Ferill 75. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 387 — 75. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit með frávísunartillögu
um tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030.
Frá 1. minni hluta velferðarnefndar.
Umsagnaraðilar hafa bent á að samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2027 munu fjárframlög vegna innleiðingar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, falla niður þar sem fimm ár eru liðin frá gildistöku þeirra. Að mati þeirra er innleiðingu laganna bersýnilega ekki lokið, líkt og bent er á í skýrslu Ríkisendurskoðunar um innleiðingu og framkvæmd farsældarlaganna frá júní síðastliðnum. Í skýrslunni kemur fram að tafir hafi orðið á upphafstíma innleiðingarinnar og að upphaflegt kostnaðarmat standist ekki, enda hafi komið í ljós að kostnaður við að þjónusta hvert barn sé í reynd „verulega hærri“ en kostnaðarmatið gerði ráð fyrir. Einnig er ástæða til að taka undir með Ríkisendurskoðun að það sé óviðunandi að ekki sé enn lokið innleiðingu á samþættri þjónustu fyrir börn sem mest þurfa á slíkri þjónustu að halda, t.d. börn með fjölþættan vanda og/eða vímuefnavanda.
Að mati 1. minni hluta er það góðra gjalda vert að leggja fram stefnu og framkvæmdaáætlun líkt og gert er með tillögu þessari. Hins vegar verður að skoða málið með hliðsjón af þeim niðurskurði framlaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna sem lagður er til í frumvarpi til fjárlaga sem getur haft umtalsverð áhrif á framkvæmd þingsályktunartillögunnar sem hér er til umræðu. Getur niðurskurðurinn sér í lagi haft áhrif á aðgerðir 1, 3, 6 og 14 í framkvæmdaáætlun tillögunnar líkt og kemur fram í umsögn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Að óbreyttu gerir tillagan ekki ráð fyrir þeim raunveruleika sem vofir yfir sveitarfélögum samkvæmt frumvarpi til fjárlaga, þ.e. framangreindri skerðingu á framlögum til sveitarfélaga. Í því ljósi telur 1. minni hluti að samþykkt málsins án fullnægjandi fjármögnunar sé óráðleg.
Að framangreindu virtu leggur minni hlutinn til að tillögunni verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Alþingi, 10. nóvember 2026.
| Rósa Guðbjartsdóttir, frsm. |
Árni Helgason. | Sigríður Á. Andersen. |