Ferill 275. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 396 — 275. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um tölfræði um stöðu hópa eftir þjóðerni.
1. Hefur afstaða ráðuneytisins breyst síðan fyrirspurn á 154. löggjafarþingi (1021. mál) um opinbera gagnasöfnun í anda Det Nationale Integrationsbarometer var svarað en þar kom fram að ráðuneytið hefði ekki í hyggju að safna umfangsmeiri tölfræði um stöðu hópa eftir þjóðerni en þá var gert?
Afstaða fjármála- og efnahagsráðuneytisins til þess að byggja upp sérstaka, samræmda gagnasöfnun um samfélagslega stöðu hópa af framangreindu tagi hefur ekki breyst frá því að fyrirspurn um málið á 154. löggjafarþingi var svarað.
Samkvæmt skiptingu stjórnarmálefna heyra opinber hagskýrslugerð og Hagstofa Íslands undir forsætisráðuneytið, en málefni innflytjenda undir félags- og húsnæðismálaráðuneytið. Hagstofan hefur forystu um tilhögun, samræmingu og framkvæmd opinberrar hagskýrslugerðar.
2. Telur ráðherra mikilvægt að hægt sé að greina með ítarlegum hætti tekjur, eignir, skuldir og framlög einstaklinga til hins opinbera o.fl. líkt og gert er í nágrannalöndum okkar? Ef svo er ekki, hvers vegna?
Mikilvægt er að stjórnvöld búi yfir traustum og greinargóðum upplýsingum um tekjur, eignir, skuldir og skattgreiðslur einstaklinga, m.a. til að styðja við efnahagsstjórn, tekjuáætlanir og mat á áhrifum breytinga á skattkerfinu.
Nú þegar er unnt að notast við gögn úr álagningarskrám Skattsins til greiningar á tekjum, eignum, skuldum, skattgreiðslum og helstu bótatilfærslum, þar á meðal barna- og húsnæðisbótum, eftir ýmsum bakgrunnsbreytum. Þessi gögn eru mikilvæg til upplýstrar stefnumótunar og til að greina og draga úr ójöfnuði.
Munur á skattgreiðslum og bótum milli hópa getur m.a. endurspeglað ólíka aldurssamsetningu, tekjur og fjölskylduaðstæður. Þá er rétt að benda á að ríkisfang eitt og sér veitir ekki upplýsingar um upprunaland eða bakgrunn. Loks gefur munur sem mælist milli hópa ekki tilefni til ályktana um einstaklinga með tiltekið ríkisfang eða af tilteknum uppruna.