Ferill 192. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 395 — 192. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Ragnhildi Jónsdóttur um eftirfylgni með fjárhagslegu mati lagasetningar.
1. Með hvaða hætti er fylgst með því eftir gildistöku laga hvort fjárhagslegar forsendur sem lagðar voru til grundvallar mati á áhrifum stjórnarfrumvarps hafi gengið eftir?
Samkvæmt 1. mgr. 66. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál (lof.), ber hverjum ráðherra að leggja mat á áhrif stjórnarfrumvarpa, þ.m.t. fjárhagsleg áhrif, áður en þau eru lögð fyrir ríkisstjórn og Alþingi.
Hver ráðherra ber ábyrgð á og hefur virkt eftirlit með framkvæmd fjárlaga á sínu málefnasviði, þar á meðal með því að ráðstöfun fjárheimilda sé innan þess ramma sem Alþingi ákveður, sbr. 3. mgr. 27. gr. lof. Þegar lög hafa tekið gildi fellur eftirfylgni með fjárhagslegri framkvæmd þeirra því undir almenna ábyrgðar- og eftirlitsskyldu viðkomandi ráðherra við framkvæmd fjárlaga.
Forstöðumenn ríkisaðila bera jafnframt ábyrgð gagnvart viðkomandi ráðherra á að starfsemin skili tilætluðum árangri og að rekstur og afkoma séu í samræmi við samþykktar fjárveitingar og áætlanir, sbr. 4. mgr. 27. gr. lof. Ráðherrum ber einnig að meta að staðaldri langtímahorfur og fjárhagslega áhættu og hafa reglubundið eftirlit með fjárhag ríkisaðila sem undir þá heyra, sbr. 33. og 34. gr. lof.
Fjármála- og efnahagsráðherra upplýsir ríkisstjórn og fjárlaganefnd Alþingis, eins oft og ástæða er til og eigi sjaldnar en ársfjórðungslega, um framkvæmd fjárlaga og fjárhagslega framvindu ríkissjóðs, sbr. 3. mgr. 34. gr. lof. Óski fjárlaganefnd eftir upplýsingum skal hver ráðherra gera grein fyrir framkvæmd fjárlaga á sínu málefnasviði, sbr. 4. mgr. sömu greinar.
2. Fer fram kerfisbundinn samanburður á áætluðum fjárhagslegum áhrifum stjórnarfrumvarpa annars vegar og raunverulegum fjárhagslegum áhrifum laga eftir gildistöku þeirra hins vegar? Ef svo er, með hvaða hætti, á hvaða tímapunkti og hver ber ábyrgð á slíku mati?
Lög um opinber fjármál mæla fyrir um reglubundinn samanburð á raunútgjöldum og fjárheimildum. Samkvæmt 2. mgr. 34. gr. lof. skal hver ráðherra skila fjármála- og efnahagsráðherra greinargerð um slíkan samanburð fyrir hvern ársfjórðung vegna þeirra málaflokka sem undir hann heyra. Greinargerðin skal byggð á útgefnu uppgjöri ríkissjóðs fyrir sama tímabil. Samkvæmt 62. gr. lof. skal hver ráðherra jafnframt birta ársskýrslu um síðasta fjárhagsár eigi síðar en 1. júní ár hvert. Þar skal niðurstaða útgjalda borin saman við fjárheimildir fjárlaga og ávinningur af ráðstöfun fjárveitinga metinn með tilliti til settra markmiða og aðgerða skv. 20. gr. laganna.
Þessar skyldur fela í sér reglubundna eftirfylgni með útgjöldum og árangri. Lögin mæla hins vegar ekki sérstaklega fyrir um að upphaflegt fjárhagslegt áhrifamat hvers stjórnarfrumvarps sé borið saman við raunveruleg áhrif laganna eftir tiltekinn tíma frá gildistöku.
Samkvæmt 33. gr. lof. skal hver ráðherra jafnframt greina áhættuþætti, á þeim málefnasviðum og innan þeirra málaflokka sem hann ber ábyrgð á, sem geta valdið frávikum frá áætlunum eða bakað ríkissjóði fjárhagslegar skuldbindingar og þannig raskað áætlunum um afkomu ríkissjóðs til lengri tíma. Hver ráðherra skal tilkynna fjármála- og efnahagsráðherra um slíka áhættuþætti og gera tillögur að aðgerðum til að bregðast við þeim. Ef ástæða er til gerir fjármála- og efnahagsráðherra ríkisstjórn og fjárlaganefnd Alþingis grein fyrir slíkum áhættuþáttum og tillögum um viðbrögð við þeim, sbr. 2. mgr. sömu greinar.
3. Hvaða ferli tekur við ef í ljós kemur eftir gildistöku laga að raunveruleg fjárhagsleg áhrif þeirra víkja verulega frá því mati sem lagt var fyrir Alþingi við meðferð frumvarpsins?
Leiði breyttar forsendur til markverðra frávika milli raunútgjalda og fjárheimilda, eða sé ástæða til að ætla að slík frávik verði, skal viðkomandi ráðherra án tafar gera fjármála- og efnahagsráðherra grein fyrir ástæðum þeirra og þeim ráðstöfunum sem hann hefur gripið til eða hyggst grípa til að koma í veg fyrir frávikin, sbr. 2. mgr. 34. gr. lof.
Samkvæmt 1. mgr. 35. gr. lof. skal forstöðumaður ríkisaðila einnig upplýsa ráðherra viðkomandi málefnasviðs án tafar um frávik frá rekstraráætlun, ástæður þeirra og fyrirhuguð viðbrögð. Sá ráðherra skal upplýsa forstöðumann innan 15 daga um afstöðu sína til viðbragðanna. Fallist hann ekki á tillögurnar skal hann, innan sama frests, mæla fyrir um viðbrögð með nánar tilgreindum hætti þannig að settum markmiðum verði náð.
Ef hætta er á að útgjöld verði umfram fjárveitingar skal viðkomandi ráðherra leita leiða til að lækka gjöld innan ársins, millifæra fjárveitingar innan málaflokks eða nýta varasjóði, sbr. 1. mgr. 34. lof., sbr. einnig 24. og 29. gr. laganna. Að uppfylltum skilyrðum 26. gr. lof. er fjármála- og efnahagsráðherra jafnframt heimilt að leita aukinna fjárheimilda með frumvarpi til fjáraukalaga. Um áhættuþætti sem geta raskað áætlunum til lengri tíma og tillögur um viðbrögð fer skv. 33. gr. lof.
Um ábyrgð forstöðumanna ríkisaðila í A1-hluta er jafnframt fjallað í 36. gr. lof, sbr. einnig 38. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Samkvæmt 36. gr. lof nær ábyrgðin m.a. til þess að rekstur og fjárstýring séu skilvirk og í samræmi við samþykktar áætlanir, að bókhald gefi áreiðanlega mynd af fjárhagsstöðu og að gerð og skil ársreiknings sé lögum samkvæmt og honum skilað til viðkomandi ráðherra.
Meðal áherslna fjármála- og efnahagsráðherra á þessu kjörtímabili er að styrkja verkferla við framkvæmd fjárlaga til að tryggja betri framkvæmd gildandi regluverks, lágmarka áhættu og fækka tilvikum þar sem útgjöld fara umfram heimildir. Áhersla er á samræmt eftirlit, tímanleg viðbrögð og eftirfylgd með mótvægisaðgerðum. Jafnframt er stefnt að aukinni aðkomu ráðherranefndar um ríkisfjármál í samræmi við hlutverk nefndarinnar.
4. Með hvaða hætti eru upplýsingar um frávik milli áætlaðra og raunverulegra fjárhagslegra áhrifa nýttar til að bæta aðferðafræði, forsendur og gæði fjárhagslegs mats stjórnarfrumvarpa?
Samkvæmt 4. mgr. 66. gr. lof. skal fjármála- og efnahagsráðherra, í samráði við forsætisráðuneyti, setja leiðbeiningar um framkvæmd áhrifamats stjórnarfrumvarpa. Lögin mæla ekki sérstaklega fyrir um að upplýsingar um frávik frá upphaflegu áhrifamati skuli nýttar við þróun matsins.
Í yfirstandandi vinnu við bætta framkvæmd fjárlaga er stefnt að betri samþættingu áætlanagerðar og eftirfylgni og styrkingu á stuðnings-, samræmingar- og eftirlitshlutverki fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Með því er jafnframt stefnt að því að upplýsingar og reynsla af framkvæmd fjárlaga nýtist markvissar við endurskoðun forsendna og áætlanagerð næstu ára.