Ferill 171. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 382  —  171. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Adolfssyni um fjármögnun Fljótaganga.


     1.      Hver er nýjasta kostnaðaráætlun Fljótaganga, sundurliðuð eftir hönnun, framkvæmdum, vegagerð, búnaði, eftirliti og óvissuálagi?
    Þær upplýsingar sem fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur um kostnaðaráætlun Fljótaganga er að finna í samgönguáætlun 2026–2040. Áætlunin var samþykkt á Alþingi í júní 2026 og er á forræði innviðaráðuneytisins.

     2.      Hversu hátt eiginfjárframlag þarf ríkissjóður að leggja til félagsins Ganga og brúar ohf. eða sérstaks verkefnafélags vegna Fljótaganga?
    Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2027 er lagt til að heimild verði veitt til að auka við hlutafé innviðafélagsins Ganga og brúar ohf. í því skyni að auka fjárfestingargetu félagsins til að standa undir fjármögnun og uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja. Í samræmi við lög um innviðafélag þarf innviðaráðherra að ganga til samninga við félagið um uppbyggingu og rekstur þeirra samgönguverkefna sem félagið tekur að sér og er samningurinn einnig háður samþykki fjármála- og efnahagsráðherra. Ekki hefur enn verið gengið frá slíkum samningi við félagið.
    Horft er til þess að Fljótagöng geti verið meðal fyrstu verkefna félagsins og í samgönguáætlun er stefnt að því að framkvæmdir hefjist á árinu 2027. Til að félagið geti tekið að sér ábyrgð á fjármögnun og framkvæmd Fljótaganga kemur til skoðunar að auka við hlutafé félagsins þannig að það hafi fjárhagslega burði til að standa undir verkefninu og hraða framvindu þess. Slík hlutafjáraukning gæti verið í formi reiðufjár sem nemur hluta af stofnkostnaði verkefnisins eða tekjuberandi eigna.
    Á þessum tímapunkti liggur ekki fyrir endanleg greining á eiginfjárþörf vegna Fljótaganga.

     3.      Er gert ráð fyrir að framlag ríkissjóðs verði greitt í einu lagi eða sem árlegt framlag vegna vaxta og afborgana?
    Horft er til þess að framlag ríkissjóðs verði í formi hlutafjáraukningar. Slík hlutafjáraukning getur verið í einu lagi eða í ádráttarfyrirkomulagi yfir tiltekið tímabil.

     4.      Hver er áætluð árleg greiðslubyrði verkefnisins miðað við fyrirhugaðan lánstíma og vaxtakjör?
     5.      Hversu hátt veggjald er talið nauðsynlegt og hverjar eru áætlaðar árlegar brúttó- og nettótekjur af gjaldinu?
     6.      Hvaða umferðarspá og mat á greiðsluvilja liggja að baki tekjuáætluninni?
     7.      Hversu stórum hluta stofn-, rekstrar-, viðhalds- og fjármagnskostnaðar er gert ráð fyrir að veggjöld standi undir?

    Ekki hefur verið gerður samningur við félagið um verkefnið og því liggja ekki fyrir svör við liðum 4–7 hjá ráðuneytinu.

     8.      Gildir 50% markaðsprófið um Göng og brú ohf. í heild eða fyrir hvert verkefni og dótturfélag þess sérstaklega?
    Við undirbúning félagsins hafa verið unnar sviðsmyndir sem byggjast á grunnforsendum um að félagið uppfylli markaðspróf Hagstofunnar og geti fjármagnað sig á markaði án ábyrgðar ríkissjóðs.

     9.      Verða tekjur af veggjöldum Sundabrautar, Ölfusárbrúar eða annarra mannvirkja nýttar til að fjármagna Fljótagöng?
    Samkvæmt 7. gr. laga um innviðafélag, nr. 70/2026, er félaginu heimilt að innheimta veggjöld fyrir notkun samgöngumannvirkja þar sem gjaldtaka af umferð skal miðast við að standa straum af byggingarkostnaði, viðhaldi, rekstri, þróun og eðlilegum afrakstri af fjárfestingu vega eða skilgreinds samgöngukerfis. Þá er einnig heimilt að byggja gjaldtöku á sjónarmiðum um vernd umhverfis, þróun skilgreinds samgöngukerfis, umferðaröryggi og stýringu umferðar.

     10.      Hefur Hagstofa Íslands eða Eurostat tekið afstöðu til þess hvort fyrirhuguð fjármögnun samræmist flokkun félagsins í C-hluta ríkissjóðs?
    Ekki liggur fyrir staðfest flokkun félagsins í C-hluta ríkissjóðs af Hagstofunni.

     11.      Hvaða fjárhagslegu áhættu ber ríkissjóður ef umferð eða veggjaldstekjur verða lægri en áætlað er?
    Ríkissjóður er eini eigandi félagsins og ber áhættu af rekstri þess sem slíkur. Afkoma félagsins endurspeglast í ríkisreikningi sem hlutdeild í afkomu dótturfélags.