Ferill 133. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 389  —  133. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, nr. 163/2007 (brottfall sjálfstæðrar rannsóknareiningar).

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá forsætisráðuneyti.
    Nefndinni bárust fimm umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Í lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, nr. 163/2007, er kveðið á um að við stofnunina skuli starfrækja sjálfstæða rannsóknareiningu sem sé aðskilin hagskýrslustarfseminni, sbr. 3. mgr. 1. gr. laganna. Sú eining skuli fylgjast með afkomu þjóðarbúsins, semja þjóðhagsspár og áætlanir og birta opinberlega.
    Með fyrirliggjandi frumvarpi er lagt til að skylda Hagstofu Íslands til að starfrækja sjálfstæða rannsóknareiningu verði felld brott úr lögunum. Þess í stað muni áætlanir í opinberum fjármálum byggjast á þjóðhagsspám Seðlabanka Íslands en skv. 8. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, er gerð krafa um að stefnumörkun í opinberum fjármálum byggist á traustum forsendum og gögnum, sem unnin séu hlutlægt og kerfisbundið, og opinberum hagtölum og þjóðhagsspám. Þá muni Seðlabankinn jafnframt, á grundvelli samkomulags við fjármála- og efnahagsráðuneytið, veita ráðuneytinu frekari upplýsingar sem liggja að baki spá bankans um hagstærðir sem ekki eru birtar opinberlega en ráðuneytið notar í áætlunum sínum.
    Meiri hlutinn tekur undir markmið frumvarpsins um einföldun með því að fella brott skyldu Hagstofunnar til útgáfu þjóðhagsspáa. Með breytingunni verði komið í veg fyrir tvíverknað í starfsemi hins opinbera en jafnframt skapist tækifæri til að efla kjarnastarfsemi Hagstofunnar. Þá áréttar meiri hlutinn mikilvægi þeirrar grundvallarhugsunar sem lá að baki því fyrirkomulagi að fela Hagstofunni þetta hlutverk árið 2009 þar sem leitast var við að undirstrika mikilvægi þess að sú efnahagsspá sem notuð er af stjórnvöldum hverju sinni sé unnin af sjálfstæðum og óháðum aðila. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er ekki horfið frá því að efnahagsstjórn stjórnvalda skuli byggjast á þjóðhagsspám sjálfstæðra og óháðra aðila, enda er Seðlabankinn sjálfstæður og óháður í störfum sínum og ljóst að þjóðhagsspár Seðlabankans uppfylla jafnframt skilyrði 8. gr. laga um opinber fjármál. Þá áréttar meiri hlutinn mikilvægi þess að stuðla að gagnsæi um forsendur og aðferðir við stefnumörkun í opinberum fjármálum, enda skal gera grein fyrir þeim forsendum sem stefnumörkunin byggist á, sbr. 3. málsl. 8. gr. laga um opinber fjármál.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Hildur Sverrisdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.


Alþingi, 10. nóvember 2026


Arna Lára Jónsdóttir,
form., frsm.
Anna María Jónsdóttir. Ásthildur Lóa Þórsdóttir.
Eiríkur Björn Björgvinsson. Ragna Sigurðardóttir.