Ferill 324. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 402 — 324. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um úthlutun stöðugilda vegna aðgerða gegn skipulagðri brotastarfsemi.
Frá Þorgrími Sigmundssyni.
1. Hve mörgum af þeim 20 stöðugildum sem ráðuneytið boðaði 9. mars 2023 að yrði bætt við hjá lögreglu til að efla aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi hefur verið úthlutað? Hvernig skiptist úthlutunin eftir embættum og árum?
2. Hve mörg þessara stöðugilda voru mönnuð hjá hverju embætti í lok hvers árs frá árinu 2023?
3. Voru fjárheimildir veittar samhliða fjölgun stöðugilda til eflingar aðgerðum gegn skipulagðri brotastarfsemi? Ef svo er, hversu háar voru þær hjá hverju embætti á hverju ári frá árinu 2023?
Skriflegt svar óskast.