Ferill 75. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 392 — 75. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit
um tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030.
Frá 2. minni hluta velferðarnefndar.
Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna mörkuðu tímamót í þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra. Markmið þeirra er að börn fái stuðning um leið og þörfin kemur fram og að skólar, félagsþjónusta, heilbrigðisþjónusta og aðrir þjónustuveitendur vinni saman að því að tryggja samfellu í þjónustunni. Annar minni hluti styður þau markmið og telur mikilvægt að byggja áfram á þeim árangri sem þegar hefur náðst.
Víðtæk pólitísk sátt um markmið laganna felur í sér þá ábyrgð að Alþingi fylgi framkvæmd þeirra sem allra best eftir. Sveitarfélög þurfa fjármagn, mannafla og aðgang að sérfræðiþjónustu til þess að sinna þeim verkefnum sem þeim eru falin samkvæmt lögunum. Alþingi þarf jafnframt að meta hvort fjárveitingar hafi fylgt verkefnunum og hvort börn og fjölskyldur fái fyrr og betur viðeigandi stuðning.
Greiningin þarf að liggja fyrir áður en framlagið fellur niður.
Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er gert ráð fyrir að 1,1 milljarðs kr. viðbótarframlag til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna innleiðingar farsældarlaganna falli niður. Á sama tíma gerir framkvæmdaáætlunin til ársins 2030 ráð fyrir áframhaldandi innleiðingu, þróun og eftirfylgni. Samkvæmt nefndaráliti meiri hluta velferðarnefndar er lagt til að greina kostnað sveitarfélaga við framkvæmd laganna á árunum 2027–2029.
Að mati 2. minni hluta eru ekki nægar upplýsingar um kostnað og fjárþörf sveitarfélaganna til að réttlæta niðurfellingu innleiðingarframlagsins á þessum tímapunkti. Fyrirhugað er að framlagið falli niður áður en þeirri kostnaðargreiningu sem meiri hlutinn leggur til verður lokið. Ákvörðun um áframhaldandi fjármögnun þarf að byggjast á mati á raunverulegri fjárþörf sveitarfélaganna.
Í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar frá júní 2026 kemur fram að enn skorti á að fullnægjandi forsendur séu fyrir hendi til að markmið laganna um samþætta, samfellda og viðeigandi þjónustu náist að fullu. Þar er m.a. bent á skort á úrræðum, bið eftir þjónustu og hægari innleiðingu innan heilbrigðiskerfisins en á öðrum vettvangi. Að mati 2. minni hluta styður það þá niðurstöðu að ekki verði litið svo á að innleiðingu laganna sé lokið.
Fram kemur í sömu úttekt, á bls. 5, að samkvæmt greinargerð frumvarps til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna hafi árangursmat með endurmati á fjármagnsþörf átt að fara fram við lok innleiðingartímabilsins og að fjármagnsþörf til framtíðar skyldi byggjast á því mati. Í svari mennta- og barnamálaráðherra á þskj. 333 á 158. löggjafarþingi er jafnframt vísað til þess að fimm ár verði liðin frá gildistöku laganna og að áætluðu tímabili innleiðingarfjármögnunar verði lokið. Það eitt að fyrirframáætluðu innleiðingartímabili sé lokið felur þó ekki sjálfkrafa í sér að innleiðingu laganna sé lokið eða að fjárþörf vegna innleiðingarinnar sé fallin niður. Að mati 2. minni hluta er mikilvægt að Alþingi fái skýrar upplýsingar um hvort fjárþörf sveitarfélaganna hafi verið endurmetin í samræmi við þessar forsendur. Hafi slíkt endurmat farið fram þurfa forsendur þess og niðurstöður að liggja fyrir áður en ákvörðun er tekin um niðurfellingu innleiðingarframlagsins.
Í umsögnum til nefndarinnar komu fram áhyggjur af því að innleiðingin hefði víða reynst umfangsmeiri og kostnaðarsamari en upphaflega var gert ráð fyrir. Því þarf greiningin að meta raunkostnað í samanburði við upphaflegar áætlanir og framlög ríkisins. Greina þarf á milli tímabundins innleiðingarkostnaðar, verkefna sem enn er ólokið og viðvarandi kostnaðar vegna framkvæmdar laganna. Að mati 2. minni hluta verður ekki dregin sú ályktun af því einu að verkefni hafi orðið hluti af daglegum rekstri sveitarfélaga að fjármögnun þeirra sé tryggð til framtíðar.
Við mat á kostnaði þarf að taka mið af bæði beinum og óbeinum kostnaði sveitarfélaga, þar á meðal mannafla-, umsýslu- og samræmingarkostnaði sem fellur til við framkvæmd laganna, auk þess sem meta þarf áhrif nýrra verkefna á framkvæmd annarra lögbundinna verkefna sveitarfélaga.
Fjármögnun og jafnt aðgengi óháð búsetu.
Af þeim 820,2 millj. kr. sem áætlaðar eru til aðgerða á árunum 2027–2030 samkvæmt tillögunni eru 520 millj. kr. ætlaðar til svæðisstöðva íþróttahéraða og allt að 300,2 millj. kr. til annarra aðgerða. Þessi fjárhæð tekur til fjögurra ára og af sundurliðun hennar verður ekki ráðið að hún komi í stað þess innleiðingarframlags sem fyrirhugað er að fella niður. Ráðherra hefur bent á að sveitarfélögum eigi jafnframt að berast fjármagn eftir öðrum leiðum. Skýra þarf um hvaða fjárhæðir ræðir, hvernig þeim verður úthlutað og hvaða verkefnum þeim er ætlað að standa undir.
Árangur farsældarlaganna veltur á því að ríki og sveitarfélög geti staðið undir þeirri ábyrgð sem þeim er falin. Verði framlag ríkisins fellt niður án þess að kostnaður vegna verkefnanna minnki eða önnur fjármögnun komi í staðinn eykst fjárhagslegt álag á sveitarfélögin.
Minni sveitarfélög geta átt erfiðara með að manna þjónustuna eða tryggja aðgang að sérfræðingum nær heimabyggð. Fjárhagslegt svigrúm sveitarfélaga getur því ráðið því hversu lengi barn þarf að bíða eftir stuðningi og hvaða þjónusta stendur því til boða. Fjármögnun þarf að taka mið af þessum ólíku aðstæðum eigi markmið stefnunnar um jafnt aðgengi óháð búsetu að ná fram að ganga.
Niðurstaða.
Annar minni hluti styður markmið tillögunnar og telur mikilvægt að byggja áfram á þeim árangri sem náðst hefur við framkvæmd farsældarlaganna. Að mati 2. minni hluta liggja hins vegar ekki fyrir nægjanlegar upplýsingar um kostnað, árangur og áframhaldandi fjárþörf sveitarfélaga til að réttlæta niðurfellingu innleiðingarframlagsins á þessu stigi.
Annar minni hluti telur jafnframt að innleiðingarframlagið eigi að haldast þar til Alþingi hefur fengið fullnægjandi mat á raunkostnaði, áframhaldandi fjárþörf og áhrifum fyrirhugaðrar niðurfellingar á þjónustu við börn.
Matið þarf að skýra hvaða þáttum innleiðingarinnar er lokið, hvaða verkefni eru enn óunnin og hvaða kostnaður er viðvarandi. Jafnframt þurfa að liggja fyrir árangursmælingar sem sýna að hvaða marki markmið laganna um snemmtækan stuðning, samhæfða þjónustu og bætt aðgengi að þjónustu hafa náðst.
Á grundvelli slíkra upplýsinga verður að taka afstöðu til áframhaldandi fjármögnunar. Tryggja þarf að fjármögnun fylgi þeim verkefnum sem sveitarfélögum eru falin og að aðgengi barna að þjónustu ráðist ekki af búsetu eða fjárhagslegu svigrúmi einstakra sveitarfélaga.
Að framangreindum athugasemdum virtum styður 2. minni hluti samþykkt tillögunnar.
Alþingi, 10. nóvember 2026.
Þórarinn Ingi Pétursson.