Ferill 172. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 399  —  172. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Adolfssyni um eignir, skuldir og skuldbindingar Ganga og brúar ohf.


     1.      Hvernig hljóðar áætlun stjórnar innviðafélagsins Ganga og brúar ohf. um hlutafjárhækkanir samkvæmt samþykkt hluthafafundar Vaðlaheiðarganga hf. 13. maí 2026? Hve stór hluti 32 milljarða kr. hlutafjárhækkunarinnar verður greiddur með reiðufé og hve stór með öðrum eignum?
    Á hluthafafundi Vaðlaheiðarganga þann 13. maí 2026 lagði þáverandi stjórn fram tillögu um breytingu á samþykktum félagsins sem fól í sér að heimilt væri að hækka hlutafé um allt að 32 milljarða kr. Sú heimild var þó ekki nýtt þar sem veruleg breyting var gerð á félaginu á öðrum hluthafafundi þann 1. júlí 2026 þegar félaginu var breytt í opinbera hlutafélagið Göng og brú á grundvelli laga um innviðafélag, nr. 70/2026, sem voru samþykkt 18. júní 2026.

     2.      Hvaða lán og aðrar fjárskuldbindingar Vaðlaheiðarganga hf. voru í félaginu 1. júlí 2026? Svar óskast sundurliðað eftir lánveitendum, höfuðstól, verðbótum, vöxtum, gjalddögum og veðum eða öðrum tryggingum.
    Á hluthafafundi þann 1. júlí 2026 ákvað ríkið sem eigandi félagsins að neyta réttar síns samkvæmt lánasamningi um að breyta kröfu sinni á hendur félaginu í hlutafé. Hlutafé félagsins var þá aukið um 16.687.129.610 kr. sem nam heildarstöðu láns Vaðlaheiðarganga. Nánar tiltekið var höfuðstóll án verðbóta 12.063.785.650 kr., verðbætur 4.586.574.415 kr. og áfallnir vextir 36.769.545 kr. Samningsbundnar tryggingar voru handveð í hlutum, bankareikningum og innstæðum ásamt 1. veðrétti í veggjaldakröfum, kröfum á greiðslumiðlara, veggjaldainnstæðum og fasteignum með tilheyrandi rekstrarfylgifé.
    Félagið var ekki með önnur lán eða aðrar sambærilegar fjárhagsskuldbindingar.

     3.      Hvaða eignir eða réttindi hefur ríkissjóður fært til félagsins eftir 1. júlí 2026, á hvaða lagagrundvelli og á grundvelli hvaða verðmats?
    Engar aðrar eignir hafa verið færðar til félagsins. Í ákvæði til bráðabirgða við lög um innviðafélag, nr. 70/2026, kemur fram að fjármála- og efnahagsráðherra, í samráði við ráðherra sem fer með samgöngumál, sé heimilt að færa yfir til innviðafélags eignarhald á samgöngumannvirkjum eða samningstengdum réttindum sem þeim tilheyra í formi hlutafjár frá ríkissjóði. Heimildin tekur til samgöngumannvirkja við Hornafjarðarfljót, Vaðlaheiðarganga og Ölfusárbrúar.

     4.      Hefur eignarhald á mannvirkjum við Hornafjarðarfljót eða Ölfusárbrú, eða samningstengdum réttindum vegna þeirra, verið fært til félagsins? Ef svo er, hvenær, með hvaða heimild í fjárlögum og fyrir hvaða fjárhæð?
    Eignarhald á mannvirkjum við Hornafjarðarfljót eða Ölfusárbrú, eða samningstengdum réttindum vegna þeirra, hefur enn sem komið er ekki verið fært til félagsins. Heimild til að færa þessar tilteknu eignir liggur fyrir í bráðabirgðaákvæði við lög um innviðafélag, nr. 70/2026.

     5.      Hafa viljayfirlýsingar eða samningar verið gerðir eða eru þeir í undirbúningi við félagið vegna Hornafjarðarfljóts, Ölfusárbrúar, Fljótaganga, Sundabrautar og tvöföldunar Hvalfjarðarganga? Ef svo er, hvar eru þeir aðgengilegir og birtir?
    Viljayfirlýsing var undirrituð milli Ganga og brúar ohf. og innviðaráðherra þann 17. september 2026 um fimm samgöngumannvirki, þ.e. Hornafjarðarfljót, Ölfusárbrú, Fljótagöng, Sundabraut og tvöföldun Hvalfjarðarganga. Ekki er búið að ganga frá endanlegum samningum um þessi verkefni á grundvelli viljayfirlýsingarinnar.

     6.      Hver er áætlaður heildarkostnaður hvers þeirra verkefna sem talin eru upp í 5. tölul. fyrirspurnarinnar, hvernig á að fjármagna þau og hversu stór hluti kostnaðar á að greiðast með veggjöldum annars vegar og framlögum ríkissjóðs hins vegar?
    Samkvæmt 6. gr. laga um innviðafélag, nr. 70/2026, er félaginu heimilt að gera samning við ráðherra sem fer með samgöngumál, einn samning eða fleiri eftir þörfum, um uppbyggingu og rekstur samgönguverkefna á grundvelli samgönguáætlunar í samræmi við tilgang og hlutverk félagsins. Í samningi skal tryggt að félagið geti staðið undir kostnaði við undirbúning og framkvæmd verkefna, þ.m.t. stofnkostnaði, rekstri, viðhaldi og fjármagnskostnaði, með tekjum af veggjöldum eða eftir atvikum beinum fjárframlögum frá ríkinu til að verkefnin geti talist fjárhagslega sjálfbær.
    Áætlaður heildarkostnaður framangreindra verkefna kemur fram í gildandi samgönguáætlun. Áætlunin var samþykkt á Alþingi í júní 2026 og er á forræði innviðaráðuneytisins. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ekki aðrar upplýsingar um áætlaðan heildarkostnað.
    Þar sem ekki er búið að ganga frá samningi við félagið um framkvæmd framangreindra verkefna liggur ekki fyrir hversu stór hluti kostnaðar í hverju verkefni fyrir sig muni greiðast með veggjöldum annars vegar og framlögum ríkissjóðs hins vegar.

     7.      Hvaða beinu eða óbeinu ábyrgðir, tekjutryggingar eða aðrar skuldbindingar hefur ríkissjóður tekið eða er fyrirhugað að taka vegna félagsins og einstakra verkefna þess?
    Ekki hefur verið tekin ákvörðun um slíkar skuldbindingar af hálfu ríkisins vegna félagsins. Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2027 er hins vegar að finna almenna heimild til að auka við hlutafé innviðafélagsins Ganga og brúar ohf. í því skyni að auka fjárfestingargetu félagsins til að standa undir fjármögnun mikilvægra samgöngumannvirkja, sbr. lög um innviðafélag, nr. 70/2026.

     8.      Hverjar eru áætlaðar skuldir félagsins í lok hvers árs 2026–2031 og hvernig koma þær fram í reikningsskilum hins opinbera?
    Skuldsetning félagsins er háð því hvaða verkefni félagið mun taka að sér á grundvelli samnings eða samninga við ráðherra samgöngumála. Þess má þó geta að félagið er með útboðsferli í gangi þar sem verið er að bjóða út fjármálaráðgjöf í því skyni að það geti verið reiðubúið að hefja fjármögnun mikilvægra samgönguverkefna strax á næsta ári.
    Við undirbúning félagsins var miðað við að það uppfyllti skilyrði ESA 2010 þjóðhagsreikningastaðalsins um að flokkast utan A-hluta ríkissjóðs eða sem C-hluta félag. Félagið mun fjármagna sig á markaði án ábyrgðar ríkissjóðs og skuldir þess teljast þar með ekki með skuldum A1-hluta ríkisins.

     9.      Hyggst ráðherra leggja samþykktir, eigendastefnu, verðmat og verkefnasamninga félagsins fyrir Alþingi áður en frekari ríkiseignir verða færðar til þess?
    Í 3. mgr. 4. gr. vegalaga, nr. 80/2007, kemur fram að áður en samningar eru gerðir við félagið um samgönguverkefni skuli innviðaráðherra kynna umhverfis- og samgöngunefnd og fjárlaganefnd helstu forsendur verkefnis, þar á meðal kostnaðar- og ábatamat, fjármögnun, fyrirkomulag gjaldtöku og mat á samfélagslegum áhrifum. Þá er Alþingi heimilt samkvæmt lögum um innviðafélag, nr. 70/2026, að kjósa einn til tvo áheyrnarfulltrúa sem sitja stjórnarfundi félagsins. Ekki er horft til þess að samþykktir félagsins verði lagðar fyrir Alþingi sérstaklega.
    Almenn eigendastefna ríkisins mun gilda um félagið líkt og önnur ríkisfyrirtæki og mynda ramma um samskipti þess við ríkið sem eiganda. Við eigendastýringu verður lögð áhersla á skýr markmið, faglega stjórnarhætti, gagnsæi og ábyrgð, ásamt hagkvæmni í rekstri og meðferð fjármuna. Jafnframt verður gætt að skýrri verkaskiptingu milli eiganda, stjórnar og stjórnenda félagsins og sjálfstæði stjórnar til að sinna skyldum sínum. Nánari útfærsla á áherslum ríkisins sem eiganda mun taka mið af lögbundnu hlutverki og sérstöðu félagsins.