Ferill 220. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 394  —  220. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Degi B. Eggertssyni um gagnsæi hagsmunagæslu og mat OECD.


     1.      Hefur ráðuneytið tekið til skoðunar mat OECD á íslensku regluverki um hagsmunagæslu gagnvart stjórnvöldum sem fram kemur í skýrslunni Anti-Corruption and Integrity Outlook 2026? Ef svo er, hverjar eru helstu niðurstöður þeirrar skoðunar og hvaða umbóta telur ráðherra þörf?
    Í skýrslu OECD, Anti-Corruption and Integrity Outlook 2026, sem birt var 24. mars sl., er m.a. fjallað um regluverk um hagsmunagæslu gagnvart stjórnvöldum og matsviðmið um framkvæmd á sama sviði. Samkvæmt skýrslunni uppfyllir íslenskt regluverk um hagsmunagæslu 20% matsviðmiða stofnunarinnar samanborið við 43% að meðaltali hjá OECD-ríkjum. Hlutfallið á Íslandi er hið sama og í Noregi og Svíþjóð en Finnland uppfyllir 40% matsviðmiða. Danmörk uppfyllir ekkert þeirra.
    Hvað varðar framkvæmd uppfyllir Ísland 44% matsviðmiðanna, samanborið við 38% að meðaltali hjá OECD-ríkjum. Til samanburðar uppfyllir Noregur 11% matsviðmiðanna og Finnland tæplega 90%. Danmörk og Svíþjóð uppfylla ekkert þeirra.
    Ekki hefur farið fram mat á því hvort tilefni sé til að setja frekari reglur um hagsmunagæslu gagnvart stjórnvöldum eða gera breytingar á framkvæmd á því sviði.

     2.      Hefur framkvæmd ákvæða laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands, nr. 64/2020, um skráningu hagsmunavarða, skráningu samskipta þeirra við stjórnvöld og birtingu upplýsinga verið metin? Ef svo er, hverjar eru helstu niðurstöður þess mats?
     3.      Eru í undirbúningi frumvörp eða aðgerðir til að auka gagnsæi hagsmunagæslu, m.a. um skráningarskyldu, opinbera birtingu upplýsinga, eftirlit og viðurlög? Ef svo er, hvert er umfang aðgerða og hvenær er áætlað að þær komi til framkvæmda?

    Ekki hefur verið lagt sérstakt mat á framkvæmd þeirra ákvæða laga nr. 64/2020 sem geyma reglur um skráningu hagsmunavarða, skráningu samskipta við stjórnvöld og birtingu upplýsinga en forsætisráðuneytið hefur í hyggju að leggja mat á framkvæmd laganna. Í framhaldinu verður metið hvort tilefni sé til endurskoðunar þeirra, þar á meðal hvort útvíkka eigi gildissvið laganna. Hraði þeirrar vinnu mun ráðast af forgangsröðun verkefna í ráðuneytinu.

     4.      Hefur ráðherra í hyggju að leggja fram frumvarp til laga um sameiginlega, opinbera og leitarbæra skrá um hagsmunagæslu sem tengist einstökum þingmálum og öðrum opinberum ákvörðunum og nái til Stjórnarráðsins, Alþingis og sveitarfélaga?
    Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær verði lagt fram frumvarp komi til fyrrnefndrar endurskoðunar á lögum nr. 64/2020.