slíkar íbúðir lægra.
Í 4. mgr. 1. gr. frumvarpsins er lagt til að kveðið verði sérstaklega á um hvernig fara skuli með endurgreiðslur stofnframlaga sem veitt hafa verið í tengslum við hið tímabundna úrræði. Lagt er til að þau stofnframlög sem veitt hafi verið af ríkinu renni í Húsnæðismálasjóð, líkt og almennt gildir samkvæmt lögunum um stofnframlög ríkisins, enda þótt um sé að ræða stofnframlag sem ella hefði verið greitt af hlutaðeigandi sveitarfélagi. Hafi sveitarfélag aftur á móti veitt stofnframlag að hluta eða öllu leyti skuli þeir fjármunir endurgreiddir sveitarfélaginu í samræmi við almennar reglur laganna. Um endurgreiðslu á stofnframlagi fari að öðru leyti samkvæmt almennum ákvæðum laganna.
Í 5. mgr. 1. gr. frumvarpsins er lagt til að ráðherra verði veitt heimild til að setja nánari fyrirmæli um framkvæmd bráðabirgðaákvæðisins í reglugerð, svo sem um frekari skilyrði fyrir veitingu stofnframlaga samkvæmt ákvæðinu og um skilgreiningu tekju- og eignaminni leigjenda í tengslum við forgangsreglu 3. mgr. 1. gr. frumvarpsins. Í því sambandi er til að mynda gert ráð fyrir því að ráðherra geti sett nánari skilyrði um þau verkefni sem stofnframlög verði veitt til. Almennt er lagt til grundvallar að megináhersla úrræðisins verði á ný uppbyggingarverkefni og verkefni sem eru skammt á veg komin. Þó er gert ráð fyrir að heimilt verði að kaupa fullbúnar íbúðir í sama mæli og verið hefur í því skyni að tryggja félagslega blöndun. Í þeim tilvikum verði þó áfram lögð áhersla á kaup íbúða úr nýbyggingarverkefnum fremur en kaup á eldri íbúðum.
Í 6. mgr. 1. gr. frumvarpsins er kveðið á um að ákvæðið gildi út árið 2027.
Um 2. gr.