Ferill 160. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 384 — 160. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um meðferð viðtalsbeiðna.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hefur ráðherra sett sér vinnureglur um meðferð viðtalsbeiðna?
2. Hefur ráðherra hafnað viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og ef svo er, hversu oft og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?
3. Hversu oft hefur ráðherra samþykkt viðtalsbeiðni á þessu kjörtímabili og frá hvaða fjölmiðlum eða öðrum miðlum?
Ekki hafa verið settar sérstakar vinnureglur um meðferð viðtalsbeiðna til ráðherra. Reynt er eftir fremsta megni að verða við viðtalsbeiðnum fjölmiðla en það er ekki alltaf mögulegt vegna tímaskorts og annarra verkefna.
Ekki er hægt að svara nákvæmlega um fjölda viðtala sem ráðherra hefur veitt á kjörtímabilinu en stór hluti þeirra fer fram eftir ríkisstjórnarfundi þar sem ráðherrar veita fjölmiðlum jafnan viðtöl ef aðstæður leyfa. Alls hafa verið haldnir um 150 ríkisstjórnarfundir það sem af er kjörtímabilinu.
Á þessu kjörtímabili hefur ráðherra veitt ótal fréttaviðtöl við helstu fjölmiðla landsins, verið gestur í fjölmörgum hlaðvörpum og umræðuþáttum í sjónvarpi og útvarpi. Má þar nefna viðtöl við fréttastofu RÚV, fréttastofu Sýnar (áður Stöðvar 2), Vísi, Morgunblaðið, Heimildina, Samstöðina, Eyjuna, Gímaldið og The Reykjavík Grapevine. Ráðherra hefur einnig verið gestur í umræðuþáttum, m.a. Sprengisandi, Kastljósi, Silfrinu, Pallborðinu, Bítinu, Morgunútvarpinu auk hlaðvarpanna Chess after dark, Ein pæling og Spjallið með Frosta Logasyni. Þá hefur ráðherra verið gestur í sjónvarpsþáttunum Vikan með Gísla Marteini, Gott kvöld og Með okkar augum. Einnig hefur þurft að hafna viðtalsbeiðnum frá flestum fyrrgreindum miðlum einhvern tíma á kjörtímabilinu vegna tímaskorts.
Á kjörtímabilinu hafa einnig borist fjölmargar viðtalsbeiðnir frá erlendum fjölmiðlum. Mörgum þeirra var synjað vegna tímaskorts og annarra verkefna en tæplega 80 beiðnir bárust í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Á kjörtímabilinu hefur ráðherra m.a. veitt The Guardian, Bloomberg, Financial Times, YLE, Yale Alumni Magazine, Irish Independent, Euractiv, Tagesspiegel, Sveriges Radio, BBC, Aftenposten, New York Times, RTL, France TV og The Rest is Politics, Postimees og Kringvarpi Færeyja viðtöl.
Viðtalsbeiðnum frá eftirfarandi erlendum fjölmiðlum hefur verið hafnað á kjörtímabilinu: 60 minutes Ástralíu, ABC Ástralíu, Acero y Roca, AFP, Agire Sociale News, Aktuality, Al Jazeera, Algemeen Dagblad, Altinget, Anadolu Agency, AP, ARD, Asahi TV, Bari Science Lab, BBC, Berlingske, Bloomberg, BNR, Caspian Energy, CBS, CGTN Europe, Channel 4, Clarin, CNBC, CNN, Columbia University Interview Series, Dagens Nyheter, Dagens Næringsliv, Dagsavisen, De Tijd, Der Spiegel, Deutsche Welle, Diplomatic Quarterly Magazine, Dogu Gunesi TV, DPA News Agency, Dubai Talk Show, Dungeons of Science, Economist, El País, ERR, Euractiv, EuroMania, Euronews, European Movement UK, Explorer Magazine, Forbes Austurríki, France 24, Frankfurter Allgemeine Zeitung, Global TV, Hafiz Times, Iltalehti, Jiji Press, KAN News, Kathimerini, Kristeligt Dagblad, Kölner Stadt-Anzeiger, La Presse, LBC Radio, Le Grand Continent, Le Point, Le Temps, Les Echos, Lithuanian Public Broadcaster, Millieyt, Monetary Matters, Morgenbladet, ND Vijesti, New York Times, NRK, Parlons Pol, Politico, Politiken, Puls360°, Radio France, Radio IIII, Reformatorisch Dagblad, Reuters, Room for Discussion, RTL, Suddeutsche Zeitung, Sudostschweiz, Sunday Times, Suomen Kuvalehti, SVT, Swiss Broadcasting Company, TBS Japan, Telegraph, The Guardian, The Lindsay Advocate, The Observer, The Parliament Magazine, The Prode, The Times, The Wyatt Sharpe Show, Trend News, Turkiye Today, TurkTime, TVP World, Verdens Gang, Vijesti, Voice of Islam Breakfast Show, Wall Street Journal, Washington Post, Welt, WION, World News Journal og Yomiuri Shimbun.